Ófaglærðir leikskólastarfsmenn með lægst laun af öllum stéttum

Fjöl­mennar starfs­stéttir innan Eflingar hafa lægstu heild­ar­laun allra starfs­stétta á íslenskum vinnu­mark­aði. Stjórn­mála­menn eru að með­al­tali með tæp fjór­föld laun leik­skóla­starfs­fólks.

Ófaglærðir leikskólastarfsmenn með lægst laun af öllum stéttum

Hagstofa Íslands safnar upp­lýs­ingum um laun á íslenskum vinnu­mark­aði. Nið­ur­stöður þeirrar upp­lýs­inga­vinnslu eru meðal ann­ars birtar eftir laun­þega­hópum og atvinnu­greinum. Sé horft á laun full­vinn­andi launa­manna árið 2018 kemur í ljós að ófaglært starfs­fólk í barna­gæslu hefur lægst laun af öllum starfs­stéttum í land­inu. Að með­al­tali eru heild­ar­laun þess hóps 375 þús­und krónur á mán­uði, fyrir skatta og launa­tengd gjöld. Leik­skóla­kenn­arar fá aftur á móti 543 þús­und krónur að með­al­tali á mán­uði. Þess má geta að leik­skóla­kenn­arar eru með lausa kjara­samn­inga, rétt eins og starfs­fólk Eflingar sem starfar í leik­skólum Reykja­vík­ur­borgar og er nú í ótíma­bundnu verk­falli.

Samkvæmt tölum Hag­stof­unnar eru heild­ar­laun ófag­lærðs starfs­fólks sem starfar við umönnun fatl­aðra 415 þús­und krónur á mán­uði og þeirra sem vinna við umönnun í félags­þjón­ustu eða heil­brigð­is­greinum 418 þús­und krónur á mán­uði að með­al­tali. Ræst­inga­fólk og aðstoð­ar­fólk í mötu­neytum fær að með­al­tali greiddar 432 þús­und krónur á …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu