Vonar að fólk fari ekki að flýja Seyðisfjörð

Hólm­fríður Guð­jóns­dóttir, vara­for­maður Slysa­varn­ar­deild­ar­innar Ránar á Seyð­is­firði, segir heima­menn rólega en kvíðna vegna ham­far­anna fyrir austan. Aur­skriða féll á hús í nótt og reif það af grunni sínum. Rignt hefur næsta lát­laust í tíu daga eystra. Jólin eru komin í bið.

Vonar að fólk fari ekki að flýja Seyðisfjörð
Breiða­blik gjör­ó­nýtt Eins og sjá má er húsið gjör­ó­nýtt eftir að skriðan hreif það með sér. Mynd: Aðsent

Tvær aur­skriður féllu í nótt í ausandi vatns­veðri á Seyð­is­firði. Önnur þeirra lenti á hús­inu Breiða­bliki og hreif það af grunni sínum 50 metra vega­lengd. Húsið er gjör­ó­nýtt eftir. Hólm­fríður Guð­jóns­dóttir, vara­for­maður Slysa­varn­ar­deild­ar­innar Ránar á Seyð­is­firði, segir heim­menn bregð­ast við af æðru­leysi en séu kvíðnir. Hún hefur eilitlar áhyggjur af því að fólk muni hugsa sig tvisvar um varð­andi áfram­hald­andi búsetu í bænum, fólk sem á þar kannski ekki rætur. Jólahald mun þá eitt­hvað raskast. „Það liggur við að maður sé búin að setja jólin á hold.“

Hólm­fríður var komin út í björg­un­ar­sveit­ar­hús þegar blaða­maður náði í hana í síma. „Ég held að fólk sé rólegt yfir þessu öllu saman en kvíðið. Það er alveg ausandi rign­ing hérna ennþá og ekki farið að birta almenni­lega. Það verður ekki fyrr en í birt­ingu sem við sjáum almenni­lega hvernig ástandið er. Það er bara spurn­ing hvernig þetta endar.“

Húsið Breiða­blik við Aust­ur­veg sem aur­skriðan hreif með sér um klukkan þrjú í nótt og bar um 50 metra leið er gjör­ó­nýtt. Hólm­fríður segir að eig­andi húss­ins, sem er erlend kona, hafi ekki verið á Seyð­is­firði og eng­inn hafi verið í hús­inu. „Það er bara gjör­ó­nýtt, allt brotið og bramlað.“

Hólm­fríður segir ljóst að eitt­hvað tjón hafi orðið á öðrum húsum í bænum, fyrir utan það tjón sem hafi orðið á gróðri og öðrum eignum. „Menn hafa bara ekk­ert kom­ist í að skoða þetta á meðan ástandið er eins og það er. Það flæðir inni í kjall­ara og inn í mörg hús í þessu úrhelli hérna.“

Rignt sleitulaust í tíu daga

Úrkoman byrj­aði 10. des­em­ber síð­ast­lið­inn og hefur rignt næsta sleitu­laust síðan þá að sögn Hólm­fríðar. „Það hefur ekki rignt svona lengi hérna í mínu minni, við höfum kannski fengið rign­ingu í tvo eða þrjá daga en ekki svona.

„Ég held að eng­inn hafi getað búist við svona mik­illi rign­ingu“

Skriðu­hætta er þekkt í Seyð­is­firði en Hólm­fríður segir þó að eng­inn sé und­ir­bú­inn undir ham­farir sem þessar. „Ekki eins og þetta, það hafa komið spýjur niður hlíðar hér áður en ekk­ert í lík­ingu við þetta. Það er bara hálf hlíðin að koma niður. Ég held að eng­inn hafi getað búist við svona mik­illi rign­ingu.“

Að sögn Hólm­fríðar hafa um 120 manns þurft að yfir­gefa hús sín vegna skriðu­hætt­unnar. Allt það fólk hefur fengið gist­ingu á Seyð­is­firði hafi það æskt þess. „Fólk hefur verið boðið og búið að lána húsin sín standi þau tóm, fólk hefur gist á Hótel Snæfelli og Rauði kross­inn opn­aði fjölda­hjálp­ar­stöð í íþrótta­hús­inu þar sem fólk getur gist og fengið að borða. Það hjálp­ast allir að og halda um hvern annan.“

Sýnir mikilvægi gangna undir Fjarðarheiði

Fjarð­ar­heiði er eina leiðin á landi sem liggur á Seyð­is­fjörð og er oft á tíðum far­ar­tálmi. Seyð­firð­ingar hafa enda bent á það árum saman að svo sé og kallað eftir jarð­göngum. Hólm­fríður segir að leið­inda­færi sé á heið­inn núna, slydda og leið­inda skyggni. Hún sé þó ekki far­ar­tálmi hvað varðar aðföng eða mann­skap til aðstoðar að svo stöddu. „Við þurfum engu að síður göng hingað, það er ekki hægt að búa við þetta,“ segir Hólm­fríður.

Björg­un­ar­sveit­inn Jökull af Héraði hefur sent mann­skap niður á Seyð­is­fjörð til aðstoðar við heima­menn í Björg­un­ar­sveit­inni Ísólfi. Kallað verður á fleiri ef til­efni er til. Verkefni sveit­anna verður að reyna að hreinsa til og bjarga þeim verð­mætum sem hægt er að bjarga, verði mögu­legt að fara um svæðið vegna skriðu­hættu.

„Það liggur við að maður sé búin að setja jólin á hold“

Þrátt fyrir ástandið segir Hólm­fríður að heima­menn taki stöð­unni með jafn­að­ar­geði. „Getur maður nokkuð gert annað? Það þýðir ekk­ert að verða brjál­aður eða tapa sér yfir þessu, það verður bara að taka því sem að höndum ber. Ég vona bara að fólk fari ekki að flýja héðan vegna þessa. Ég hef kannski svolitlar áhyggjur af því, að fólk hugsi sig tvisvar um, fólk sem á ekki rætur hingað. Það er auð­vitað ekki skemmti­leg til­hugsun að þurfa að rýma húsin sín kannski ítrekað og vita ekk­ert hvað verður um þau, vera alveg bjarg­ar­laus. En við nátt­úru­lega ráðum ekki við nátt­úr­una, það er bara málið, mann­inum tekst aldrei að temja nátt­úr­una.“

Nú stytt­ist til jóla og ástandið á Seyð­is­firði mun setja mark sitt á jóla­hald að mati Hólm­fríðar. „Það liggur við að maður sé búin að setja jólin á hold. Mér finnst það svo­lítið stemn­ingin en ég held nú samt að við höldum upp á jólin, þau koma alltaf þó þau verði kannski aðeins öðru vísi en vana­lega vegna þessa.“

Gríð­ar­legar ham­farirSvo sem sjá má hefur skriðan verið mjög stór.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár