Almenningshlutafélagið Festi keypti fyrirtæki af félagi sem forstjórinn stýrði

Bæði Eggert Þór Krist­ó­fers­son, for­stjóri almenn­ings­hluta­fé­lags­ins Festi, og stjórn­ar­for­mað­ur­inn, Þórður Már Jóhann­es­son, tengj­ast Bjarna Ármanns­syni fjár­festi nánum böndum. Festi ákvað að kaupa orku­sölu­fyr­ir­tæki af Bjarna og með­fjár­festum hans fyrir rúm­lega 722 millj­ónir. Eggert Þór hefur ekki viljað svara spurn­ingum um málið.

Almenningshlutafélagið Festi keypti fyrirtæki af félagi sem forstjórinn stýrði
Náinn sam­starfs­maður Bjarna Eggert Þór Krist­ó­fers­son, for­stjóri Festis, var náinn sam­starfs­maður og und­ir­maður Bjarna Ármanns­sonar um ára­bil, fyrst í Glitni og svo í fjár­fest­ing­ar­fé­lag­inu Sjáv­ar­sýn. Myndin var tekin þegar Festi keypti hlut í Íslenskri orku­miðlun í fyrra. Með Eggerti á mynd­inni er Magnús Júl­í­us­son, fram­kvæmda­stjóri íslenskrar orku­miðl­unar.

Almenn­ings­hluta­fé­lagið Festi, sem rekur N1 og Krónuna meðal ann­ars,  keypti orku­sölu­fyr­ir­tæki af fjár­fest­ing­ar­fé­lagi sem for­stjóri félags­ins, Eggert Þór Krist­ó­fers­son, stýrði um þriggja ára skeið á árunum 2008 til 2011. Fjár­fest­ing­ar­fé­lagið er í eigu Bjarna Ármanns­sonar, fjár­festis og fyrr­ver­andi banka­stjóra Glitnis, og heitir Sjáv­ar­sýn.

Eggert Þór var um ára­bil einn nán­asti sam­starfs­maður Bjarna og starf­aði hann sem fram­kvæmda­stjóri eigna­stýr­ingar Glitnis á meðan Bjarni var for­stjóri bank­ans. Íslenskir líf­eyr­is­sjóðir, og þar með við­skipta­vinir þeirra sem eru greið­endur iðgjalda, eiga meiri­hluta hluta­fjár í Festi.

Orku­sölu­fyr­ir­tækið sem um ræðir heitir Íslensk orku­miðlun og átti fjár­fest­ing­ar­fé­lag Bjarna 32,5 pró­sent hlut í fyr­ir­tæk­inu þar til Festi ákvað að kaupa hann og aðra hlut­hafa þess út í mars á þessu ári. Aðrir hlut­hafar voru fram­kvæmda­stjór­inn Magnús Júl­í­us­son, Kaup­fé­lag Skag­firð­inga og Ísfélag Vest­manna­eyja. Festi átti fyrir þessa ákvörðun um yfir­töku félags­ins 15 pró­senta hlut í Íslenskri orku­miðlun sem keyptur var í mars 2019. 

Kaup­verðið á þessum 85 pró­senta hluti var 722 millj­ónir króna. Greitt var fyrir hluta­bréfin með bréfum í Festi og með reiðufé. 

Vinur og með­fjár­festir BjarnaÞórður Már Jóhann­es­son, stjórn­ar­for­maður almenn­ings­hluta­fé­lags­ins Festis, er vinur og við­skipta­fé­lagi Bjarna Ármanns­sonar til margra ára.

Stjórnarformaðurinn viðskiptafélagi Bjarna

Auk tengsla for­stjóra Festi við stærsta hlut­hafa Íslenskrar Orku­miðl­unar, Bjarna Ármanns­son, er stjórn­ar­for­maður Festi, Þórður Már Jóhann­es­son, einnig tengdur honum við­skipta­böndum.

Þórður Már og Bjarni hafa í gegnum árin stundað fjár­fest­ingar saman og áttu meðal ann­ars saman félagið Kríu sem stund­aði fram­virk hluta­bréfa­við­skipti með bréf í FL Group, stærsta hlut­hafa Glitnis, fyrir banka­hrunið 2008. Þórður Már sagði við DV árið 2009 að ekk­ert væri athuga­vert við fjár­fest­ingar hans og Bjarna í umræddu félagi, þeir hefðu þekkst lengi og væru vinir. 

„Þar mun verða farið yfir kaup Festi á Íslenskri Orku­miðlun.“

Í fjöl­miðlum hefur enn­fremur komið að Bjarni hafi ráðið Þórð Má til Kaup­þings og síðar Straums þegar hann starf­aði í þeim fjár­mála­fyr­ir­tækjum.

Eggert vill ekki svara spurningum

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, vakti athygli á þessum við­skiptum Festi með Íslenska orku­miðlun á Facebook-síðu sinni fyrir skömmu í tengslum við umræðu um það sem Ragnar Þór telur vera spill­ingu í við­skiptum félaga sem eru í eigu íslenskra líf­eyr­is­sjóða. Blogg­ar­inn Guð­mundur Hörður vakti i kjöl­farið athygli á orðum Ragnars á vef Stund­ar­innar.

Meðal stærstu hlut­hafa Festi eru Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna Gildi – líf­eyr­is­sjóður og Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins sem sam­tals eiga um 25 pró­senta hlut í félag­inu. 

Stundin sendi Eggerti Þór Krist­ó­fers­syni spurn­ingar um þessi við­skipti. Eggert Þór hefur ekki viljað svara spurn­ing­unum. For­stjór­inn vísar til þess að upp­gjör Festi verði kynnt síðar í dag og að þar verði að finna upp­lýs­ingar um þessi við­skipti. „Festi hf. er almenn­ings­hluta­fé­lag sem er skrá á markað í Nasdaq OMX og mun síðar í dag birta upp­gjör fyrir 2. árs­fjórð­ung 2020. Þar mun verða farið yfir kaup Festi á Íslenskri Orku­miðlun eins og lofað var á aðal­fundi félags­ins sem haldin var 23. mars 2020 þar sem allir hlut­hafar sam­þykkti þessi kaup. Þannig að til að tryggja jafn­ræði fjár­festa og fara að lögum þá verður þú að bíða eftir þessum upp­lýs­ingum þangað til síðar í dag.“

Meðal þess sem Stundin spurði Eggert að var hvort hann teldi eðli­legt að hann sem fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri fjár­fest­ing­ar­fé­lags Bjarna Ármanns­sonar kæmi að því að láta félag sem hann stýrir kaupa hluta­bréf af þessu sama félagi. Einnig spurði Stundin hann að því hvernig verð­matið á fyr­ir­tæk­inu hefði farið fram og hvort til greina hefði komið að stofna eigið orku­sölu­fyr­ir­tæki. 

Þriggja ára fyrirtæki með tvo starfsmenn

Eitt af því sem vekur athygli í við­skipt­unum er að Íslensk orku­miðlun er fyr­ir­tæki sem stofnað var fyrir ein­ungis þremur árum og er með tvo starfs­menn í vinnu sam­kvæmt árs­reikn­ingi félags­ins fyrir árið 2018 og einnig sam­kvæmt heima­síðu þess. Um er að ræða fyr­ir­tæki sem er milli­liður í því að kaupa og selja raf­magn til fyr­ir­tækja og ein­stak­linga. Fyr­ir­tækið kaupir raf­magn á heild­sölu­mark­aði og selur það á smá­sölu­mark­aði. 

Ein af spurn­ing­unum sem Stundin spurði Eggert Þór að var af hverju Festi stofn­aði ekki sitt eigið orku­fyr­ir­tæki í stað þess að kaupa fyr­ir­tæki með tvo starfs­menn og stutta rekstr­ar­sögu á þessu verði.

Íslensk orku­miðlun var sann­ar­lega með mikla tekju­aukn­ingu á árunum 2017 til 2018, fór úr 164 millj­ónum i 954 millj­ónir króna á milli, en ekki liggur fyrir hverjir við­skipta­vinir fyr­ir­tæk­is­ins eru eða voru. Að fyr­ir­tæk­inu standa félög sem stunda raf­magns­frekan rekstur, eins og til dæmis Kaup­fé­lag Skag­firð­inga. Eggert Þór svar­aði ekki spurn­ing­unni um hverjir helstu við­skipta­vinir Íslenskrar orku­miðl­unar væru. 

Félagið á nán­ast engar eignir, ef frá eru taldar við­skipta­kröfur vegna sölu á raf­magni; það á enga fast­eign og vinnu­tækin og hug­bún­að­ur­inn sem fyr­ir­tækið á eru bók­færð í árs­reikn­ingi þess á tæp­lega 5 millj­óna króna.

Ein af spurn­ing­unum sem eftir situr er því hvað það er sem Festi er að borga 722 millj­ónir króna fyrir því þetta er ekki ljóst út frá síð­asta birta árs­reikn­ingi félags­ins. Einn mögu­leiki er kunn­átta og færni starfs­mann­anna tveggja á sviði orku­sölu og annar mögu­leiki eru við­skipta­sam­bönd og mögu­lega samn­ingar sem fyr­ir­tækið hefur gert við við­skipta­vini þess. 

En skýr­ingar Festi á þessum við­skiptum munu vænt­an­lega koma fram þegar félagið kynnir upp­gjör sitt eins og Eggert Þór segir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár