Covid hafði góð áhrif á listsköpunina

Mynd­lista­maðurinn Hjálmar Vestergaard varð fyrir áhrifum af frumum og bakteríum í verkum á nýrri sýningu.

Hjálmar Vestergaard Guðmundsson
Hjálmar Vestergaard Guð­munds­son Sækir inn­blástur nýrrar sýn­ingar í heim frumna og bakt­ería. Mynd: Heiða Helgadóttir

Um þessar mundir sýnir myndlistar­maðurinn Hjálmar Vestergaard Guðmundsson verk sín í Litla Gallerí við Strand­götuna í Hafnar­firði. Á sýningunni sem nefnist „Í vömbinni“ má sjá verk sem Hjálmar hefur unnið síðustu mánuði en þau eru litrík og lífræn efnis­kennd einkennir þau. Myndefnið sækir hann í hinn örsmáa heim frumna og baktería en Hjálmar segir ástandið í samfélaginu síður en svo hafa haft slæm áhrif á list­sköpunina. 

„Ég er fæddur í Reykjavík árið 1989 og er uppalinn í Selja­hverfinu, en hef líka sterk tengsl við Færeyjar þar sem móðir mín er þaðan og ég á fjölda ættingja sem búa þar,“ segir myndlistar­maðurinn Hjálmar Vestergaard Guðmundsson, sem hefur vakið athygli undan­farið fyrir litrík og falleg listaverk.

„Ég er svo heppinn að mamma á hús í Færeyjum. Ég reyni að fara þangað reglulega og eyða smátíma þar að sumri til í fegurðinni og einfald­leikanum sem mér finnst einkenna eyjarnar.” Hjálmar segir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár