Sex blaðamenn tilnefndir til verðlauna fyrir umfjallanir í Stundinni

Umfjall­anir um ham­fara­hlýnun, Sam­herj­a­skjölin og stöðu erlendra kvenna sem fastar eru í ofbeld­is­sam­böndum við íslenska maka sína er til­nefndar til verð­launa. Aðeins RÚV fær fleiri til­nefn­ingar.

Sex blaðamenn tilnefndir til verðlauna fyrir umfjallanir í Stundinni
Til­nefndir blaða­menn

Stundin fær þrjár til­nefn­ingar til blaða­manna­verð­launa, í flokk­unum rann­sókn­ar­blaða­mennska árs­ins, umfjöllun árs­ins og blaða­maður árs­ins. Aðeins RÚV fær fleiri til­nefn­ingar. 

Á þeim fimm árum sem liðin eru frá stofnun Stund­ar­innar hefur hún fengið 13 til­nefn­ingar til blaða­manna­verð­launa Blaða­manna­fé­lags Íslands. Árið 2017 var rit­stjórn Stund­ar­innar í heild sinni valin blaða­menn árs­ins. Í ár fá sex blaða­menn Stund­ar­innar til­nefn­ingu til verð­launa, í þremur flokkum. 

Verð­launin verða afhent þann 6. mars en veitt eru verð­laun í fjórum flokkum, en þrjár til­nefn­ingar eru í hverjum flokki.

RÚV fékk fjórar til­nefn­ingar, Morg­un­blaðið tvær og mbl.is eina, Kjarninn fékk eina til­nefn­ingu líkt og Frétta­blaðið og frétta­stofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgj­unnar. 

Tilnefnd fyrir vönduð viðtöl og umfjallanir 

Hólm­fríður Helga

Hólm­fríður Helga Sig­urð­ar­dóttir er til­nefnd til verð­launa sem blaða­maður árs­ins fyrir vönduð við­töl og umfjall­anir um við­kvæm mál­efni og brotala­mir í íslensku sam­fé­lagi, meðal ann­ars umfjöllun um stöðu kvenna frá löndum utan EES sem hafa fest í ofbeld­is­sam­böndum hér á landi, og upp­lýsandi við­töl við fjöl­skyldur sem hafa fundið skjól á Íslandi. 

Hólm­fríður Helga var einnig til­nefnd til verð­launa í fyrra fyrir umfjöllun árs­ins eftir að frá­sagnir átta kvenna opin­ber­uðu bit­leysi nálg­un­ar­banns sem úrræðis í heim­il­is­of­beld­is­málum. 

Tilnefnd fyrir umfjöllun um hamfarahlýnun 

Alma Mjöll Ólafs­dóttir, Jóhann Páll Jóhanns­son, Margrét Mart­eins­dóttir og Steindór Grétar Jónsson fengu til­nefn­ingu fyrir yfir­grips­mikla og vand­aða umfjöllun um ham­fara­hlýnun, þar sem fjallað er um fyr­ir­séðar afleið­ingar og birt­ing­ar­myndir loft­lags­vár, aðgerðir stjórn­valda og við­leitni ein­stak­linga til að vega uppi á móti skað­legum umhverf­is­á­hrifum. 

Jóhann Páll Jóhanns­son er marg­verð­laun­aður blaða­maður, sem hefur meðal ann­ars hlotið verð­laun fyrir rann­sókn­ar­blaða­mennsku árs­ins og sem blaða­maður árs­ins fyrir umfjöllun um leka­málið, fengið til­nefn­ingar til verð­launa fyrir umfjöllun um við­skipti for­sæt­is­ráð­herra og verð­laun fyrir umfjöllun um upp­reista æru. Hann fékk einnig til­nefn­ingu í fyrra fyrir við­tal við Báru Hall­dórs­dóttur og árið þar á áður fyrir við­tal við Sig­ur­laugu Hreins­dóttur. 

Steindór Grétar Jónsson fékk verð­laun fyrir rann­sókn­ar­blaða­mennsku árs­ins í fyrra ásamt Frey Rögn­valds­syni vegna umfjöll­un­ar­innar Landið sem auð­menn eiga, þar sem rík yfir­sýn var veitt yfir umfang fyrrum bújarða sem nú eru í eigu inn­lendra og erlendra auð­manna. 

Tilnefndir fyrir umfjöllun um Samherjaskjölin

Ingi Freyr Vil­hjálms­son, blaða­maður Stund­ar­innar, er til­nefndur ásamt þeim Aðal­steini Kjart­ans­syni, Helga Seljan og Stefáni Drengs­syni í Kveik fyrir rann­sókn­ar­blaða­mennsku árs­ins vegna umfjöll­unar um Sam­herj­a­skjölin, sem unnin var í sam­starfi við Wikileaks og Al Jazeera. 

Ingi Freyr

Ingi Freyr hefur fengið fjöl­margar til­nefn­ingar til verð­launa fyrir rann­sókn­ar­blaða­mennsku. Árið 2017 var hann til­nefndur fyrir afhjúp­andi umfjöllun um við­skipti Bjarna Bene­dikts­sonar og fjöl­skyldu hans og náin tengsl við Glitni í aðdrag­anda banka­hruns­ins, en áður hefur hann verið til­nefndur til verð­launa fyrir umfjöllun um fjár­hags­leg tengsl Illuga Gunn­ars­sonar þáver­andi mennta­mála­ráð­herra við fyr­ir­tækið Orka Engergy, umfjöllun um fisk­veiðar Íslend­inga við Afríku og frétta­flutn­ing af upp­gjöri og afleið­ingum fjár­mála­hruns­ins. 

Tveir fengu tvær tilnefningar 

Athygli vekur að þeir Aðal­steinn Kjart­ans­son og Stefán Drengs­son á RÚV fengu tvær til­nefn­ingar í flokki rann­sókn­ar­blaða­mennsku, ann­ars vegar fyrir umfjöllun um Sam­herj­a­skjölin og hins vegar fyrir umfjöllun um Procar, sem þeir unnu saman að fyrir Kveik. 

Allar til­nefn­ing­arnar og rök­stuðn­ing dóm­nefndar má sjá hér að neðan: 

Jóhann, Margrét, Steindór og Alma Mjöll

Besta umfjöllun

Arn­hildur Hálf­dán­ar­dóttir, RÚV. Fyrir þátta­röð­ina Lofts­lags­þerapían. Þætt­irnir eru vand­aðir og yfir­grips­miklir þar sem varpað er nýju ljósi á lofts­lags­vána með því að skoða snertifleti hennar við það mann­lega í sam­fé­lag­inu, sið­ferði, til­finn­ingar, sál­fræði, trú­ar­brögð og póli­tík. Um er að ræða per­sónu­lega og frum­lega nálgun að umfjöllun um eitt stærsta verk­efni sam­tím­ans.

Alma Mjöll Ólafs­dóttir, Jóhann Páll Jóhanns­son, Margrét Mart­eins­dóttir, og Steindór Grétar Jónsson, Stund­inni. Fyrir umfjöllun um ham­fara­hlýnun. Í yfir­grips­mik­illi og vand­aðri umfjöllun fjalla blaða­menn Stund­ar­innar um fyr­ir­séðar afleið­ingar og birt­ing­ar­myndir lofts­lags­vár hér á landi og víðar, aðgerðir stjórn­valda og við­leitni ein­stak­linga til þess að vega upp á móti skað­legum umhverf­is­á­hrifum sem stafað geta af dag­legu lífi fólks.

Magnús Hall­dórs­son og Þórður Snær Júl­í­us­son, Kjarn­anum. Fyrir umfjöllun um efna­hags­mál. Í fjöl­mörgum og upp­lýsandi frétta­skýr­ingum vörp­uðu Magnús og Þórður Snær ljósi á þróun efna­hags­mála á umbreyt­inga­tímum síð­asta árs, þegar sam­dráttur tók við af all­löngu góð­ær­is­tíma­bili. Um er að ræða afar vand­aða umfjöllun þar sem efni­viður frétta úr við­skipta- og efna­hags­lífi er greindur og settur fram á skil­merki­legan og skilj­an­legan hátt.

Viðtal ársins

Orri Páll Orm­ars­son, Morg­un­blað­inu. Fyrir við­tal við Sævar Þór Jónsson lög­mann. Í við­tal­inu er á næman og nær­gæt­inn hátt fjallað um afar við­kvæmt mál­efni, kyn­ferð­is­of­beldi sem við­mæl­and­inn varð fyrir á barns­aldri og þau djúp­stæðu áhrif sem atburð­ur­inn hafði á líf hans. Viðtalið, sem er lif­andi og lip­ur­lega skrifað, fangar athygli les­and­ans og heldur henni þar til frá­sögn­inni er lokið.

Erla Björg Gunn­ars­dóttir, Nadine Guðrún Yaghi, og Jóhann K. Jóhanns­son, Kompási, Frétta­stofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgj­unnar. Fyrir við­tal og umfjöllun um barn sem var lokað inni á heim­ili með geð­veikri móður. Vandað við­tal við 17 ára stúlku, Margréti Lillý Ein­ars­dóttur, sem lýsir því hvernig sam­fé­lagið brást henni þegar hún á grunn­skóla­aldri ólst upp ein hjá móður sem átti við bæði geð­rænan vanda og fíkni­vanda að stríða. Viðtalið vakti verð­skuld­aða athygli og var fylgt eftir með fjölda frétta um stöðu barna í við­kvæmri stöðu, starf­semi barna­vernd­ar­nefnda og fleiri þætti og leiddi meðal ann­ars til þess að bæj­ar­stjóri Sel­tjarn­ar­ness baðst form­lega afsök­unar á því hvernig staðið var að málum í til­viki Mar­grétar Lillýar.

Ari Brynj­ólfs­son, Frétta­blað­inu. Fyrir við­tal við fjóra erlenda vagn­stjóra. Í lif­andi og skemmti­legu við­tali sem fangar og heldur athygli les­enda ræðir Ari við fjóra erlenda vagn­stjóra hjá Strætó sem lýsa lífi sínu, starfi og sam­skiptum við far­þega. Viðtalið sýnir mann­eskjur á bak við störf og þjóð­erni. Viðtalið sem vekur les­endur meðal ann­ars til umhugs­unar um hvernig hér er komið fram við starfs­fólk sem er af erlendu bergi brotið. Tæknileg útfærsla á við­tali við fjóra ein­stak­linga í senn er afskap­lega vel úr hendi leyst. 

Rannsóknarblaðamennska

Aðal­steinn Kjart­ans­son og Stefán Drengs­son, Kveik. Fyrir umfjöllun um Procar-málið. Afhjúpun Kveiks um að bíla­leigan Procar hefði stundað svindl á neyt­endum með því að færa niður kíló­metra­stöðu bíla­leigu­bíla áður en þeir voru seldir vakti hörð við­brögð og sýndi fram á alvar­lega brota­löm í við­skiptum með not­aða bíla­leigu­bíla. Umfjöll­unin byggði á heim­ildum og öfl­ugri rann­sókn­ar­vinnu sem skil­aði sér í afhjúpun sem hefur haft afdrifa­rík áhrif á við­skipti með not­aða bíla.

Aðal­steinn Kjart­ans­son, Helgi Seljan, Ingi Freyr Vil­hjálms­son og Stefán Drengs­son, Kveik og Stund­inni. Fyrir umfjöllun um Sam­herj­a­málið. Fá mál vöktu meiri athygli í íslensku sam­fé­lagi en umfjöllun Kveiks og Stund­ar­innar í sam­vinnu við Al Jazeera og Wikileaks um ásak­anir á hendur Samherja um mútu­greiðslur í tengslum við starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins í Namibíu. Umfjöll­unin byggði stað­hæf­ingum fyrrum starfs­manns Samherja í Namibíu og miklu magni gagna sem einnig voru gerð aðgengi­leg almenn­ingi á net­inu sam­hliða birt­ingu frétta af mál­inu. Umfjöll­unin hefur haft mikil áhrif, bæði hér heima og erlendis.

Stefán Einar Stef­áns­son, Morg­un­blað­inu. Fyrir bók­ina „Wow, ris og fall flug­fé­lags“ ásamt fréttum og frétta­skýr­ingum um sama mál í Við­skipta­Mogg­anum. Gjald­þrot Wow air er tví­mæla­laust eitt stærsta frétta­mál síð­asta árs og afleið­ingar þess gríð­ar­legar bæði á ein­stak­linga og efna­hags­líf. Í ítar­legum fréttum, frétta­skýr­ingum og bók um málið hefur Stefán Einar dregið fram í marg­vís­lega fleti tengda starf­semi Wow, sögu flug­fé­lags­ins og eft­ir­mála gjald­þrots­ins. Frétt­irnar er vand­aðar og ítar­legar, bókin lip­ur­lega skrifuð og upp­lýsandi um ris og falls flug­fé­lags, sem hafði mikil áhrif á íslenskt þjóð­líf. 

Blaðamannaverðlaun ársins

Guðrún Hálf­dán­ar­dóttir, mbl.is. Fyrir greina­flokk­inn Skóli fyrir alla. Um er að ræða yfir­grips­mikla röð frétta og frétta­skýr­inga um stöðu skóla­mála á Íslandi út frá því sjón­ar­horni að menntun sé mann­rétt­indi sem allir eigi að njóta. Umfjöll­unin varpar ljósi á stöðu mála og veltir upp flötum þar sem úrbóta er þörf, svo sem varð­andi skýr­leika námskrár og sam­ræmis í vinnu­að­ferðum á milli, og jafn­vel innan ein­stakra skóla.

Arnar Páll Hauksson, Spegl­inum, RÚV. Fyrir umfjöllun um kjara­mál. Arnar Páll hefur af djúpri þekk­ingu og ára­langri yfir­sýn fjallað um kjara­mál með afar vönd­uðum hætti í ótal fréttum og frétta­skýr­ingum á tímum mik­ils umróts á vinnu­mark­aði. Hann hefur fjallað ítar­lega um hug­myndir og til­lögur sem lagðar hafa verið fram í kjara­við­ræðum og flytur iðu­lega fyrstu fréttir af þróun mála.

Hólm­fríður Helga Sig­urð­ar­dóttir, Stund­inni. Fyrir vönduð við­töl og umfjall­anir. Í fjölda frétta, frétta­skýr­inga og við­tala hefur Hólm­fríður Helga sýnt afar vönduð vinnu­brögð í umfjöllun um marg­vís­leg við­kvæm mál­efni og brotala­mir í íslensku sam­fé­lagi. Má þar nefna vand­aða umfjöllun um stöðu kvenna frá löndum utan EES sem hafa fest í ofbeld­is­sam­böndum hér á landi og upp­lýsandi við­töl og umfjöllun um fjöl­skyldur sem fundið hafa skjól á Íslandi eftir erf­ið­leika í heima­löndum sínum. Hólm­fríður hefur lagt mikið af mörkum við að lyfta röddum og greina frá reynslu fólks sem ekki á jafn­greiðan aðgang að fjöl­miðlum og margir aðrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
5
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár