Íslensk flugfélög nota félög í lágskattaríkinu Möltu til að ráða fólk

Primera Air og Air Atlanta hafa not­ast við breska starfs­manna­leigu sem lýtur stjórn fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra Primera til að ráða starfs­menn erlendis. Starfs­manna­leigan stofnar eign­ar­halds­fé­lög á Möltu sem ráða starfs­fólk. Þegar Primera Air varð gjald­þrota fékk þetta starfs­fólk ekki launin sín.

Íslensk flugfélög nota félög í lágskattaríkinu Möltu til að ráða fólk

Íslensku flug­fé­lögin Primera Air, sem er gjald­þrota, og Atlanta hafa not­ast við breska starfs­manna­leigu til að ráða fólk í gegnum félög á Möltu. Ef flug­fé­lögin lenda í rekstr­ar­erf­ið­leikum geta vinnu­leg rétt­indi þessa starfs­fólks reynst vera tak­mörkuð.  Starfs­fólk Primera Air fékk ekki greidd laun frá Möltu­fé­lagi við gjald­þrot félags­ins. 

Starfs­menn sem íslenska flug­fé­lagið Primera Air var með í vinnu hjá sér í gegnum starfs­manna­leigu í Bret­landi og félag í lág­skatta­rík­inu Möltu reyndu að fá bresk stjórn­völd til liðs við sig til að fá greidd laun eftir að flug­fé­lagið varð gjald­þrota síðla árs árið 2018. Í fyrra var Malta eitt af þeim löndum í Evrópu sem nefnd á vegum Evr­ópu­sam­bands­ins taldi hafa „ein­kenni skatta­skjóla“. Bresk stjórn­völd höfn­uðu beiðn­inni á þeim for­sendum að breska rík­is­stjórnin eða breska þingið hefðu ekki lög­sögu í mál­inu. Félagið á Möltu hét Asta Aviation Staffing Agency (ASTA) og not­aði Primera Air það á grund­velli samn­inga við starfs­manna­leig­una Mountain …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár