Leggja til að breyta samræmdu prófunum

Starfs­hópur á vegum mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyts­ins leggur til að fyr­ir­komu­lagi sam­ræmdra próf í 4., 7. og 9. bekk verði breytt umtals­vert. Próf verði ekki lengur kölluð próf, heldur mats­fer­ill og eitt af mark­miðum þess­ara breyt­inga er að draga úr kvíða nem­enda og vinnu­á­lagi kenn­ara.

Leggja til að breyta samræmdu prófunum
Í skóla Nái til­lögur starfs­hóps­ins fram að ganga verður umtals­verð breyt­ing á fyr­ir­komu­lagi prófa í grunn­skólum. Í stað fárra og umfangs­mik­illa prófa eins og nú tíðkast yrðu fleiri, styttri og fjöl­breytt­ari próf og verk­efni. Mynd: Shutterstock

Fyr­ir­komu­lagi sam­ræmdra prófa í 4., 7. og 9. bekk grunn­skóla verður breytt, gangi til­lögur starfs­hóps sem skip­aður var af mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu fram að ganga. Lagt er til að í stað fárra og umfangs­mik­illa prófa eins og nú er verði þau fleiri og styttri.

Starfs­hóp­ur­inn skil­aði nýverið skýrslu með til­lögum um fram­tíð­ar­stefnu um sam­ræmt náms­mat. Þar segir meðal ann­ars að í stað þess að tala um próf verði notað heitið mats­fer­ill um náms­mat í grunn­skólum. Lagt er til að áherslan verði á fjöl­breytt, stutt, hnit­miðuð, raf­ræn próf eins og það er orðað í skýrsl­unni og að skól­arnir hafi fullt val­frelsi til að nýta sér þau innan vissra marka.

Í núver­andi fyr­ir­komu­lagi sam­ræmdra prófa felst að þau eru lögð fyrir 4. og 7. bekk í íslensku og stærð­fræði og 9. bekk í íslensku, stærð­fræði og ensku. Í skýrsl­unni kemur fram að það sé mat starfs­hóps­ins að mörg lítil próf …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár