Samherji vonar að Ríkisútvarpið „dragi lærdóm“ eftir „ánægjulega“ leiðréttingu

Útgerð­ar­fé­lagið Samherji fagnar leið­rétt­ingu Rík­is­út­varps­ins á full­yrð­ingu, þar sem sagt var í frétt að Samherji hefði beitt mútum til að kom­ast yfir afla­heim­ildir í Namibíu.

Samherji vonar að Ríkisútvarpið „dragi lærdóm“ eftir „ánægjulega“ leiðréttingu
Frétta­stjóri RÚV Rakel Þor­bergs­dóttir, frétta­stjóri RÚV, bað Samherja vel­virð­ingar í fréttum í gær­kvöldi og leið­rétti stað­hæf­ingu um að Samherji hefði greitt mútur. Mynd: RÚV

„Það er ánægju­legt að RÚV hafi áttað sig á mis­tök­unum og við­ur­kennt að flutt hafi verið frétt með full­yrð­ingum sem eiga ekki við nein rök að styðj­ast,“ segir í yfir­lýs­ingu útgerð­ar­fé­lags­ins Samherja vegna ákvörð­unar frétta­stofu RÚV um að biðja félagið vel­virð­ingar og leið­rétta frétt þar sem sagt var að Samherja hefði tek­ist að „afla sér kvóta í [Namibíu] með því að múta emb­ætt­is­mönnum“. 

Fjallað var um stór­felldar greiðslur Samherja til emb­ættis- og stjórn­mála­manna í Stund­inni, Kveik, The Namibian og Al Jazeera í nóv­em­ber, en umfjöll­unin byggð­ist á gögnum um milli­færslur, tölvu­póst­sam­skiptum og frá­sögn fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra Samherja í Namibíu. Tíu manns hafa verið hand­teknir eða ákærðir í Namibíu vegna máls­ins, þar á meðal tveir fyrr­ver­andi ráð­herrar. Seinast var fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri rík­is­fyr­ir­tæk­is­ins Fishcor, sem gefur út kvóta í Namibíu, hand­tek­inn í gær.

Málið er til skoð­unar hjá Hér­aðs­sak­sókn­ara hér­lendis, en ekki hafa feng­ist frek­ari upp­lýs­ingar um stöðu þess.

Sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra og for­stjóriBernhard Esau, sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Namibíu, var hand­tek­inn í kjöl­far þess að Al Jazeera sýndi fram á að hann tók við mútum, með földum mynda­vélum. Hér er hann með Þor­steini Má Bald­vins­syni, for­stjóra Samherja, sem fór í leyfi eftir umfjöllun Kveiks og Stund­ar­innar.

„Samherji vonar að frétta­stofan dragi lær­dóm af þessu máli“

„Samherji vonar að frétta­stofan dragi lær­dóm af þessu máli til að fyr­ir­byggja að slík mis­tök end­ur­taki sig í fram­tíð­inni,“ segir Samherji í yfir­lýs­ingu sinni.

Rakel Þor­bergs­dóttir, frétta­stjóri RÚV, sagði í leið­rétt­ingu sem lesin var upp í tíu­fréttum í gær­kvöldi, að frétta­stofan stæði enn við aðrar fréttir af mál­inu, sem og umfjöllun frétta­skýr­inga­þátt­ar­ins Kveiks í nóv­em­ber, þar sem sýnt var fram á fjár­magns­flutn­inga Samherja til ein­stak­linga í stjórn­kerfi og stjórn­málum í Namibíu, sem leitt hafa til ákæra og hand­taka í land­inu. 

Meðal þess sem lög­fræð­ingur Samherja full­yrti í bréfi sínu til 12 stjórn­ar­manna og ann­arra for­svars­manna Rík­is­út­varps­ins, var að félagið hefði ekki fengið tæki­færi til að svara ásök­unum um mútu­greiðslur og því hefði frétta­maður RÚV brotið siða­reglur þess efnis. Þor­steinn Már Bald­vins­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Samherja, fékk hins vegar tæki­færi til að svara skrif­lega og í við­tali við frétta­mann Kveiks í nóv­em­ber. Í bréf­inu sagði lög­fræð­ingur Samherja að brot Rík­is­út­varps­ins gegn hegn­ing­ar­lögum gætu varðað allt að tveggja ára fang­elsi. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Lögreglan á nýrri slóð: Fundu skilaboð Þorsteins
AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.
Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“
RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár