Sjaldgæft að veirur stökkbreytist í svæsnara form

COVID-19 veiran sýnir að við erum hluti af nátt­úr­unni, segir Arnar Pálsson, erfða­fræð­ingur og pró­fessor í líf­upp­lýs­inga­fræði við HÍ.

Sjaldgæft að veirur stökkbreytist í svæsnara form

Kór­óna­veiran, Covid-19, er þriðja veiran sinnar teg­undar und­an­farna tvo ára­tugi sem smit­ast yfir í menn. Þær fyrri voru SARS-CoV og MERS-CoV og ástæðan í öllum til­vik­unum er lík­lega dráp og neysla á villtum dýrum.

Þetta segir Arnar Pálsson, erfða­fræð­ingur og pró­fessor í líf­upp­lýs­inga­fræði við HÍ. „Svo eru líka veirur eins og HIV sem hafa borist í mann­inn úr öðrum dýra­teg­undum. Okkur hættir til að halda að mað­ur­inn sé sér­stakur og standi fyrir utan nátt­úr­una. Við erum hluti af henni, í allri sögu mann­kyns höfum við verið að neyta villtra dýra og veirur hafa verið að fara yfir í okkur úr öðrum dýrum og úr okkur yfir í önnur dýr.“

Arnar segir að dæmi séu um að veirur hafi stökk­breyst og ýmist orðið meira eða minna smit­andi og valdið alvar­legri sjúk­dómum, eftir að þær bár­ust í menn. Engar for­sendur séu fyrir hendi til að full­yrða að slíkt ger­ist með Covid-19 veiruna. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár