Flutti eldræðu um dýraiðnaðinn: „Síðan tökum við mjólkina“

Joaquin Phoenix fagn­aði verð­launum fyrir hlut­verk sitt í Joker með hug­vekju um mann­kynið og dýra­iðn­að­inn.

Flutti eldræðu um dýraiðnaðinn: „Síðan tökum við mjólkina“
Joaquin Phoenix „Ég hef verið óþokki,“ sagði Phoenix, með verð­laun í hönd­unum fyrir Joker.

Joaquin Phoenix, sem hefur verið vegan frá því hann var þriggja ára gam­all, hélt eldræðu um fram­komu mann­kyns­ins við aðrar dýra­teg­undir, í þakk­ar­ræðu sinni eftir að hann hlaut verð­laun sem besti leik­ar­inn, í kvik­mynd­inni Joker, á Ósk­arsverð­laun­unum í nótt.

„Við teljum okkur eiga til­kall til þess að sæða kýr og stela afkvæmi hennar, jafn­vel þótt harma­kvein hennar séu auð­heyr­an­leg. Síðan tökum við mjólk­ina, sem er ætluð kálfi hennar, og við setjum hana í kaffið okkar og morg­un­kornið,“ sagði hann.

„Ég held að við ótt­umst hug­mynd­ina um per­sónu­legar breyt­ingar vegna þess að við höldum að við þurfum að fórna ein­hverju og láta af ein­hverju, en mann­eskjur, upp á sitt besta, búa yfir hug­mynda­auðgi og snilld, og ég held að þegar við byggjum á ást og sam­hyggð sem grund­vall­ar­at­riði, getum við skapað, þróað og inn­leitt kerfi sem breyta fyrir allar skynj­andi verur og umhverfið.“

Joaquin gerði jafn­framt upp við sína eigin fram­komu gagn­vart öðrum og lof­aði þá sem veita end­ur­lausn. 

„Ég hef verið sjálfselskur. Ég hef verið grimmur“

„Ég hef verið óþokki, í mínu lífi. Ég hef verið sjálfselskur. Ég hef verið grimmur, erf­iður í sam­starfi. Og ég er svo þakk­látur að svona margir hérna inni hafa gefið mér annað tæki­færi. Og ég held að þá séum við upp á okkar besta, þegar við styðjum hvert annað, ekki þegar við úti­lokum hvert annað út á mis­tök for­tíð­ar­innar, heldur þegar við hjálpum hvert öðru að vaxa, þegar við upp­fræðum hvert annað, þegar við leiðum hvort annað til lausnar. Þannig er mann­kynið best.“

Undir lok ræðu sinnar vitn­aði Joaquin í texta bróður síns, Rivers Phoenix, frá því  hann var sautján ára. „Hlauptu til bjargar með ást, og friður mun fylgja.“

River Phoenix, sem einnig var bæði leik­ari og bar­áttu­maður fyrir rétt­indum dýra, lést 23 ára gam­all fyrir utan næt­ur­klúbb í Hollywood, eftir að hafa tekið of stóran skammt vímu­efna, þegar Joaquin var 19 ára.

Joaquin Phoenix hefur verið vegan frá því hann var þriggja ára gam­all, að hans sögn eftir að hafa skynjað órétt­læti við að sjá fisk veiddan og slegið í hlið báts­ins til aflíf­unar.

Verð­launa­ræða Joaquin PhoenixEftir að hafa hlotið verð­launin fyrir besta leik í aðal­hlut­verki í kvik­mynd­inni Joker, hélt Joaquin Phoenix eldræðu um kær­leik­ann og notkun mann­kyns­ins á öðrum dýra­teg­undum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár