Nú skal ég segja þér leyndarmál

Guðrún Hann­es­dóttir skáld, mynd­list­ar­kona og hand­hafi íslensku þýð­ing­ar­verð­laun­anna byrj­aði ekki að skrifa fyrr en rétti tím­inn var kom­inn og hún fann að nú væri hún til­búin. Hún ræðir upp­vöxt­inn, ást, trú og list­ina, allt það sem skiptir máli í líf­inu, það þegar hún reyndi að setja Rauð­hettu á svið með rauðri tösku í aðal­hlut­verki og komst að þeirri nið­ur­stöðu að sól­skinið lyktar af vanillu.

Nú skal ég segja þér leyndarmál

Standi ég á miðri nútíma­stundu á umferð­ar­eyju umkringd háhýsum og blokkum og teppa­lögðum bílum og byrja að fyll­ast kvíð­anum, sem skáld­konur allra landa lýsa einna best, fer ég oft með ljóð: 

„svífur sælli en áður“
fjöður
í hvíta­logni
him­inn­inn 
undir og ofaná 

Eftir skáldið Guðrúnu Hann­es­dóttur, úr bók hennar þessa heims [2018]. Í bók­inni stígur náðin niður til jarðar, vind­hárin titra, burkn­inn sér mann og þekkir með nafni, berin ganga aftur, svo nokkur fá undur séu nefnd.

Fyrsta ljóða­bók Guðrúnar, Fléttur, kom út árið 2007 og sú átt­unda, Speg­il­sjónir, í haust hjá Partus for­lagi. Áður hafði hún gefið út, skrifað og mynd­skreytt bækur fyrir börn og þýtt skáld­sögur. 

Ljóð Guðrúnar eru kynn­gi­mögnuð, orða­forð­inn víð­feðm­inn – úr öllum heimum – lita­kass­inn fæst ekki í venju­legri búð. Þau hverfa frá smæstu sýnum, örlitlum og stórum jarðar- og jað­ar­brotum til óra­vídd­anna í algeim­inum; …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár