Fagnar sjö ára afmæli í dag og verður fluttur úr landi á mánudag

Muhammed Zohair Faisal á sjö ára afmæli í dag og á marga vini í Vest­ur­bæj­ar­skóla sem vilja fagna því með honum. Líklega verður þó lítið um veislu­höld, því til stendur að fylgja honum úr landi á mánu­dag­inn með for­eldrum sínum, Niha og Faisal. Þau eru bæði háskóla­menntuð, hafa beðið í tvö ár eftir úrlausn sinna mála hér á landi og máttu ekki vinna á meðan. Und­ir­skrifta­söfnun fyrir þau var sett af stað seint í gær­kvöldi sem 3.300 manns höfðu skrifað undir uppúr hádegi í dag.

Fagnar sjö ára afmæli í dag og verður fluttur úr landi á mánudag
Muhammed Þegar pabbi hans sagði honum að þau væru að fara til Pakistan leist honum vel á það ferða­lag. Hann hélt þau væru að fara í ferða­lag og spurði: „En hvenær komum við svo aftur heim?“ Mynd: Heiða Helgadóttir

Uppúr klukkan tíu í gær­kvöldi settu for­eldrar vina Muhammeds Zohair Faisal, sem er sjö ára nem­andi við Vest­ur­bæj­ar­skóla, af stað und­ir­skrift­ar­söfnun til að þrýsta á íslensk stjórn­völd að hætta við brott­vísun hans og for­eldra hans á mánu­dag­inn, 3. febr­úar. Und­ir­skrift­ar­söfn­unin hlaut strax mikið braut­ar­fylgi, um mið­nætti höfðu 750 manns skrifað undir hana. 3.300 manns höfðu skrifað undir hana í hádeg­inu í dag og bæt­ist hratt í hóp fólks sem skrifar undir. 

Muhammed á sjö ára afmæli í dag, laug­ar­dag­inn 1. febr­úar. Hann var fjög­urra ára, alveg að verða fimm, þegar for­eldrar hans komu til Íslands og sóttu um hæli hér. Þau eru frá Islama­bad í Pakistan en hafa ekki komið þangað í tíu ár. Áður en þau komu til Íslands bjuggu þau í nær ára­tug í Óman. Að búa í Pakistan var ekki inni í mynd­inni fyrir þau, þar sem þau ótt­ast hefnd­ar­að­gerðir fjöl­skyldu hennar. Þau giftu sig í óþökk föð­ur­bróður hennar, sem að þeirra sögn var áður fyrr hátt settur maður í Alrík­is­lög­reglu Pakistan. Hann er jafn­framt faðir manns­ins sem Niha átti að gift­ast. Því til við­bótar eru þau Faisal og Niha ekki úr sömu stétt, en brúð­kaup stétta á milli er illa séð á þeirra heima­slóðum. 

Niha, Muhammad og FaisalUm það bil tíu ár eru frá því hjónin yfir­gáfu Pakistan. Þau gift­ust í óþökk fjöl­skyldu hennar og ótt­ast um afdrif sín þar.

Faisal og Niha eru bæði háskóla­menntuð á sviði við­skipta, hann með meistara­gráðu og hún með BS-gráðu. Í Óman vann Faisal við bók­hald í bygg­ing­ar­iðn­aði og hún vann í banka. Þau áttu gott líf þar en höfðu hins vegar ekki mögu­leika á að fá rík­is­borg­araétt. Þar sem þau ótt­uð­ust að missa atvinnu­leyfið og þurfa að fara aftur til Pakistan ákváðu þau að fara lengra í burtu, eitt­hvert þar sem þau væru örugg. Eftir nokkra leit að örugg­asta staðnum tóku þau ákvörðun um að fara til Íslands. Þau seldu bíl­inn sinn, sögðu upp störfum sínum og yfir­gáfu heim­ili sitt. Þau komu hingað í des­em­ber 2017 og sóttu um hæli hér. Þau áttu ekki von á því að fram undan yrði langur tími sem færi fyrst og fremst í bið og að þau mættu ekki nýta menntun sína og reynslu til að vinna á meðan.

„Hann er svo dug­legur strákur og sér­stak­lega klár í stærð­fræði. Ég segi það ekki bara af því að ég er mamma hans“

Biðin hefur reynt á þau Faisal og Nihu en sonur þeirra varð ekki var við hana. Á meðan á henni hefur staðið hefur hann aðlag­ast líf­inu á Íslandi vel. Hann talar lýta­lausa íslensku, stendur sig afburða­vel í skóla, lyndir vel við skóla­systkin sín og á góða vini. „Hann er svo dug­legur strákur og sér­stak­lega klár í stærð­fræði. Ég segi það ekki bara af því að ég er mamma hans. Faisal, viltu sýna henni heima­vinnu­heftið hans?“ segir Niha. Þau taka fram stærð­fræði­bók sem sýnir ansi flókna útreikn­inga, með marg­földun og deil­ingu hárra talna. 

Þau tóku á móti blaða­manni í litlu stúd­íó­í­búð­inni þar sem þau hafa búið und­an­farin tvö ár. Í kringum þau eru ferða­töskur, þau eru byrjuð að pakka fyrir ferð­ina sem þau vilja síst af öllu fara í. Þegar Faisal sagði Muhammad fyrir nokkrum dögum að fjöl­skyldan væri að fara til Pakistan varð hann spenntur, því þangað hefur hann aldrei komið. Hann hélt þau væru að fara í ferða­lag og spurði strax: „En hvenær komum við svo aftur heim?“ „Ísland er eina heim­ilið sem hann þekkir,“ segir pabbi hans. 

VinirMuhammed með vinum sínum, Bjarti og Illuga.

Í beiðn­inni til stjórn­valda nefna stuðn­ings­menn fjöl­skyld­unnar þá stað­reynd, að Muhammed þekkir ekki heima­land for­eldra sinna, heldur lítur á Ísland sem sinn stað í til­ver­unni. „Þegar máls­með­ferð ungs barns hefur staðið yfir í  rúm­lega tvö ár bera stjórn­völd ríkar skyldur gagn­vart barn­inu, sem dvalið hefur hér stóran hluta ævi sinnar og aldrei séð heima­land for­eldr­anna. Íslensk stjórn­völd hafa gefið það út að Ísland skuli verða besta land í heimi fyrir börn. Sýnum það í verki,“ segir í áskor­un­inni. 

„Ísland er eina heim­ilið sem hann þekkir“

Þegar lög­reglan kom að und­ir­búa fjöl­skyld­una fyrir brott­flutn­ing­inn og skoða hversu mik­inn far­angur hún hygð­ist taka með sér tók Mohammed lög­reglu­mönn­unum opnum örmum, vildi sýna þeim dótið sitt og leika við þá. Hann spurði þá líka hvort þeir vildu ekki bara búa með þeim, þarna í íbúð­inni. „Hann er svona opinn og glaður strákur og vill vera vinur allra. Við fáum ekki oft gesti svo hann var mjög spenntur yfir því að fá lög­reglu­menn­ina í heim­sókn. Þeir tóku honum líka vel og voru góðir við hann. Svo­leiðis er þetta á Íslandi. Lög­reglan og fólkið hjá Útlend­ingstofnun kemur vel fram við okkur. Það er annað en við megum eiga von á í Pakistan. Þar er ekki komið svona vel fram við þig, nema þú sért hátt settur. Í Pakistan eru heið­urs­morð ennþá við lýði. Við erum mjög hrædd við að fara þangað aftur,“ segir Niha. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár