COVID-19 geti valdið heyrnartapi

Vísinda­menn við University College í Lundúnum hafa birt niður­stöður nýrra rannsókna sem benda til þess að COVID-19 geti valdið skyndi­legum og hugsanlega varanlegum heyrnar­missi.

Slík tilvik hafa komið upp í nokkrum löndum en þetta er í fyrsta sinn sem nákvæm greining fer fram á ástæðunum sem liggja að baki. Þeir birtu niður­stöður sínar í BMJ, British Medical Journal, sem er eitt elsta og virtasta vísindarit heims á sviði lækna­vísinda.

Þar segir meðal annars að mjög auðvelt sé fyrir bæði lækna og sjúklinga að yfirsjást að heyrnartap hafi átt sér stað á gjörgæslu þar sem margt annað hafi forgang og það taki tíma fyrir fólk að átta sig á að heyrnin snúi ekki aftur með sama hætti og eftir hefð­bundna flensu. Fyrsti breski sjúklingurinn, sem missti heyrn að hluta vegna COVID-19, var skoðaður af höfundum rann­sóknarinnar og tókst þeim að útiloka allar aðrar mögulegar ástæður en veiruna. 

Maðurinn er 45 ára gamall og með undir­liggjandi astma. Hann var settur í öndunarvél á gjörgæslu­deild eftir að hann veiktist alvarlega af COVID-19 og var meðal …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Þekking

Þekking

Alheimurinn í nýju og skarpara ljósi

Nýjasta stórvirki mann­kynsins, James Webb geim­sjónaukinn, er ætlað að skoða myndun fyrstu stjarna og vetrar­brauta alheimsins. Hvar og hvenær kviknaði fyrsta ljósið í alheiminum? Hvernig verða stjörnur og sólkerfi til? Hvernig mynduðust vetrar­brautirnar? Hvaða eðlis- og efna­fræðilega eigin­leika þurfa plánetur og sólkerfi að hafa til að geyma líf? Fyrstu myndir sjón­aukans eru komnar. „Þær voru enn skýrari, skarpari og glæsilegri en ég átti von á,“ segir Sævar Helgi Bragason.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár