3000 fræðimenn kalla eftir breyttu samfélagi í kjölfar faraldursins

Stundin, Le Monde, Boston Globe, The Guardian, Die Zeit og fleiri blöð birta saman yfir­lýs­ingu fræði­manna um allan heim sem kalla eftir vinnu­staðalýð­ræði og að öllum verði gef­inn réttur til atvinnu í ljósi for­dæma­lausra áskor­ana á sviði heil­brigðis, heil­brigð­is, lofts­lags- og stjórn­mála.

3000 fræðimenn kalla eftir breyttu samfélagi í kjölfar faraldursins
Heil­brigð­is­starfs­fólk Höfundar yfir­lýs­ing­ar­innar segja að hlusta þurfi á raddir starfs­fólks þegar komi að ákvarð­ana­töku innan vinnu­staða. Mynd: Landspítali / Þorkell Þorkelsson

Yfir 3000 fræði­menn frá 600 háskólum á heims­vísu skrifa undir yfir­lýs­ingu þar sem þeir sam­ein­ast um að benda á leið út úr Covid-19 efna­hag­skrepp­unni.

Stundin birtir yfir­lýs­ing­una ásamt 25 öðrum blöðum í 23 löndum. Fræði­menn­irnir kalla eftir því að dreg­inn verði lær­dómur af far­aldr­inum og reglur hag­kerfa end­ur­skrif­aðar með það fyrir augum að skapa lýð­ræð­is­legri og sjálf­bær­ari sam­fé­lög. Lagt er til að fyr­ir­tæki verði lýð­ræð­isvædd, vinna verði „afmark­aðsvædd“ og að umhverf­is­leg end­ur­reisn fari af stað, nú þegar mann­kynið stendur frammi fyrir for­dæma­lausum áskor­unum hvað varðar heil­brigði, lofts­lag og stjórn­mál.

Fræði­menn­irnir þrír sem lögðu drög að yfir­lýs­ing­unni, Isabelle Ferreras, Julie Batti­l­ana og Dominique Méda, allar konur, segja stuðn­ing­inn frá fræða­sam­fé­lag­inu vera ein­stakan. „Um hana hafa sam­ein­ast yfir 3000 fræði­menn frá 600 háskólum á heims­vísu, sem starfa víða á fræða­svið­inu frá hag­fræði, stjórn­mála­fræði, heim­speki og félags­fræði til stærð­fræði, lofts­lags­fræða og eðl­is­fræði,“ segja for­sprakk­arnir. „Þessir fræði­menn telja að núver­andi sam­fé­lags­mynd sé ekki sjálf­bær og rann­sóknir þeirra sýna af hverju. Þeir vilja hjálp­ast að við að benda á lausnir sem geta lagt grunn að lýð­ræð­is­legra og sjálf­bær­ara hag­kerfi og sam­fé­lagi.“

„Það er órétt­látt, ósjálf­bært og einnig hættu­legt fyrir sam­fé­lagið að skilja stefnu­mótun fyr­ir­tækja alfarið eftir í höndum hlut­hafa“

Fræði­menn­irnir segja að far­ald­ur­inn hafi varpað ljósi á stöðu vinn­andi fólks og að heil­brigði og aðhlynn­ing þeirra verst stöddu geti ekki ráð­ist af mark­aðs­öflum einum saman. Í því sam­hengi vilja þeir benda á að vinna fólks sé virði meira en launa og að starfs­fólk sé í raun fjár­festar í vinnu­stöðum sínum í krafti vinnu­fram­lags síns. Þrátt fyrir það hafi laun­þegar engan rétt til að stýra fyr­ir­tækjum sínum. „Það er órétt­látt, ósjálf­bært og einnig hættu­legt fyrir sam­fé­lagið að skilja stefnu­mótun fyr­ir­tækja alfarið eftir í höndum hlut­hafa,“ segir í til­kynn­ingu.

Þá hvetja fræði­menn­irnir til þess að litið verði á vinnu­fram­lag fólks í stærra sam­hengi. „Samfélög ættu að tryggja góða og gagn­lega vinnu fyrir alla sem hana vilja,“ segir í til­kynn­ing­unni. Loks kalla þeir eftir því að ríki skil­yrði stuðn­ing sinn við fyr­ir­tæki við það að þau sætti sig við stór­felldar breyt­ingar á við­skipta­mód­elum sínum. „Til við­bótar við það að mæta ströngum umhverfis- og sam­fé­lags­kröfum þurfa fyr­ir­tæki að skapa raun­veru­legt innra lýð­ræði. Aðeins með því að hlusta á raddir starfs­manna sam­hliða röddum hlut­hafa munu þarfir heild­ar­innar - sér í lagi umhverfis- og sam­fé­lags­þarfir - ná fram­gangi umfram hags­muni hlut­hafa einna.“

„Samfélög ættu að tryggja góða og gagn­lega vinnu fyrir alla sem hana vilja“

Allir 3000 stuðn­ings­menn yfir­lýs­ing­ar­innar segj­ast sann­færðir um að sam­fé­lög þurfi að gera stór­fellda stefnu­breyt­ingu og setja vinn­andi fólk (hjúkr­un­ar­fræð­inga, afgreiðslu­fólk, starfs­fólk í sorp­hirðu, bændur, kenn­arar meðal ann­ars) við borðið þar sem ákvarð­anir eru teknar. „Sem fræði- og vís­inda­menn lítum við á okkur sem banda­menn þeirra sem vilja breyt­ingar - verka­lýðs­fé­laga og fyr­ir­tækja, kjör­inna full­trúa, íbúa­sam­taka og borg­ara - sem vilja sjá heim­inn þró­ast í þessa átt,“ segja for­sprakk­arnir þrír.

Fjöl­miðl­arnir sem birta yfir­lýs­ing­una ásamt Stund­inni eru Média24 í Marokkó, Ambito í Argent­ínu, La Folha de São Paulo í Brasilíu, El Comercio í Perú, La Diaria í Úrúgvæ, Boston Globe í Banda­ríkj­unum, Made In China Press í Kína, South China Morning Press í Hong Kong, The Wire á Indlandi, De Morgen og Le Soir í Belgíu, A2larm í Tékk­landi, Politi­ken í Danmörku, Delfi í Eist­landi, Le Monde í Frakk­landi, Die Zeit í Þýska­landi, Il Man­i­festo á Ítalíu, Klasse­kampen í Noregi, Gazeta Wyborcza og Krytyka Polityczna í Póllandi, Diário de Notícias í Portúgal, Publico og El Diario á Spáni, Le Temps í Sviss, Cumhuriyet í Tyrk­landi og The Guardian í Ástralíu.

Fjöldi þekktra fræði­manna skrifa undir yfir­lýs­ing­una. Tólf íslenskir fræði­menn standa að henni, þau Eyja Brynjars­dóttir, Jón Ólafsson, Íris Ellen­berger, Finnur Dellsén, Annadís Rúd­ólfs­dóttir, Nanna Hlín Hall­dórs­dóttir, Gyða Margrét Pét­urs­dóttir, Arn­grímur Vídalín, Ólafur Páll Jónsson, Björn Þor­steins­son, Sigrún Alba Sig­urð­ar­dóttir, Guð­mundur Oddsson, Elmar Unn­steins­son og Silja Bára Ómars­dóttir. Fleiri und­ir­skriftum verður safnað á heima­síðu verk­efn­is­ins.

Yfir­lýs­ing­una má lesa hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár