Mótefni lifir lengi í líkamanum

Nið­ur­stöður rann­sóknar Íslenskrar erfða­grein­ingar benda til þess að mótefni sem lifa lengi og hald­ast há í lík­am­anum eftir að fólk veik­ist af Covid-19-veirunni séu með nákvæma virkni og bind­ast betur.

Mótefni lifir lengi í líkamanum

Nið­ur­stöður rann­sóknar Íslenskrar erfða­grein­ingar benda til þess að mótefni sem lifa lengi og hald­ast há í lík­am­anum eftir að fólk veik­ist af Covid-19-veirunni séu með nákvæma virkni og bind­ast betur. 

Þetta kom fram á fræðslu­fundi Íslenskrar erfða­grein­ingar um rann­sóknir á afleið­ingum Covid-19. „Nei, nú ætl­aði ég að fara í skít­kast. Það verður að vera eitt­hvað gaman af þessu,“ sagði for­stjór­inn Kári Stef­áns­son sem hvatti stjórn­völd til að tryggja stofnun Far­sótt­ar­húss sem gæti tekið við slíkum rann­sóknum til fram­tíðar. Mik­il­vægt væri að skima fólk almennt í sam­fé­lag­inu til að átta sig á útbreiðslu veirunnar þar sem um helm­ingur þeirra sem sýkj­ast eru ein­kenna­lausir, en mótefnin virð­ast engu að síður lifa lengi í lík­am­anum. 

Niðurstöðurnar koma á óvart

„Það kemur á óvart að það séu svona mikið af mótefnum enn í lík­am­anum ári eftir sýk­ingu. Við áttum alveg eins von á því að mótefni færu að minnka mun hraðar,“ segir Daníel Fannar Guð­bjarts­son stærð­fræð­ingur. Mótefni mæl­ast meiri hjá eldra fólki og aukast líka með alvar­leika sýk­ingar, sem kemur á óvart að sögn Kára sem segir að fólk sem er komið yfir sex­tugt eigi almennt erf­ið­ara með að mynda mótefni. Þá kom fram að almennt væri góð sam­fylgni á milli mótefna­mæl­ingar og t-frumu­svars, sem kæmi jafn­framt á óvart þar sem ein kenn­ingin hefði verið að fólk mynd­aði annað hvort mótefni eða t-frumu­svar. Fjöl­virkt t-frumu­svar teng­ist vernd gegn sýk­ingum. Ónæm­is­svar gegn sars-cov-2 virð­ist lítið hafa dvínað eftir sýk­ingu. 

Á fund­inum kom einnig fram að fólk sem var með mikil ein­kenni af sýk­ing­unni er með verra áreynslu­þol eftir veik­indin en aðrir. Karlar eru hins vegar að nema ein­kennin síður en konur, en meiri munur er á milli karla sem veikt­ust alvar­legra og ann­arra. Þreytu­ein­kenni eru líka almennt meiri á meðal kvenna. „Þetta stang­ast á við þá stað­reynd að karlar eru almennt kvart­sár­ari en konur,“ sagði Kári og sagði að með hverri spurn­ingu sem svarað væri kvikn­uðu svör við tveimur til þremur nýjum spurn­ingum. 

Flestir veiktust í fyrstu bylgju 

Flest sýnin sem liggja að baki rann­sókn­inni voru tekin úr fólki sem veikt­ist í fyrstu bylgj­unni. Þátt­tak­endur voru beðnir um að svara spurn­inga­lista um heilsu­far og lífs­stíl, koma svo á vett­vang og und­ir­gang­ast þar ýmsar mæl­ingar og próf.

Yfir 60 pró­sent þeirra sem veikt­ust í fyrstu bylgj­unni tóku þátt í rann­sókn­inni, eða 1.141 ein­stak­lingar. Alls voru 53 pró­sent þáttak­anda konur, en á milli fimm og ell­efu mán­uðir liðu frá því að fólk greind­ist með Covid-19 þar til rann­sóknin var lögð fyrir.  Þátt­tak­endum var skipt niður í fjóra hópa, sá stærsti sam­an­stóð af ein­stak­lingum sem fengu lítil ein­kenni, en undir hann féllu 439 ein­stak­lingar. Minnsti hóp­ur­inn var fólk sem hafði þurft á spít­ala­vist að halda vegna veirunnar, eða 49 ein­stak­lingar. Skimað var fyrir ýmsum áhættu­þáttum fyrir bráðum veik­indum, en stærsti áhættu­þátt­ur­inn felst í því að vera með ein­hvern sjúk­dóm. Aðrir áhættu­þættir voru hærri lík­ams­þyngd­ar­stuð­ull, astmi, syk­ur­sýki og háþrýst­ingur. 

Enn á eftir að vinna úr ýmsum þáttum rann­sókn­ar­innar en helstu nið­ur­stöður væru þær að tengsl voru á milli mótefna­magns í blóði og alvar­leika veik­ind­anna.

Þeir sem veiktust lýstu meiri einkennum 

Spurt var um 90 ein­kenni. Þeir sem höfðu fengið veiruna voru með nán­ast öll ein­kennin oftar en aðrir, auk þess sem þeir voru næm­ari fyrir ein­kenn­unum og upp­lifði meiri ein­kenni en aðrir.

Það hvort fólk væri með skert eða truflað lyktar- eða bragð­skyn tengd­ist lítið alvar­leika veik­ind­anna. Alvar­leiki veik­ind­anna hafði hins vegar áhrif á önnur ein­kenni sem sett voru í sama flokk; minnis­trufl­anir, mæði, van­líðan eftir lík­am­lega áreynslu, ein­beit­ing­ar­skort, þreyta, slapp­leika, brjóst­verk, hraðan hjart­slátt. Því veik­ara sem fólk varð, því verr leið því eftir veik­indin. Það gilti jafn­framt um kvíða, þung­lynd­is­ein­kenni og önnur heilsu­tengd lífs­gæði. Þeir sem veikt­ust mest glímdu við meiri van­líðan en aðrir. 

Alls lýsa 32 pró­sent þeirra sem fengu veiruna enn veru­legum ein­kennum fimm til ell­efu mán­uðum eftir að þeir greindust, svo sem mæði, minnis­trufl­unum, van­líðan eftir áreynslu, ein­beit­ing­ar­skorti, þreytu og slapp­leika, en 14 pró­sent í við­mið­un­ar­hópi. Algeng­ara var á meðal kvenna að þær fyndu fyrir ein­kennum. Um 60% þurfti að minnka álag, vinna minna, draga úr námi, þrífa sjaldnar og 16 pró­sent þurfti að minnka mikið við sig. Tíminn virt­ist ekki vinna mikið með fólki, þátt­tak­endur fundu fyrir jafn alvar­legum ein­kennum fimm mán­uðum eftir sýk­ing­una og ell­efu mán­uðum.

Þreyta frekar en skert heilastarfsemi

Liður í rann­sókn­inni var að láta fólk þefa af sex mis­mun­andi pennum sem allir höfðu ákveðna lykt og meta hversu sterk og hversu góð lyktin væri. Þeir sem hafa mælst með veiruna mátu lykt almennt verri og dauf­ari en aðrir, voru veiruna var tvö­falt lík­legra til þess að skimast með skert lykt­ar­skyn og þrefalt lík­legra til þess að finna ekki lykt af einum penn­anum. Hlutfall þeirra sem mæld­ust með skert lykt­ar­skyn var 9 pró­sent fyrir sýk­ing­una og 23 pró­sent eftir sýk­ing­una. Þessi ein­kenni lag­ast hins vegar með tím­anum og lykt­ar­skynið batnar. 

Áreynslu­próf var sömu­leiðis lagt fyrir fólk þar sem það var látið hjóla á þrek­hjóli. Sterk tengsl voru á milli áreynslu­þols og hversu alvar­lega fólk veikt­ist af veirunni, þolið var lægra hjá þeim sem veikt­ust verr af Covid-19. Það teng­ist bæði afleið­ingum alvar­legra veik­inda og áhættu­þáttum fyrir veik­ind­inum. Þá vakti athygli að áreynslu­þol hefur ekki aðeins lækkað á meðal þeirra sem veikt­ust af Covid-19 heldur einnig í við­mið­un­ar­hópnum sem er talið stafa af hreyf­ing­ar­leysi í sam­fé­lag­inu. Lægra áreynslu­þol hjá þeim sem veikt­ust tekur því lík­lega mið af eft­ir­köstum veik­ind­anna sem og almennu hreyf­ing­ar­leysi í sam­fé­lag­inu. 

Fólk sem hafði veikst af Covid-19 kom ekki verr út úr tauga­sál­fræði­prófum sem lögð voru fyrir fólk með það að marki að meta athygli, ein­beit­ingu, minni og rök­hugsun. Nið­ur­stöð­urnar benda því til þess að þegar fólk sem hefur veikst af Covid-19 lýsir þessum ein­kennum stafi það frekar af þreytu heldur en truflun á heila­starf­semi.

Ekki var heldur munur á nið­ur­stöðum fólks sem hafði greinst með Covid-19 og við­mið­un­ar­hópi þegar blóð­þrýst­ingur var mældur, hjart­slátt­ar­tíðni, leiðni í kálfa­taug, heyrna­próf, nýrna­blóð­próf, lifr­ar­blóð­próf eða hjart­ar­blóð­próf, sem bendir til þess að Covid-19 fylgi ekki víð­tækar skemmdir á líf­færum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár