Nýjar rannsóknir á COVID-19: Svona hegðar veiran sér

Nýjar rann­sóknir á COVID-19 sýna að til eru meira en yfir eitt þús­und afbrigði af veirunni sem veldur sjúk­dómnum og vís­inda­menn vinna baki brotnu við að rann­saka þessi atbirgði. Einum hósta geta fylgt allt að 3.000 dropar sem geta lent á öðru fólki.

Nýjar rannsóknir á COVID-19: Svona hegðar veiran sér
Læknir í Kína Vís­inda­menn um allan heim skoða nú stökk­breyt­ingar sem orðið hafa á veirunni. Mynd: Shutterstock

Vís­inda­menn um allan heim rann­saka nú yfir eitt þús­und afbrigði af kór­óna­veirunni sem veldur COVID-19 og fund­ist hafa um 40 stökk­breytt afbrigði af veirunni hér á landi. Kjarn­sýrur úr veirunni lifðu í 17 daga um borð í skemmti­ferða­skipi þar sem smit kom upp.

Arnar PálssonHann segir að stökk­breyt­ing geti hljó­mað ógn­andi, en um sé að ræða erfða­frá­vik.

En hvað þýðir það að veiran hafi stökk­breyst? Er það slæmt? Er stökk­breytt veira skæð­ari? Svo þarf ekki að vera, segir Arnar Pálsson, pró­fessor í líf­upp­lýs­inga­fræði við Líf- og umhverf­is­vís­inda­deild Háskóla Íslands. 

Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, sagði í við­tali á RÚV fyrr í vik­unni að þær fjöru­tíu stökk­breyt­ingar sem fund­ist hefðu við rann­sóknir fyr­ir­tæk­is­ins á SARS-CoV-2, veirunni sem veldur COVID-19, væru breyt­ingar sem ein­göngu hefðu greinst hér á landi. Þar sagði Kári að fjöl­breyti­leiki veirunnar benti til þess að veiran hefði komið hingað til lands úr fleiri áttum en áður var talið.

 „Stökk­breyt­ingar eru eðli­legur hluti af líf­inu,“ segir Arnar.  „Án þeirra væri ekki til neinn breyti­leiki. Orðið stökk­breyt­ing hljómar ógn­vekj­andi, en þær fela ein­fald­lega í sér erfða­frá­vik; að erfða­efnið breyt­ist. Það þarf ekki að hafa áhrif á virkni veirunnar.“

Eins og límmiði á afturenda fíls

Stökk­breyt­ingar eru skil­greindar á þrenna vegu: jákvæðar, hlut­lausar og nei­kvæðar. Jákvæðar auka hæfni veirunnar, nei­kvæðar draga úr henni og þær hlut­lausu hvorki draga úr né auka hæfni hennar. Arnar segir að mikil minni­hluti stökk­breyt­inga séu jákvæðar, stærra hlut­fall þeirra séu nei­kvæðar og flestar séu hlut­lausar. Hann segir lík­legt, miðað við þá þekk­ingu sem nú sé til staðar á kór­óna­veirunni, að þær breyt­ingar sem hafa orðið og kunni að verða á henni séu hlut­lausar. „Það má líkja þessu við lím­miða á aft­ur­end­anum á fíl. Hann er þarna, en hefur engin áhrif á líf fíls­ins.“

Spurður hvort veira sem þessi geti stökk­breyst enda­laust segir Arnar að ekki sé betur vitað en að svo sé, en ekk­ert bendi til þess að SARS-CoV-2  stökk­breyt­ist hraðar en aðrar veirur svip­aðar upp­bygg­ingar. „Hæfni veiru er svo fjöl­þætt. Hún felst meðal ann­ars í að búa til afkom­endur og helst þá sem lifa lengi, að kom­ast inn í frum­urnar á hýsl­inum og sleppa frá ónæm­is­kerf­inu. Líkurnar á því að stökk­breyt­ing­arnar valdi akkúrat þessu eru ekk­ert sér­lega miklar. Svo er ekk­ert fyr­ir­séð að það sé endi­lega betra fyrir veiruna að sem flestir deyi af hennar völdum, kannski væri það henni í hag að valda mild­ari sjúk­dómi. Eða að geta dulist lengur í fólki eftir að það er smitað þannig að meiri mögu­leikar séu á að það smiti aðra óaf­vit­andi.“

Gæti orðið stöðugri utan líkamans

Arnar segir að hugs­an­lega gæti veiran orðið stöðugri utan lík­am­ans og þannig myndi hæfni hennar til að smita aukast. „Það er ein­fald­lega ómögu­legt að spá fyrir um hvaða breyt­ingar eru veirunni í hag. Veirur valda oft alvar­legum sjúk­dómum fyrst, en þegar þær hafa aðlag­ast hýslum sínum, sem í þessu til­felli eru við menn­irnir, verða þær veik­ari. En það er ómögu­legt að segja hversu langan tíma það tekur.“

„Eins og kór­óna­veiran er núna sam­sett býr hún yfir bindi­próteini til að kom­ast inn í þekju­frumur í önd­un­ar­færum“

Önnur hugs­an­leg stökk­breyt­ing sem Arnar nefnir eru breyt­ingar á bindi­próteini veirunnar, en það virkar sem nokk­urs konar lyk­ill að því að kom­ast inn í frumur. „Eins og kór­óna­veiran er núna sam­sett býr hún yfir bindi­próteini til að kom­ast inn í þekju­frumur í önd­un­ar­færum. Það er erfitt að spá um hvort slíkar breyt­ingar myndu hagn­ast veirunni. Við vitum svo lítið um líf­fræði hennar.“

Í þessu sam­hengi nefnir Arnar aðra teg­und kór­óna­veiru, OC43. „Það er „venju­leg“ kvef­veira sem hefur gengið á milli fólks í langan tíma. Stökk­breyt­ingar hennar hafa verið raktar í um tvo ára­tugi og í ljós hefur komið að bindi­prótein hennar hafa breyst tals­vert.“

Notuð grímaSums staðar hefur orðið skortur á sótt­hvarna­grímum.

Arnar segir að eftir því sem COVID-19 far­ald­ur­inn muni vara lengur, auk­ist mögu­leikar kór­óna­veirunnar á að breyt­ast á jákvæðan hátt. „Þess vegna er full ástæða til að gera allt sem hægt er til að hamla útbreiðslu far­ald­urs­ins.“ 

Ekki miklar breytingar miðað við útbreiðslu

Banda­ríska dag­blaðið The Washington Post fjall­aði í gær um stökk­breyt­ingar á kór­óna­veirunni. Í umfjöllun blaðs­ins segir að fjöldi vís­inda­manna vinni nú að því að rann­saka breyt­ing­arnar. Einn þeirra er Peter Thielen, sam­einda­erfða­fræð­ingur við John Hopkins háskóla í Banda­ríkj­unum. Í sam­tali við blaðið segir hann að þetta séu ekki margar stökk­breyt­ingar, sé miðað við þann mikla fjölda sem hafi sýkst af veirunni. Fjórar til tíu breyt­ingar séu að jafn­aði á þeirri veiru sem hafi gengið í Wuhan og þeirri sem nú gengur í Banda­ríkj­unum.

„Fjórar til tíu breyt­ingar eru að jafn­aði á þeirri veiru sem gekk í Wuhan og þeirri sem nú gengur í Banda­ríkj­unum“

COVID-19Í grein The Washington Post segir að stökk­breyt­ingar á veirunni séu ekki miklar miðað við útbreiðslu hennar.

„Eins og staðan er núna gefur þetta vís­bend­ingu um að hægt yrði að þróa bólu­efni gegn veirunni í eitt skipti fyrir öll í stað þess að þróa ný afbrigði á hverju ári eins og gert er varð­andi inflú­ensu­bólu­efni. Bólu­efnið yrði áþekkt bólu­efni gegn misl­ingum eða hlaupa­bólu á þann hátt að það myndi veita lang­tíma ónæmi,“ segir Thielen við The Washington Post.  Fjölmörg bólu­efni gegn veirunni eru nú í þróun, en ólík­legt er talið að þau komi á markað fyrr en eftir 12-18 mán­uði. 

Tveir aðrir vís­inda­menn taka í sama streng í umfjöllun blaðs­ins. Stanley Perlmann, Háskól­anum í Iowa og Benjamin Neuman, A&M Rík­is­há­skól­anum í Texas í Tex­ark­ana eru báðir veiru­fræð­ingar og voru í alþjóð­legum hópi vís­inda­manna sem gaf veirunni nafn. Þeir segja að veiran virð­ist nokkuð stöðug. „Hún hefur ekki stökk­breyst að neinu ráði,“ segir Perlman. „Þetta er sama slæma útgáfan fyrir alla, enn sem komið er. Ef hún verður ennþá á kreiki eftir ár, þá gætum við séð meiri fjöl­breytni,“ segir Neuman.

Fólk í A-blóðflokki næmara

Margar kenn­ingar eru um veiruna, meðal ann­ars hvort fólk af til­teknum blóð­flokkum sé næm­ari fyrir henni en aðrir. Kín­verskir vís­inda­menn báru blóð­flokka rúm­lega 2.000 íbúa Wuhan- og Shenzhen-hér­aðs sem sýkst höfðu af veirunni saman við blóð­flokka fólks á svæð­inu og nið­ur­staðan var að fólk í A-blóð­flokki er lík­legra til að smit­ast af veirunni en fólk í öðrum blóð­flokkum og að minnstar líkur eru á að fólk í O-flokki fái veiruna. Fjöl­margir fjöl­miðlar víða um heim hafa fjallað um nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar, en þær hafa ekki birst í rit­rýndum tíma­ritum, að því er segir á vef­síðu rann­sókn­ar­innar.

Hver eru ein­kennin?Hvernig er að vera með COVID-19? Skýr­ing­ar­mynd­band frá Science Insider.

Hangir í loftinu

Með grímuMyndin er frá götu í Taívan. Veiran berst meðal ann­ars með úða­smiti og því hafa margir brugðið á það ráð að bera grímu.

COVID-19 smit­ast með snert­ismiti eða dropa-/úða­smiti. Sá sem smit­ast ber veiruna með eigin höndum í augu, nef eða munn og smitar þannig sjálfan sig. Þetta ger­ist oft­ast á þann hátt  að fólk snertir smit­aðan hlut eins og til dæmis hurð­ar­hún, snert­iskjái eða hluti sem margir snerta og fer síðan með hend­urnar að and­lit­inu eða grípur eitt­hvað og setur í munn sér. Eins og svo margar aðrar veirur sem herja á önd­un­ar­færi getur COVID-19 smit­ast með úða eða dropum sem koma úr munni og nefi smit­aðs ein­stak­lings, til dæmis þegar hann hóstar.

Einum hósta geta fylgt allt að 3.000 dropar sem geta lent á öðru fólki, fötum þeirra og yfir­borðs­flötum og minni agnir úr drop­unum geta hangið í loft­inu. Nið­ur­stöður rann­sóknar sem gerðar voru af Banda­rísku heil­brigð­is­mála­stofn­un­inni (NIH),Sjúk­dóma­varna­stofnun Banda­ríkj­anna og UCLA og Princeton háskól­unum sýna að veiran getur lifað í allt að fjórar klukku­stundir á kopar, 24 stundir á pappa og tvo til þrjá daga á plasti og ryð­fríu stáli. Þá hafa rann­sóknir sýnt að hún getur hangið í lofti sem nokk­urs konar dropi eða úði í allt að þrjá tíma áður en hún fellur til jarðar. 

Kjarnsýrur úr veirunni lifðu í 17 daga

Merki um RNA kjarn­sýrur úr veirunni fund­ust í káetum skemmti­ferða­skips­ins Diamond Princess, sem kyrr­sett var undan strönd Japans í febr­úar eftir að smit kom þar upp,  17 dögum eftir að allir far­þegar höfðu farið frá borði.  Í skýrslu Sótt­varn­ar­eft­ir­lits Banda­ríkj­anna segir að óvíst sé hvort þessar kjarn­sýrur gætu valdið smiti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár