Hvað gerist í lungunum við COVID-19?

Sif Hans­dóttir, yfir­læknir lungna­deildar Land­spít­ala, segir að nán­ast allir COVID-19 sjúk­lingar, sem hafi verið lagðir inn á spít­al­ann, hafi verið með lungna­bólgu á ein­hverju stigi. Skipta megi ein­kenn­unum í fjögur stig.

Hvað gerist í lungunum við COVID-19?

Um 80% þeirra sem veikj­ast af COVID-19 ná sér að fullu án þess að þurfa sér­stakrar með­ferðar við. Einn af hverjum sex sem veik­ist verður alvar­lega veikur með alvar­lega neðri önd­un­ar­færa­sýk­ingu og lungna­bólgu. Þetta kemur fram á vef­síðu Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar, WHO. 

En hvernig verður sjúk­dóm­ur­inn alvar­legur og hvað ger­ist í lung­unum við sýk­ingu? Sif Hans­dóttir, yfir­læknir lungna­deildar Land­spít­ala, segir að nán­ast allir COVID-19 sjúk­lingar, sem hafi verið lagðir inn á spít­al­ann, hafi verið með lungna­bólgu á ein­hverju stigi. Skipta megi ein­kenn­unum í fjögur stig.

„Sem betur fer fá flestir þeirra, sem veikj­ast af COVID-19, til­tölu­lega væg önd­un­ar­færa­ein­kenni,“ segir Sif. „Í upp­hafi, þegar veiran er að koma sér fyrir í lík­am­anum, finnur fólk gjarnan fyrir hita og slapp­leika og væg­ari önd­un­ar­færa­ein­kennum. Það fær hugs­an­lega ein­kenni eins og til dæmis þurran hósta, en finnur ekk­ert endi­lega fyrir auk­inni mæði.“

Og margir fá ekki meiri ein­kenni en þetta, að sögn Sifjar.

Þróast áfram hjá hluta þeirra sem veikjast

Hún segir að þessi ein­kenni þró­ist síðan áfram hjá hluta þeirra sem veikj­ast. „Nokkrum dögum eftir að veik­indin byrja fara sumir að finna fyrir meiri ein­kennum frá lung­unum. Þau ein­kenni tengj­ast því hvernig ein­stak­ling­ur­inn er að bregð­ast við sýk­ing­unni. Þarna er lík­am­inn að berj­ast við sýk­ing­una og myndar því bólgu­svörun. Á þessu stigi getur fólk fengið dýpri sýk­ingu og fengið lungna­bólgu, sem er í flestum til­vikum væg“ segir Sif.  Fólk í þessum hópi finni gjarnan fyrir meiri mæði, en þurfi ekki inn­lagnar eða mik­illar með­höndl­unar við. 

Kór­óna­veiranUm 80% þeirra sem veikj­ast af COVID-19, sem veiran veldur, ná sér að fullu án þess að þurfa sér­stakrar með­ferðar við.

Þriðji hóp­ur­inn er fólk sem fær alvar­legri lungna­bólgu. „Það er hóp­ur­inn sem kemur inn á lungna­deild hjá okkur,“ segir Sif. „Hjá þessum hópi hefur bólgan dreifst meira um lungun, fólk er með meiri mæði og er hugs­an­lega orðið lægra í súr­efni. Þetta er sá hópur sem við á Land­spít­al­anum viljum finna og greina.“

Ýmsar ástæður fyrir alvarlegri veikindum

Í fjórða hópnum er fólk sem verður mikið veikt vegna þess að það myndar mikla bólgu­svörun gegn veirunni í lík­am­anum sem getur leitt til alvar­legrar önd­un­ar­bil­unar.

„Það getur verið af ýmsum ástæðum. Sumir eru veik­ari í grunn­inn eða með und­ir­liggj­andi lungna­sjúk­dóma, syk­ur­sýki eða háþrýst­ing og hafa því minni getu til að vinna úr þessu aukna álagi sem verður á lungun. Þeir sem hafa komið á gjör­gæslu vegna COVID-19 eru nán­ast allir úr þessum hópi.“

17 COVID-19 sjúklingar á þremur deildum Landspítala

Fyrstu COVID-19 sjúk­ling­arnir sem lagðir voru inn á Land­spít­ala lögð­ust inn á smit­sjúk­dóma­deild.  Síðdegis á fimmtu­deg­inum 26. mars lágu þar sam­tals 17 sjúk­lingar með stað­fest smit, sam­kvæmt tölum a vef Land­spít­ala, og eru þeir á smit­sjúk­dóma­deild, á lungna­deild og á gjör­gæslu

„Ekkert bendir til ann­ars en að flestir, sem fengið hafa lungna­bólgu vegna COVID-19, muni jafna sig að fullu“

Spurð um með­ferð segir Sif að hún felist fyrst og fremst í stuðn­ings­með­ferð, eins og til dæmis súr­efn­is­gjöf og g önd­un­ar­vélum í alvar­leg­ustu til­fell­unum, en núna eru þrír sjúk­lingar í önd­un­ar­vélum á gjör­gæslu­deild Land­spít­ala, sam­kvæmt vef­síðu spít­al­ans. Hún segir ekk­ert benda til ann­ars en að flestir, sem fengið hafa lungna­bólgu vegna COVID-19, muni jafna sig að fullu.

„En það er óvíst með allra alvar­leg­ustu til­fellin, þar sem fólk fer í önd­un­ar­vél, jafn­vel í lengri tíma. Það verður tím­inn að leiða í ljós.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár