Launabilið milli milltekjufólks og hátekjufólks eykst

Marg­feld­is­munur launa milli tekju­tí­unda hefur auk­ist milli áranna 1991 og 2018. Hag­fræði­pró­fessor segir flest benda til að launa­bil sé að aukast en fjöl­þættar ástæður liggi þar að baki.

Launabilið milli milltekjufólks og hátekjufólks eykst
Segir erfitt að túlka gögnin Þórólfur telur að launa­bil sé að aukast en fjöl­þættar ástæður liggi þar að baki.

Hlut­falls­legur munur á tekjum þeirra sem með­al­tekjur hafa og þeirra sem hæstar tekjur hafa hefur auk­ist frá árinu 1991. Þetta má sjá úr gögnum Hagstofu Íslands sem birt eru inni á vefnum Tekju­sagan, sem for­sæt­is­ráðu­neytið heldur úti. Þórólfur Matth­í­as­son hag­fræði­pró­fessor segir að flest bendi til að launa­bil sé að aukast hér á landi en fyrir því liggi fjöl­þættar ástæður og erfitt sé að full­yrða um þróun út frá gögn­unum.

Á vef for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins segir: „Tekju­sög­unni er ætlað að aðstoða stjórn­völd við að meta áhrif breyt­inga á sköttum og bótum á lífs­kjör ein­stakra hópa.“ Á vefnum má bera saman þróun mán­að­ar­legra ráð­stöf­un­ar­tekna, á föstu verð­lagi, milli tekju­tí­unda á umræddu ára­bili og að gefnum ýmsum öðrum for­sendum, svo sem eftir kyni, fjöl­skyldu­stærð og búsetu.

Munur milli kynjanna hefur aukist

Þannig má bera saman tekjur ein­stæðra kvenna, sem eiga 1–2 börn og sem eiga fast­eign, en til­heyra ann­ars vegar tekju­tí­und 10, þeirri hæstu, og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
5
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár