Frelsissvipt vegna Wuhan- kórónaveirunnar

Stefán Úlf­ars­son og fjöl­skylda hans komu frá Kína á mánu­dag­inn og eru nú í sótt­kví á heim­ili sínu vegna hættu á sýk­ingu af völdum Wuhan-kór­óna­veirunnar.

Frelsissvipt vegna Wuhan- kórónaveirunnar
Í Kína Allt landið er nú skil­greint sem hættu­svæði vegna Wuhan-kór­óna­veirunnar og fregnir hafa borist af því að and­lits­grímur séu upp­seldar víða um þetta stóra land. Stað­festur fjöldi sýk­inga er um 30.000. Mynd: Shutterstock

Íslenskri fjöl­skyldu sem kom frá Kína á mánu­dag­inn var upp­álagt að fara í tveggja vikna sótt­kví vegna mögu­legs smits af Wuhan-kór­óna­veirunni, 2019-nCoV. Ekki er vitað til þess að neinn Íslend­ingur hafi smit­ast af henni. Allt Kína er nú skil­greint sem hættu­svæði vegna veirunnar og Ísland gengur lengra en önnur lönd í að verj­ast smiti frá veirunni.

„Áður voru bara Hubei-hérað og Wuhan-borg skil­greind sem hættu­svæði, en núna er allt Kína skil­greint þannig,“ segir Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Und­an­farna morgna hefur hann haldið dag­lega stöðu­fundi með aðilum sem koma að sam­hæf­ing­ar­stöð almanna­varna. Meðal þeirra er emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra, Land­spít­al­inn, heilsu­gæslan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, Rauði kross­inn, Lands­björg og aðilar ferða­þjón­ust­unnar og eftir einn slíkan fund í vik­unni voru þau til­mæli gefin út til allra Íslend­inga sem koma frá Kína að vera til öryggis í sótt­kví í 14 daga frá kom­unni til lands­ins.

Sótt­varna­læknir Það sem við erum að gera núna …
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár