Þorvaldarmálið: Orð ráðuneytisins og Bjarna benda til ábyrgðar skrifstofustjórans Tómasar

Orð Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra og fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins benda til að starfs­menn skrif­stofu efna­hags­mála hafi tekið ákvörð­un­ina um að leggj­ast gegn ráðn­ingu Þor­valdar Gylfa­sonar ein­hliða. Tómas Brynj­ólfs­son, skrif­stofu­stjóri deild­ar­innar, vill ekki tjá sig um málið.

Þorvaldarmálið: Orð ráðuneytisins og Bjarna benda til ábyrgðar skrifstofustjórans Tómasar
Gaf ekki skip­un­ina en lýsir yfir ábyrgð Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra segir í yfir­lýs­ingu að hann beri end­an­lega ábyrgð á því að ráðu­neytið lagð­ist gegn því að Þor­valdur Gylfason hag­fræð­ingur fengi rit­stjóra­starf hjá sam­nor­rænu hag­fræði­tíma­riti.

Orð Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra, og orða­lag í svörum fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins, um ábyrgð­ina á því að ráðu­neytið lagð­ist gegn ráðn­ingu Þor­valdar Gylfa­sonar sem rit­stjóra fræði­tíma­rits­ins Nordic Economic Policy Review benda til þess að ákvörð­unin um and­stöð­una við Þorvald hafi verið tekin ein­hliða á skrif­stofu efna­hags­mála í ráðu­neyt­inu.

Skrif­stofu­stjóri þeirrar deildar ráðu­neyt­is­ins er Tómas Brynj­ólfs­son. Hann er yfir­maður starfs­manns­ins, Ólafs Heiðars Helga­sonar, sem sendi tölvu­póstana sem verið hafa til umfjöll­unar í fjöl­miðlum þar sem ráðu­neytið lýsti sig and­vígt því að Þor­valdur yrði ráð­inn rit­stjóri tíma­rits­ins. Ástæðan fyrir því að ráðu­neytið taldi Þorvald ekki henta í starfið eru afskipti hans af stjórn­málum á Íslandi. Ólafur Heiðar er sér­fræð­ingur á skrif­stofu efna­hags­mála í ráðu­neyt­inu og und­ir­maður Tómasar. 

 „Af þessu til­efni minni ég á að starfs­menn ráðu­neyta starfa í umboði og á ábyrgð ráð­herra. “

Vef­mið­ill­inn Kjarninn greindi fyrst fjöl­miðla frá mál­inu fyrr í vik­unni og hefur það vakið mikla athygli. 

Bjarni lýsir yfir endanlegri ábyrgð

Bjarni Bene­dikts­son tjáði sig um málið í fyrsta sinn fyrr í dag með langri færslu á Facebook og lýsti hann yfir end­an­legri póli­tískri ábyrgð sinni á mál­inu.

Bjarni segir meðal ann­ars í yfir­lýs­ingu sinni: „Af þessu til­efni minni ég á að starfs­menn ráðu­neyta starfa í umboði og á ábyrgð ráð­herra. Þótt ekki séu öll sam­skipti borin undir mig ber ég á þeim ábyrgð og í þessu til­viki end­ur­spegl­ast vilji minn um að til­nefna hvorki né sam­þykkja Þorvald Gylfason til þess­ara starfa.“

„Þetta er rétt - hann nýtur ekki stuðn­ings okkar.“

Orðalag Bjarna um að „öll sam­skipti“ séu „ekki“ borin undir hann bendir til þess að hann hafi ekki vitað um skoð­ana­skiptin um Þorvald Gylfason áður en þau fóru fram og að hann  hafi ekki gefið skipun um þau, jafn­vel þó hann sé sam­mála því að Þor­valdur hafi ekki hentað í starfið vegna stjórn­mála­skoð­ana hans. 

Tómas vill ekki tjá sig

Vill ekki tjá sigTómas Brynj­ólfs­son, yfir­maður starfs­manns­ins sem sendi tölvu­s­póstana, vill ekki tjá sig um málið við Stundina.

Í tölvu­póst­unum sem liggja fyrir í mál­inu kemur skýrt fram að Ólafur Heiðar er ekki bara að lýsa sinni eigin afstöðu þegar and­stöðu við val Þor­valdar sem rit­stjóra er lýst. Enda hefur Ólafur Heiðar ekki umboð til slíks þar sem hann er ekki yfir­maður á þeirri deild þar sem hann starfar í ráðu­neyt­inu og und­ir­maður í ráðu­neyti tekur vit­an­lega ekki slíkar ákvarð­anir einn síns liðs án þess að ráð­færa sig við yfir­mann eða yfir­menn.

Ólafur Heiðar segir hins vegar ítrekað „við“ og „okkar“ þegar hann er að lýsa afstöðu fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins til Þor­valdar og af hverju hann sé ekki hæfur til að gegna starf­inu að mati ráðu­neyt­is­ins. „Þetta er rétt - hann nýtur ekki stuðn­ings okkar,“ segir hann meðal ann­ars í einum tölvu­póst­inum. 

Þegar Ólafur Heiðar sagði „okkar“ og „við“ í tölvu­póst­unum, til hverra var hann þá að vísa? 

Ólafur Heiðar hefur neitað að ræða málið við fjöl­miðla. Í við­tali við Frétta­blaðið í gær sagði hann: „Ég er háður þagn­ar­skyldu um allt sem að ég geri í raun­inni og má ekki ræða það við fjöl­miðla.“

Tómas Brynj­ólfs­son, skrif­stofu­stjóri efna­hags­mála í fjár­mála­ráðu­eyt­inu og yfir­maður Ólafs Heiðar, vill heldur ekki tjá sig um málið þegar Stundin leitar eftir því. „Þú verður bara að hringja í hana Elvu [Björk Sverr­is­dóttur upp­lýs­inga­full­trúa ráðu­neyt­is­ins].“ Aðspurður um hvort hann vilji ekki tjá sig um málið segir Tómas að það sé best að upp­lýs­inga­full­trú­inn geri það. 

Elva Björk Sverr­is­dóttir segir í sam­tali við Stundina að hún geti ekki svarað því í síma með hvaða hætti ákvarð­ana­takan í mál­inu fór fram og hvort Tómas Brynj­ólfs­son hafi tekið ákvörð­un­ina um að leggj­ast gegn ráðn­ingu Þor­valdar án þess að hafa ráð­fært sig um það við Bjarna Bene­dikts­son eða aðra yfir­menn sína í ráðu­neyt­inu. „Ráð­ur­neytið stendur við það sem það hefur sagt um þetta mál,“ segir Elva og vísar í fyrri yfir­lýs­ingar þess í fjöl­miðlum. 

Of virkur í stjórn­málumSkýr­ingar starfs­manna ráðu­neyt­is­ins í tölvu­póst­unum voru þær að Þor­valdur Gylfason væri of virkur í stjórn­málum á Íslandi til að stýra hag­fræði­tíma­rit­inu.

Yfirstjórnin kom ekki að málinu

Eins og Kjarninn greindi frá þá kom það fram í svörum frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu um málið að ákvörð­unin um að leggj­ast gegn því að Þor­valdur fengi starfið var „ekki borin undir ráð­herra né aðra á skrif­stofu yfir­stjórnar ráðu­neyt­is­ins.“

Þetta svar er alveg skýrt um að ákvörð­unin um að leggj­ast gegn því að Þor­valdur fengi rit­stjóra­starfið var ekki borin undir Bjarna Bene­dikts­son, aðstoð­ar­mann hans Svan­hildi Hólm eða ráðu­neyt­is­stjór­ann, Guðmund Árnason, áður en und­ir­mað­ur­inn í ráðu­neyt­inu skrif­aði tölvu­póstana um Þorvald. 

Orð Bjarna sjálfs um að „öll sam­skipti“ séu ekki borin undir hann þó svo að hann sé end­an­lega ábyrgur fyrir því sem ráðu­neytið gerir renna svo frek­ari stoðum undir að tölvu­póst­sam­skiptin um Þorvald hafi ekki verið að und­ir­lagi Bjarna eða vegna skip­unar frá honum. 

Bjarni  lýsir hins vegar yfir póli­tískri ábyrgð sinni sem ráð­herra og yfir­maður þeirra sem báru ábyrgð á tölvu­póst­unum um Þorvald. Svo vill til að sú afstaða á  Þorvaldi sem fram kom í tölvu­póst­unum frá Ólafi Heiðari er sam­hljóða því mati Bjarna á honum sem hann lýsir í yfir­ýs­ingu sinni. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár