Reykjavíkurborg kaupir klósett fyrir 5 milljónir

Borgin greiðir 2 millj­ónir króna fyrir sér­fræði­þjón­ustu um hvernig reka eigi sjálf­virk almenn­ings­sal­erni. Til stendur að rífa öll kló­settin næst­kom­andi haust.

Reykjavíkurborg kaupir klósett fyrir 5 milljónir
Borgin kaupir kló­sett Sjálf­virk almenn­ings­sal­erni verða áfram til­tæk í mið­borg Reykja­víkur. Mynd: Reykjavik.is

Reykja­vík­ur­borg hefur keypt sjö almenn­ings­sal­erni í mið­borg­inni af fyrri eig­anda. Til stóð að loka sal­ern­unum um síð­ustu ára­mót, eftir að borgin ákvað að end­ur­nýja ekki þjón­ustu­samn­ing við eig­anda sal­ern­anna. Ef af hefði orðið hefðu engin sjálf­virk almenn­ings­sal­erni verið til staðar í mið­borg­inni. Af því varð þó ekki eftir að borgin keypti sal­ernin.

Salernin sjö keypti borgin fyrir fimm millj­ónir króna, en greiddi jafn­framt tvær millj­ónir króna fyrir sér­fræði­þjón­ustu fyrri eig­anda, „enda þekk­ing á rekstri sjálf­virkra almenn­ings­sal­erna af skornum skammti,“ að því er segir í svari frá skrif­stofu rekstrar og umhirðu borg­ar­lands­ins við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar. Þá var einnig keypt þjón­ustu­bif­reið fyrir þrjár millj­ónir en sú mun eftir því sem fram kemur í svari frá borg­inni að mestu nýt­ast í önnur verk­efni. Í heild voru því greiddar tíu millj­ónir króna þegar Reykja­vík­ur­borg tók yfir rekstur sal­ern­anna. Eitt sal­ernið mun vera bilað og hafa verið bilað frá því um mitt ár í fyrra. Ekki stendur til að laga það og eru því sex sjálf­virk almenn­ings­sal­erni í rekstri í dag.

EHer­manns­son, sem áður hét AFA JDCecaux, átti og rak sal­ernin en borgin ákvað að end­ur­nýja ekki samn­ing við fyr­ir­tækið um þjón­ust­una. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá EHer­manns­son munu um 100 þús­und manns hafa notað sal­ernin árlega og mun borgin hafa greitt um 40 millj­ónir króna á ári til fyr­ir­tæk­is­ins vegna rekstrar þeirra.

Enn stendur til að bjóða út upp­setn­ingu og rekstur nýrra sal­erna og eru kaup borg­ar­innar því skamm­tíma­lausn. Ástæðan er sú að núver­andi sal­erni stand­ast ekki kröfur um aðgengi hreyfi­haml­aðra. Vonast er til að hægt verði að taka ný sal­erni í notkun í ágúst á þessu ári. Þegar til þess kemur mun borgin því kosta nið­ur­rif eldri sal­erna. Ekki er tekið gjald fyrir not á sal­ern­unum nú um stundir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár