Ný sprunga myndaðist í Geldingadölum og svæðið rýmt

Flugmenn urðu þess fyrst varir að ný sprunga hefði mynd­ast við eld­gosið í Geld­inga­dölum. Verið er að rýma svæðið, sem verður lokað þar til frek­ari vit­neskja liggur fyrir.

Ný sprunga myndaðist í Geldingadölum og svæðið rýmt

Hættu­á­stand gæti skap­ast við Geld­inga­dali þar sem ný sprunga opn­að­ist á svæð­inu, þar sem fólk var sam­an­komið til þess að skoða eld­gosið. Verið er að rýma svæðið sem verður lokað þar til frek­ari upp­lýs­ingar liggja fyrir. Til­kynn­ing þess efnis barst frá lög­reglu­stjór­anum á Suð­ur­nesjum nú í hádeg­inu. Tvær þyrlur frá Land­helg­is­gæsluni eru á leið á vett­vang, sem og 50 manna björg­un­ar­sveit­ar­hópur. Nýja sprungan er um 500 metra löng og má sjá á vef­mynda­vél RÚV, sem hefur verið snúið að henni. Gasmengun gæti auk­ist með til­komu nýrrar sprungu. 

Starfs­maður Veð­ur­stofu Íslands sagði í sam­tali við RÚV að til­kynn­ing um nýja sprungu hafi borist frá flug­mönnum í Keflavík. Þar var jafn­framt haft eftir Magnúsi Tuma að um ákveðna stig­mögnun væri að ræða. Enn sem komið er kemur þó afskap­lega lít­ill eldur frá nýju sprung­unni. 

Kalt hefur verið úti síð­ustu daga og svæð­inu lokað á laug­ar­dag vegna veð­urs. Frá því að gosið hófst hafa aldrei verið færri lagt í gos­leið­angur en í gær, eða aðeins um 480 ein­stak­lingar. Til sam­an­burðar voru 5.128 við gosið á föstu­dag­inn langa. 

Eldgosið í Geld­ing­ar­dölum Myndir sem voru teknar við gömlu gíg­ana fyrir helgi.

Breyt­ingar hafa verið að mynd­ast á síð­ast­liðnum dögum. Til að mynda varð breyt­ing við gíg­ana á laug­ar­dag þegar hraun­poll­ur­inn sem hafði mynd­ast norður af Norðra tæmd­ist, sam­kvæmt eld­fjalla­fræði og nátt­úru­vá­r­hópi Háskóla Íslands. Lægð í rima hans að norð­an­verðu benti til þess að útflæðið hafi verið til norð­vest­urs, án þess að það hafi verið vitað með vissu. Flæði hélt þó áfram í poll­inn. Um leið höfðu hrúgöldin sem urðu til við hraun frá gíg­veggnum færst til og voru tíma­bundið á floti á hraun­flæð­inu. 

Áður höfðu enn ein kafla­skiptin orðið á gos­inu,mögu­lega aðfarð­ar­nótt föstu­dags­ins langa, þegar fyrsta mark­tæka gjósku­fallið barst frá Norðra, gullituð vik­ur­korn auk þess gjósku­fallið inni­hélt tals­vert af Norna­hárum sem voru allt að 10 sentí­metra löng. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár