Samherji boðsendir lögfræðibréf á tólf manns og vísar til fangelsisvistar

Samherji segir að umfjöllun RÚV um mútu­greiðslur í Namibíu séu „refsi­verðar“ og geti haft í för með sér fang­els­is­vist fyrir ótil­greindan hóp. Allir með­limir í stjórn Rík­is­út­varps­ins fengu boðsent á heim­ili sitt lög­fræði­bréfið frá Samherja.

Samherji boðsendir lögfræðibréf á tólf manns og vísar til fangelsisvistar
Þor­steinn Már Bald­vins­son Frá­far­andi for­stjóri Samherja. Mynd: Morgunblaðið/Kristinn

Tólf manns hafa fengið boðsent lög­fræði­bréf frá útgerð­ar­fé­lag­inu Samherja, þar sem boðað er að for­svars­menn og starfs­menn Rík­is­út­varps­ins geti átt yfir höfði sér fang­els­is­vist allt að tveimur árum.

Samherji krefst þess í bréf­inu að stjórn Rík­is­út­varps­ins, sem er póli­tískt skipuð af Alþingi, grípi inn í frétta­flutn­ing frétta­stofu RÚV sem teng­ist mútu­máli Samherja í Namibíu. „Þess er vænst að bréf þetta verði tekið fyrir í stjórn Rík­is­út­varps­ins án tafar og hátt­semi af því tagi sem hér er lýst haldi ekki ótalin áfram.“

Samherji birtir bréfið á heima­síðu sinni, ásamt heim­il­is­föngum stjórn­ar­manna.

Uppfært: Rúv hefur í kjöl­farið beðið Samherja vel­virð­ingar og dregið frétt­ina til baka.

Fréttamaður vísaði til fyrri umfjöllunar

Í bréf­inu er vísað til fréttar Rík­is­út­varps­ins í tíu­frétta­tíma síð­asta fimmtu­dag, þar sem vísað er til umfjöll­unar um mútu­greiðslur Samherja, sem bæði Rík­is­tú­varpið, Stundin, The Namibian og Al Jazeera hafa fjallað um frá því í nóv­em­ber á síð­asta ári. Í frétt­inni er rætt við Susanna Moorehead, for­mann Þró­un­ar­sam­vinnu­nefndar OECD, um mik­il­vægi þess að veita því eft­ir­lit að þró­un­ar­að­stoð leiði ekki til spill­ingar.

Höfð er eftir Hall­grími Ind­riða­syni frétta­manni í bréf­inu setn­ing þar sem hann vísar til fyrri umfjall­ana. „Tókst Samherja hins vegar að afla sér kvóta í land­inu með því að múta emb­ætt­is­mönnum, eins og fjallað var um í Kveik í vetur, heima­menn nutu því ekki aðstoð­ar­innar sem veitt var.“ 

Stundin hefur, ásamt sam­starfs­að­ilum, fjallað um fyr­ir­tækja­net Samherja á aflands­svæðum og sýnt fram á hvernig hund­ruð millj­óna voru færðir af reikn­ingum Samherja inn á einka­reikn­inga ein­stak­linga í stjórn­kerfi Namibíu, sem taka ákvarð­anir fyrir hönd namibíska rík­is­ins um kvóta­út­hlutun. 

Alls hafa tíu manns verið hand­teknir eða ákærðir í Namibíu vegna máls­ins, meðal ann­ars Bernhard Esau, fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra og Sacky Shangala, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra. Þá var fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Fishcor, Mike Nghip­unya, hand­tek­inn fyrr í dag vegna máls­ins.

Hér­aðs­sak­sókn­ari hefur málið til rann­sóknar hér á landi.

Vísað til fangelsisvistar

Fram kemur í lög­fræði­bréf­inu það mat lög­fræð­ings Samherja að um sé að ræða brot á siða­reglum Rík­is­ú­varps­ins hjá frétta­manni Rúv.

„Hún er ekki studd neinum rökum“

„Þó þessi brot á siða­regl­unum séu alvar­leg er enn alvar­legra að full­yrð­ing frétta­manns Rík­is­út­vars­ins [sic] um að Samherji hafi mútað emb­ætt­is­mönnum í Namibíu er fyr­ir­vara­laus ásökun um alvar­legan refsi­verðan verknað og hún er ekki studd neinum rökum. Samherji hefur hvorki verkið sak­felldur né ákærður fyrir slík brot eða önnur. Enginn starfs­maður Samherja hefur rétt­ar­stöðu sak­born­ings vegna máls­ins. Full­yrð­ing um að heima­menn í Namibíu hafi ekki notið þró­un­ar­að­stoðar vegna meintra athafna Samherja er líka til þess fallin að verða virð­ingu Samherja til hnekkis. Báðar eru full­yrð­ing­arnar fyr­ir­vara­lausar og fela í sér refsi­verðar og bóta­skyldar aðdrótt­anir, sbr. 235. og 236 gr. almennra hegn­ing­ar­laga nr. 19/1940, en brot gegn þessum laga­á­kvæðum varða fang­elsi allt að tveimur árum. Refs­ing­arnar geta bæði þeir sem hafa aðdrótt­anir í frammi átt yfir höfði sér en einnig þeir sem þær birta eða bera út opin­ber­lega og m.a. þess vegna er erindi þessu beint að stjórn Rík­is­út­varps­ins.“

Þá segir í bréf­inu að „fram­ganga af þessu tagi“ geti valdið tjóni sem er  bóta­skylt „og fjár­hæðir ráð­ist af þeim við­skipta­hags­munum og orð­spori sem er undir“.

Samherji krefst þess að Rík­is­út­varpið „birti án tafar leið­rétt­ingu“ og „biðj­ist und­an­drátt­ar­laust afsök­unar“. Þá segir að Samherji „áskilur sér auk þess rétt til að höfða mál vegna þess­ara ummæla og ann­arra“.

Sent heim til stjórnarmanna

Bréf Samherja er und­ir­ritað af lög­mann­inum Magnúsi Ósk­ars­syni, sonar fyrr­ver­andi stjórn­ar­manns í Samherja, sem skrif­aði opið bréf í Morg­un­blaðið á dög­unum þar sem kvartað var undan umfjöll­unum Rúv af hneyksl­is­málum. Ekki kom þar fram að Magnús starf­aði fyrir Samherja.

Bréfið er sent á heim­ili eft­ir­far­andi aðila: Kára Jón­as­sonar, for­manns stjórnar, Birnu Þór­ar­ins­dóttur stjórn­ar­manns, Brynj­ólfs Stef­áns­sonar stjórn­ar­manns, Elísa­betar Indru Ragn­ars­dóttur stjórn­ar­manns, Guðlaugs G. Sverr­is­sonar stjórn­ar­manns, Jóns Ólafs­sonar stjórn­ar­manns, Láru Hönnu Ein­ars­dóttur stjórn­ar­manns, Marðar Árna­sonar stjórn­ar­manns, Ragn­heiðar Rík­harðs­dóttur stjórn­ar­manns, Valgeirs Vil­hjálms­sonar stjórn­ar­manns, Mar­grétar Magn­ús­dóttur, starf­andi útvarps­stjóra, og Stefáns Eiríks­sonar, verð­andi útvarps­stjóra.

Kári Jónasson, for­maður stjórnar RÚV, segir að bréfið hafi ekki verið tekið fyrir. „Stjórnin hefur ekk­ert með þetta að gera. Þetta er rit­stjórn­ar­vald frétt­ar­stof­unnar. Stjórnin hefur ekk­ert með rit­stjórn­ar­vald frétta­stof­unnar að gera, á hvaða deild sem er í Rík­is­út­varp­inu,“ segir hann í sam­tali við Stundina.

Bréf SamherjaSamherji segir að Rúv hafi brotið gegn lögum og refs­ingin geti varðað tveggja ára fang­elsi.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
6
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár