Mikil ásókn og takmarkað framboð á fasteignamarkaði

Ólafur Sindri Helgason, yfir­hag­fræð­ingur hjá Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun, segir minnk­andi fram­boð á eignum á fast­eigna­mark­aði geta leitt til þess að bil á milli þeirra á leigu- og fast­eigna­mark­aði gæti breikkað. Samkvæmt skýrslu stofn­un­ar­innar var met sala á íbúðum í febr­úar mán­uði.

Mikil ásókn og takmarkað framboð á fasteignamarkaði
Sala eykst og fram­boð minnkar Ólafur Sindri Helgason, yfir­hag­fræð­ingur hjá HMS, segir eft­ir­spurn á fast­eigna­mark­aði gríð­ar­lega en fram­boð á eignum fari þó minnk­andi. Mynd: hag / Haraldur Guðjónsson

Samkvæmt mæl­ingum Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar var síð­ast­lið­inn febr­úar umsvifa­mesti febr­ú­ar­mán­uður á fast­eigna­mark­aði frá því að stofn­unin hóf mæl­ingar árið 2002 en útgefnir kaup­samn­ingar í mán­uð­inum voru 1048 tals­ins sem er 9,7% aukn­ing frá því í jan­úar og 22% aukn­ing frá sama mán­uði árið á undan. Framboð á íbúðum til sölu hefur á sama tíma dreg­ist saman svo um munar.

Ólafur Sindri Helgason, yfir­hag­fræð­ingur HMS, segir minnkun á fram­boði íbúða ekki vera af hinu góða en hún geti leitt af sér hækkun á íbúð­ar­verði sem getur gert ákveðnum hópi fólks erf­ið­ara fyrir að kom­ast af leigu­mark­aði inn á fast­eigna­mark­að­inn. „Þetta segir mér að eft­ir­spurnin er gríð­ar­leg, vextir hafa aldrei verið svona lágir og það er ekki gott ef að fram­boðið minnkar og minnkar og það kemur ekk­ert inn á mark­að­inn í stað­inn,“ segir hann. 

Vanalega rólegt í febrúar

Fast­eigna­mark­að­ur­inn er vana­lega rólegur í febr­ú­ar­mán­uði en töl­fræði sýnir fram á það að aðeins sé hægt að finna einn mánuð á árunum 2008 til 2019 sem var með fleiri seldar íbúðir. Samkvæmt skýrsl­unni má gera ráð fyrir að þró­unin haldi áfram á sama veg svo fremur sem fram­boð af íbúðum verði enn til staðar. Samkvæmt nýrri skoð­ana­könnun sem fram­kvæmd var í febr­úar töldu 9% svar­enda lík­legt eða öruggt að þeir myndu kaupa sér íbúð á næstu sex mán­uðum sem er fremur hátt hlut­fall miðað við eldri kann­anir. 

„Þetta gæti breikkað bilið á milli þeirra ef fast­eigna­verð heldur áfram að hækka, þá verður fast­eigna­mark­að­ur­inn meira fyrir þá sem eiga fast­eignir nú þegar“

Ólafur segir ástandið á fast­eigna­mark­aðnum ekki ein­skorð­ast við Ísland en að hans sögn má sjá hið sama eiga sér stað víða erlendis. „Þetta er að ger­ast alls staðar ann­ars staðar í heim­inum líka. Covid-19 far­ald­ur­inn og vaxta­lækk­anir í kjöl­far hans hafa hleypt lífi í fast­eigna­mark­aði víðs­vegar. Það er til að mynda gríð­ar­leg eft­ir­spurn eftir stærri eignum í Banda­ríkj­unum og reyndar víðar. Fólk er að nýta sér lægri vexti í að stækka við sig,“ segir hann og metur að mögu­lega sé um tíma­bundið ástand að ræða sem muni lag­ast þegar Covid- 19 gengur yfir og efna­hags óvissa minnkar. 

Lágir vextir gera það að verkum að auð­veld­ara er að festa kaup á fast­eignum en að mati Ólafs þarf fólk að hafa í huga að skuld­setja sig ekki ofar getu því vextir muni á ein­hverjum tíma­punkti hækka. „Fólk verður auð­vitað að hafa í huga að spenna bog­ann ekki of hátt, að skuld­setja sig fyrir mörgum tugum millj­óna, kaupa of stórar íbúðir ef það rétt svo ræður við greiðslu­byrð­ina. Ef það rétt ræður við greiðslu­byrð­ina eins og ástandið er núna þá þarf að hafa í huga að vextir hafa aldrei verið lægri og að öllum lík­indum munu þeir hækka á næstu tveimur til þremur árum,“ segir hann og útskýrir að eðli­legt sé að vextir hækki í kjöl­far efna­hag­skreppu. „Það þarf alltaf að lækka vexti þegar það skellur á efna­hag­skreppa þannig að þeir munu hækka þegar efna­hag­ur­inn tekur við sér,“ útskýrir hann. 

Framboðið dregist verulega saman

Eins og áður hefur verið nefnt hefur fram­boð íbúða á sölu dreg­ist saman en á síð­ustu tólf mán­uðum hefur íbúðum til sölu fækkað um 58,4% á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Fleiri íbúðir selj­ast en eru settar á sölu. Að svo stöddu eru um 830 íbúðir til sölu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu miðað við 980 þann 1. mars. 

Ólafur segir að þegar vextir lækka með þessum hætti verði til­færsla af leigu­mark­aði og á fast­eigna­mark­að­inn, margir hafi tök á að kaupa eign í fyrsta skipti sem hafi svo aftur áhrif á fram­boðið sem minnki því nýjar eignir komi ekki inn á mark­að­inn á móti þeim keyptu. 

Tak­markað fram­boð gæti sam­kvæmt skýrsl­unni dregið úr umsvifum á fast­eigna­mark­aði til lengri tíma litið en gæti þó einnig leitt til frek­ari verð­hækk­ana en sú þróun er nú þegar farin af stað. 

Bilið gæti breikkað

Að mati Ólafs er ákveð­inn hópur fólks sem vel gæti nýtt sér slíka stöðu á mark­aðnum en annar hópur fólks gæti hins vegar færst fjær því að geta keypt fast­eign. „Það er stór hluti fólks sem hefur það bara fínt og hefur ekki misst vinn­una og getur því nýtt sér þetta ástand. En það er ekki gott að ef að þeir sem eftir sitja á leigu­mark­aði missa af lest­inni. Hús­næð­is­verð hækkar og hækkar og þar með þarf fólk að eiga meira í útborgun til að kom­ast inn á fast­eigna­mark­að­inn. Þeir sem eiga pen­ing núna, þeir sem geta orðið sér út um fjár­magn reyna að kaupa sér íbúðir núna til að losna af leigu­mark­aði en aðrir geta það ekki. Þetta gæti breikkað bilið á milli þeirra ef fast­eigna­verð heldur áfram að hækka, þá verður fast­eigna­mark­að­ur­inn meira fyrir þá sem eiga fast­eignir nú þegar,“ segir hann. 

„Það þarf alltaf að lækka vexti þegar það skellur á efna­hag­skreppa þannig að þeir munu hækka þegar efna­hag­ur­inn tekur við sér“

Aðgengi að fjár­magni segir hann gott og þar sem vextir eru lágir eru þeir sem eru í þeim hug­leið­ingum að kaupa sér fast­eign yfir­leitt ekki í miklum vand­ræðum með það en annar hópur fólks á leigu­mark­aði getur ekki að sama skapi safnað sér pen­ing og er á sama tíma að leiga dýrar eignir. Ólafur segir leigu­verð ekki hafa lækkað mikið á sama tíma og íbúð­ar­verð hefur hækkað. „Það er nátt­úru­lega hópur sem lendir meira í krepp­unni en aðrir og hann getur lent í vand­ræðum með að kaupa sér hús­næði. Maður vill auð­vitað sjá hækkun í kaup­verði í takt við kaup­mátt­ar­aukn­ingu.“

Slegist er um eignir

Ástandið hefur einnig gert það að verkum að íbúðir selj­ast nú yfir ásettu kaup­verði en í febr­ú­ar­mán­uði var kaup­verð hærra en ásett verð í 28,4% af seldum íbúðum sem er næst hæsta hlut­fall frá upp­hafi slíkra mæl­inga árið 2013. „Í dag er selj­enda­mark­aður því fram­boð er mjög lítið og eft­ir­spurn mjög mikil, þá hækkar hlut­fallið af íbúðum sem selj­ast yfir ásettu verði,“ segir Ólafur.

Allt hefur þetta leitt til þess að sölu­tími íbúða hefur ekki verið styttri frá því að mæl­ingar hófust, hvorki á höf­uð­borg­ar­svæð­inu né á lands­byggð­inni. Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu tók að með­al­tali 44 daga að selja íbúð. Til sam­an­burðar tók 85 daga að selja íbúð vorið 2015. Þá segir Ólafur að dæmi séu til um það að sleg­ist sé um eignir og eignir keyptar án þess að vera skoð­aðar. „Fólk verður að gefa sér tíma í að skoða íbúðir og það er á þeirra ábyrgð að skoða þær vel,“ segir hann. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár