Geysir gjaldþrota: „Allt tímabilið hefur einkennst af misvísandi upplýsingum“

Öllu starfs­fólki fata­verslana Geysis hefur verið sagt upp. Starfs­fólki var tilkynnt á starfsmanna­fundi um að félagið væri nú orðið þrotabú. „Allt tímabilið hefur einkennst af misvísandi upplýsingum um þróun veirunnar,“ segir framkvæmda­stjórinn í bréfi til starfs­manna.

Stofnandi og framkvæmdastjóri Geysis
Stofn­andi og fram­kvæmda­stjóri Geysis Jóhann Guð­laugs­son hefur rekið versl­un­ina frá 2007. Mynd: Laimonas Dom

„Kæra starfs­fólk, ég þarf því miður að tilkynna uppsögn allra starfs­manna Arctic Shopping ehf,“ sagði í bréfi frá framkvæmda­stjóra Geysis-verslan­anna á sunnudags­kvöldinu. Starfs­menn voru boðaðir á starfsmanna­fund daginn eftir. Þeim var sagt að leitaði yrði að fjár­festum og reynt að leysa úr málunum. En ekkert varð úr. Á starfsmanna­fundinum, sem haldinn var í Geysis­versluninni á Skólavörðu­stíg í gærkvöldi, voru starfs­menn hvattir til þess að skrá sig þegar í stað á atvinnu­leysis­bætur. 

Í bréfi til starfs­fólks kenndi Jóhann Guðlaugsson, stofnandi og framkvæmda­stjóri, covid-faraldrinum og upplýsinga­gjöf stjórn­valda um hvernig fór fyrir Geysi en Jóhann ræddi meðal annars um áhrif Covid á reksturinn við Stundina í fyrra.  „Arctic Shopping hefur glímt við mikla rekstrar­örðugleika frá því að Covid skall á. Allt tímabilið hefur einkennst af misvísandi upplýsingum um þróun veirunnar, sótt­vörnum, mögulegum styrkjum eða einhvers konar brúar­lánum. Fullkomin óvissa hefur verið allan þennan tíma. Óvissan minnkar hins vegar hratt með lækkandi sjóðstöðu og  nú er staðan orðin skýrari,“ segir hann í bréfinu til starfs­fólks. 

Verslanir Geysis eru nú lokaðar. Þær voru ein af tákn­myndum velgengni Íslendinga í ferða­þjónustu. Geysir hóf starfsemi árið 2007 við frægustu náttúru­perlu landsins, Geysi í Haukadal, og hafði áður en yfir lauk tekið upp hönnun hágæða tísku­fatnaðar.

Þrátt fyrir að hafa kynnt 92 milljóna króna hagnað árið 2018, með 1,6 milljarða króna veltu, og yfir 100 milljóna króna hagnað árið áður, er Geysir - Arctic Shopping - með alla sjóði uppurna. Nú er félagið þrotabú.

Erfið­leikar félagsins hófust hins vegar ekki árið 2020. Þegar nánar er að gáð tapaði móður­félag Geysis­verslananna, EJ eignarhalds­félag ehf, sem er í 100% eigu Jóhanns Guðlaugs­sonar, 247 milljónum króna árið 2019. Þar af var stærsti hlutinn, 225 milljónir króna, afskriftir á viðskipta­vild, óefnislegri eign sem fylgdi félaginu sem rak verslun Geysis í Haukadal. Samtengt óefnislegri eign fékk móður­félagið lán frá Lands­bankanum upp á hálfan milljarð, sem greiða þarf af um 114 milljónir króna á ári. Þær afborganir virðast hafa verið leystar með skuldum við tengda aðila, sem komnar voru í 467 milljónir króna árið 2019.

Í síðasta ársreikningi móður­félagsins er varað við því sem koma skyldi. „Félagið hefur ekki orðið varhluta af verulegri fækkun ferða­manna til Íslands. Félagið á tvö rekstrar­félög sem sérhæfa sig í sölu til erlendra ferða­manna og hafa tekjur félagsins hrunið á árinu 2020. Félagið hefur fækkað starfs­mönnum í kjölfar Covid og fengið frystingu á lánum. Viðræður standa yfir við viðskipta­bankann um endur­skipulagningu á lánum félagsins.“

Í bréfi sínu til starfs­manna á sunnudag sagðist Jóhann framkvæmda­stjóri leita að frekari fjár­mögnun næstu daga.

Samkvæmt heimildum Stundarinnar hafa ekki allir starfs­menn fengið greidd full laun fyrir síðasta mánuð. „Við þurftum að fresta útborgun launa síðastliðinn föstudag en með tekjum helgarinnar munum við að öllum líkindum getað greitt laun á morgun,“ sagði Jóhann á sunnudag í bréfinu, þar sem hann boðaði að lokað yrði í öllum verslunum og að lager yrði einnig lokaður. 

„Vin­sam­leg­ast stað­festið mót­töku á upp­sögn“
Jóhann Guð­laugs­son
í tölvu­pósti til starfs­manna

Ekki náðist í Jóhann Guðlaugsson framkvæmda­stjóra vegna málsins í morgun. Í verslunum Geysis á Skólavörðu­stíg er nú komið að lokuðum dyrum og óljóst hvernig fer fyrir inneignum viðskipta­vina og greiðslum til starfs­fólks fyrir uppsagnar­frest.

„Vinsamlegast stað­festið móttöku á uppsögn með því að svara þessum tölvu­pósti,“ sagði Jóhann í lokaorðum bréf síns til starfs­manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár