Óttast stóran Brennisteinsfjallaskjálfta í kjölfar skjálftahrinunnar

Kristín Jóns­dóttir, hóp­stjóri nátt­úru­vökt­unar á Veð­ur­stofu Íslands, varar við því að enn stærri skjálfti, yfir 6, gæti komið í kjöl­farið á skjálfta­hrin­unni á Reykja­nesi.

Óttast stóran Brennisteinsfjallaskjálfta í kjölfar skjálftahrinunnar
Bláfjöll Óþægi­lega rólegt hefur verið í skjálfta­virkni milli Blá­fjalla og Kleif­ar­vatns og ótt­ast er að þar sé að magn­ast upp spenna í jarð­skorp­unni. Mynd: Shutterstock

Hóp­stjóri nátt­úru­vár­vökt­unar á Veð­ur­stofu Íslands ráð­leggur fólki á Reykja­nesi og höf­uð­borg­ar­svæð­inu að tryggja „að það sé ekk­ert sem getur dottið ofan á börnin okkar, eða dottið ofan á okkur þegar við sofum“.

Almanna­varna­deild Rík­is­lög­reglu­stjóra hefur lýst yfir hættu­stigi á Reykja­nesi og höf­uð­borg­ar­svæð­inu vegna hrin­unnar.

Bæði eru líkur á áfram­hald­andi eft­ir­skjálftum í hrin­unni á Reykja­nesskaga og svo mögu­leiki á því að svo­kall­aður Brenni­steins­fjalla­skjálfti geti orðið í kjöl­farið.

„Það sem er óþægi­legt í öllu þessu er að svæðið á milli Kleif­ar­vatns og Blá­fjalla hefur verið svo til skjálfta­laust allt síð­asta ár. Og við vitum að þar hafa stærstu skjálft­arnir komið, allt að 6,5, svo­kall­aðir Brenni­steins­fjalla­skjálftar,“ segir Kristín Jóns­dóttir, hóp­stjóri nátt­úru­vár­vökt­un­ar­innar, í sam­tali við hádeg­is­fréttir RÚV. 

„Síðasti slíkur skjálfti var 1968 og við vitum að þar geta komið ennþá öfl­ugri skjálftar heldur en við höfum verið að mæla í morgun og það er spurn­ing hvernig aðdrag­and­inn að slíkum skjálfta verður. Ætli hann komi svona ófor­var­andis, eða í kjöl­far svona hrinu eins og við erum að sjá núna? Þannig að því miður þá held ég að við þurfum að búa okkur undir að það sé áfram­hald­andi óstöð­ug­leiki alla­vega næstu daga.“

Engar skýrar vís­bend­ingar eru um að hraun­rennsli sé á leið upp á yfir­borðið vegna skjálft­anna sem áttu upp­tök sín nærri Fagra­dals­fjalli, skammt frá Grinda­vík, þar sem ótt­ast hefur verið að eld­gos sé yfir­vof­andi vegna skjálfta­virkni síð­ustu miss­erin. Skjálft­arnir í dag hafa verið snið­geng­is­skjálftar, þar sem flekar nudd­ast saman, frekar en gliðn­un­ar­skjálftar sem opna jarð­skorpuna fyrir kviku.

Klukkan 12.37 í dag kom 43. jarð­skjálft­inn yfir 3 að stærð, þá 5 að stærð sam­kvæmt frum­nið­ur­stöðum, 5,7 kíló­metrum norð­austan við Krýsuvík, eða við Kleif­ar­vatn. 

Að sögn Krist­ínar voru flestir skjálft­arnir í morgun á um 7 kíló­metra dýpi. Meld­ingar um nýja gufu­bólstra og gas­út­streymi hafa borist Veð­ur­stof­unni, meðal ann­ars á Hösk­uld­ar­völlum, en talið er að þeir hafi verið til staðar áður. „Við erum ekki með neitt í hönd­unum á þess­ari stundu um að jarð­hita­virkni hafi auk­ist,“ segir hún.

Farið verður yfir stöð­una með Almanna­vörnum í fram­hald­inu og metin hætta á áfram­hald­andi skjálfta­virkni. „Við þurfum að gera ráð fyrir því að það sé óstöð­ug­leiki núna á þessu svæði,“ segir Kristín.

Skjálftum í Brenni­steins­fjöllum er lýst í ann­álum sem birtir eru á vef Jarð­vís­inda­stofn­unar Háskóla Íslands, sem Páll Ein­ars­son jarð­fræð­ingur tók saman vegna skjálfta­hrin­unnar á Reykja­nesskaga.

Þar segir frá skjálfta nærri Brenni­steins­fjöllum árið 1929:

„Hinn 23. júlí varð stærsti skjálfti sem vitað er að hafi orðið á Reykja­nesskaga. Upptök hans voru nálægt Brenni­steins­fjöllum, lík­lega á hinu svo­kall­aða Hval­hnúk­s­mis­gengi. Stærðin var 6, 3 og skjálft­inn fannst víða um land og olli umtals­verðu tjóni í Reykja­vík og nágrenni.“

Öðrum skjálfta, árið 1968, er þannig lýst: „Jarð­skjálfti af stærð­inni 6,0 varð 5. des­em­ber og átti hann upp­tök í Brenni­steins­fjöllum, lík­lega á Hval­hnúk­s­mis­geng­inu, líkt og skjálft­inn 1929.  Brot­lausn hans sýnir að hann varð vegna hægri handar snið­geng­is­hreyf­inga á mis­gengi með N-S stefnu. Skjálft­inn fannst víða og olli minni­háttar tjóni í Reykja­vík.“

Grjót­hrunGrjót hefur hrunið úr fjöllum á Reykja­nesi og hvítir gufustrókar á jarð­hita­svæðum hafa sést á svæð­inu. Áhöfn á þyrlu Land­helg­is­gæsl­unnar flaug yfir Reykja­nes til að kanna aðstæður.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Eldgos við Fagradalsfjall

Mest lesið

Hildur segir tillögu um bókasöfn hafa verið óheppilega orðaða
6
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár