Fyrsta andlát Íslendings vegna COVID-19: „Kom­inn tími til að þessi þjóð taki þessu al­var­lega“

71 árs gömul kona lést á Land­spít­al­anum eftir langvar­andi veik­indi. Sonur kon­unnar sem lést segir móður sína hafa barist fyrir lífi sínu í viku, smituð af COVID-19.

Fyrsta andlát Íslendings vegna COVID-19: „Kom­inn tími til að þessi þjóð taki þessu al­var­lega“
Af bráða­mót­töku Land­spít­al­ans Konan lést á Land­spít­al­anum í gær. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Hún barð­ist í heila viku fyr­ir lífi sínu smituð af Covid-19 veirunni,“ segir sonur 71 árs gam­allar konu af Suð­ur­landi, sem lést vegna COVID-19.

Konan er fyrsti Íslend­ing­ur­inn sem fellur frá vegna COVID-19. Hún hafði glímt við erfið veik­indi. Andlát hennar er til­kynnt á vef Land­spít­al­ans. 

Sonur kon­unnar kvaddi móður sína með færslu á Facebook í morgun. Í gær hafði hann þurft að kveðja hana í gegnum síma, vegna smit­hættu.

„Sjálf­sagt er flest­um að verða ljóst að litla landið okk­ar hef­ur þurft að þola sitt fyrsta dauðs­fall af völd­um Covid 19 veirunn­ar, þó dauðs­fall í fjöl­skyld­unni sé mikið einka­mál fyr­ir flesta þá lang­ar mig að sem flest okk­ar læri eitt­hvað af þessu. Þetta er mamma mín, hún barð­ist í heila viku fyr­ir lífi sínu smituð af Covid-19 veirunni, hún var í áhættu­flokki eins og mjög marg­ir aðrir. Þrír úr minni fjöl­skyldu höfðu tæki­færi til að kveðja hana fyr­ir enda­lok­in. Tveir þeirra vegna þess að þeir eru smit­aðir af veirunni og ein sem lagði sig í mikla smit­hættu, ég hefði al­veg þegið að fá að horfa í augu henn­ar og segja bless en vegna aðstæðna var það ekki hægt. Í stað­inn fæ ég að minn­ast henn­ar eins og ég sá hana síð­ast og fékk að kveðja hana í gegn­um sím­ann og ekka­sog. Það er al­veg kom­inn tími til að þessi þjóð og þegn­ar henn­ar taki þessu al­var­lega og hætti að haga sér eins og hálf­vit­ar,“ skrifar hann.

Svohljóð­andi var til­kynn­ing frá Land­spít­al­anum í morgun:

„Mánu­dag­inn 23. mars 2020 lést á smit­sjúk­dóma­deild Land­spít­ala lið­lega sjö­tug kona, sem glímt hafði við langvar­andi veik­indi. Andlátið varð í kjöl­far veik­inda kon­unnar af völdum Covid-19-sjúk­dóms­ins. Land­spít­ali vottar fjöl­skyldu hennar samúð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

3
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
6
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár