Á brúð­kaups­dag­inn Samband þeirra Veigars var sterkt og fyrstu árin voru þau mjög ham­ingju­söm. Mynd: Úr einkasafni

Syrgði eiginmanninn sem vildi verða kona

Helga Snædal var í ham­ingju­sömu hjóna­bandi þegar þörf eig­in­manns­ins til að klæða sig í kven­manns­föt ágerð­ist. Hann ákvað síðan að fara í kyn­leið­rétt­inga­ferli og fannst hún ósann­gjörn að vilja skilnað. Grétar Veigar Grét­ars­son var stóra ástin í lífi hennar og skiln­að­ur­inn var sár.

Í dag hafa þær Helga Snædal og Veiga Grét­ars­dóttir yfir­stigið erf­ið­leik­ana sem fylgdu kyn­leið­rétt­ingu Veigu og þeim stóru breyt­ingum sem varð á lífi þeirra beggja í kjöl­farið. Þær sam­mæl­ast um að vin­átta og gagn­kvæm virð­ing sé mik­il­væg til að ala upp átta ára gamla dóttur þeirra. Áður en þær komust á þennan stað þurfti Helga tíma og aðstoð fag­fólks til þess að jafna sig á álag­inu og streit­unni sem fylgdi því að eig­in­maður hennar tók ákvörðun um að verða kona. 

Helga deilir hér reynslu sinni sem fyrr­ver­andi eig­in­kona manns sem vildi verða kona og er búinn að ganga í gengum kyn­leið­rétt­ing­ar­ferlið. „Ég tala alltaf um hann þegar ég tala um for­tíð­ina,“ segir Helga. „Veiga vill samt meina að hún hafi alltaf verið kona. Hún var þó ekki konan mín. Veigar var mað­ur­inn …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár