Fyrst Íslendinga til að vinna Óskarsverðlaun

„Þetta er villt augna­blik,“ sagði Hildur Guðna­dóttir í nótt.

Fyrst Íslendinga til að vinna Óskarsverðlaun

„Ég heyrði nafnið mitt, og ég labba upp á svið, hugs­andi: Ég get þetta, ég get þetta. Og þegar ég kom á sviðið sá ég að allir stóðu. Það felldi mig alveg,“ sagði tón­skáldið og selló­leik­ar­inn Hildur Guðna­dóttir eftir að hafa orðið fyrsti Íslend­ing­ur­inn til að vinna Ósk­arsverð­laun og fyrsta konan til að vinna verð­launin ein fyrir kvik­mynda­tón­list.

Í við­tölum eftir að hafa tekið við verð­laun­unum sagð­ist hún  hafa reynt að kom­ast inn í hug­ar­heim Jókers­ins og kafa ofan í drif­kraft sög­unnar þegar hún gerði tón­lista um kvik­mynd­ina.

„Það var aðal­inn­blást­ur­inn minn,“ sagði hún.

Hildur hefur gert tón­list við fjöl­margar íslenskar kvik­myndir og sjón­varps­þátt­araðir, meðal ann­ars Eiðinn eftir Baltasar Kormák og Ófærð með Jóhanni Jóhanns­syni. Magn­þrungin túlkun Hildar á sálm­inum Heyr himna­smiður heyrð­ist svo í banda­rísku þátta­röð­inni vin­sælu A Handmaid’s tale árið 2017. Hildur gerði tón­list­ina við kvik­mynd­irnar Mary Magda­lene og Sicario ásamt Jóhanni Jóhanns­syni, og tón­list við meðal ann­ars kvik­mynd­irnar Journey’s End, Tom of Finland, Strong Island og Sicario áður en hún sóp­aði að sér verð­launum fyrir Chernobyl-þátta­röð­ina og Joker.

Hún er einnig fyrsta konan sem vinnur Golden Globe og Bafta-verð­launin ein án sam­starfs við annað tón­skáld.

Viðtal við Hildi eftir verð­launinHér útskýrir Hildur meðal ann­ars leynd­ar­málið við gerð kvik­mynda­tón­listar, hvernig kafa þurfi ofan í sög­una og greina hvað drífur hana áfram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár