Sautján ára transstrákur fær ekki vernd á Íslandi

Á mánu­dag­inn stendur til að flytja úr landi írönsk hjón og sautján ára son þeirra, sem kom út sem trans hér. Fjöl­skyldan hefur dvalið á Íslandi í rétt tæp­lega eitt ár. Hún er með gögn sem sýna að varð­sveitir íranskra stjórn­valda, Sepah, leita þeirra í Portúgal, þangað sem á að senda þau.

Sautján ára transstrákur fær ekki vernd á Íslandi
Maní Hann gengur í Fjöl­brauta­skóla Suð­ur­nesja, þar sem hann hefur eign­ast vini, auk þess að hafa tengst hinsegin sam­fé­lag­inu á Íslandi. Honum líður vel hér. Mynd: Davíð Þór

Íslensk stjórn­völd hafa kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að ekki skuli taka umsókn fjöl­skyldu frá Íran um alþjóð­lega vernd til efn­is­legrar með­ferðar hér á landi. Fjöl­skyld­unni hefur nú verið til­kynnt að hún verði send úr landi næst­kom­andi mánu­dag. Mál fjöl­skyld­unnar fellur undir Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ina, þar sem þau eru með vega­bréfs­á­ritun útgefna af portú­gölskum yfir­völdum. Þarlend yfir­völd hafa sam­þykkt að taka við fjöl­skyld­unni og því verður mál þeirra ekki skoðað hér. Fjöl­skyldan hefur hins vegar gögn sem þau telja sýna að þeim sé hætta búin í Portúgal. Íslensk stjórn­völd hafa ekki lagt mat á þau gögn. „Við erum í örvænt­ing­ar­fullri leit að hjálp, en nú er okkur sagt að við þurfum að fara úr landi á mánu­dag­inn. Jafnvel þó að við höfum sann­anir um að verið sé að leita að okkur í Portúgal er ekki tekið til­lit til þeirra,“ segir móð­irin, Shokoufa. „Portú­gölsk yfir­völd full­yrða að við verðum örugg þar en það ekki …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár