Stuðningur við nýja stjórnarskrá eykst

Sex af hverjum tíu lands­mönnum telja „mik­il­vægt að Íslend­ingar fái nýja stjórn­ar­skrá á yfir­stand­andi kjör­tíma­bili“. Konur styðja helst nýja stjórn­ar­skrá, ásamt yngsta hópnum og þess elsta.

Stuðningur við nýja stjórnarskrá eykst
Mót­mæla­fundur Lög­fræð­ing­ur­inn Katrín Odds­dóttir er einn for­sprakka átaks til þess að vekja athygli á því að frum­varp stjórn­laga­ráðs verði að stjórn­ar­skrá lýð­veld­is­ins. Mynd: Pressphotos

Ný könnun MMR sýnir að auk­inn stuðn­ingur er við að Íslend­ingar fái „nýja stjórn­ar­skrá“.

Þannig segja 40% svar­enda að að það sé „mjög mik­il­vægt“ að „Íslend­ingar fái nýja stjórn­ar­skrá á yfir­stand­andi kjör­tíma­bili. Þetta er aukn­ing úr 32% frá því í októ­ber í fyrra.

Til við­bótar styðja 19% nýja stjórn­ar­skrá með þeim orðum að það sé „frekar mik­il­vægt“. 

Á móti telja 17% lands­manna „mjög lít­il­væg­legt“ og 8% „frekar lít­il­væg­legt“ að þjóðin fái nýja stjórn­ar­skrá, en 17% voru á báðum áttum og svör­uðu „bæði og“.

Konur eru mun lík­legri en karlar til að styðja nýja stjórn­ar­skrá. Tveir þriðju þeirra styðja hana, en helm­ingur karla. Fyrir ári voru hlut­föllin þau að 56% kvenna studdu nýja stjórn­ar­skrá en 49% karla. 

Þá er áber­andi að bæði elsti hóp­ur­inn, 68 ára og eldri, og yngsti hóp­ur­inn, 18 til 29 ára, eru meira áfram um að Íslend­ingar fái nýja stjórn­ar­skrá. Þannig sögð­ust 50% þeirra elstu telja það mjög mik­il­vægt, en 46% þeirra yngstu. Aðeins 13% yngsta hóps­ins taldi það frekar eða mjög lít­il­væg­legt.

2.043 ein­stak­lingar svör­uðu könnun MMR. Úrtakið er valið handa­hófs­kennt úr hópi álits­gjafa MMR. Könnunin var fram­kvæmd 10. til 23. sept­em­ber síð­ast­lið­inn.

Stuðn­ingur við nýja stjórn­ar­skráGrafið sýnir þróun á stuðn­ingi frá sept­em­ber 2017.
Stuðn­ingur eftir aldri og búsetuMinnstur áhugi á nýrri stjórn­ar­skrá er meðal karla, mið­aldra fólks og lands­byggð­ar­búa. Stuðn­ings­menn eru engu að síður í meiri­hluta í öllum hóp­unum.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnarskrármálið

„Ég er oft á milli steins og sleggju þegar kemur að viðkvæmum málum“
FréttirStjórnarskrármálið

„Ég er oft á milli steins og sleggju þegar kemur að við­kvæmum málum“

Þor­steinn Pálm­ars­son, eig­andi Allt-af ehf, fyr­ir­tæk­is­ins sem fjar­lægði vegg­lista­verkið „Hvar er nýja stjórn­ar­skráin?“ seg­ist oft upp­lifa sig á milli steins og sleggju í deilu­málum milli þeirra sem mála á veggi og þeirra sem biðja um að verkin verði fjar­lægð. Hann vann við að hreinsa til eftir mót­mæli í Bús­á­halda­bylt­ing­unni.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár