Ísland sagt aðstoða við að finna mútupeninga Namibíumannanna í Samherjamálinu

Yfirvöld á Íslandi, og í nokkrum öðrum löndum, eru sögð aðstoða yfir­völd í Namibíu við að hafa uppi á eignum Namib­íu­mann­anna í Sam­herj­a­mál­inu. Fjár­mála­ráð­herra Namibíu, Carl Schwettlein, segir erfitt að hald­leggja eignir í öðrum löndum.

Ísland sagt aðstoða við að finna mútupeninga Namibíumannanna í Samherjamálinu
Frá Íslandi til Dubaí Rann­sóknin á Samherja teygir sig víða um lönd, allt frá Íslandi til Namibíu og Dubaí. Þor­steinn Már Bald­vins­son sést hér við hlið James Hatuikulipi, sem er vinstra megin við hann, en hann átti félagið í Dubaí sem tók við mútu­greiðsl­unum frá Samherja.

Yfirvöld á Íslandi eru sögð aðstoða yfir­völd í Namibíu við að reyna að hafa upp á pen­ingum í fursta­dæm­inu Dubaí sem namibískir áhrifa­menn fengu greidda í mútur frá Samherja. Um var að ræða að minnsta kosti hálfan millj­arð króna sem félagið Tunda­vala Invest­ments fékk greitt frá tveimur félögum Samherja á Kýpur, meðal ann­ars félag­inu Esju Seafood á Kýpur. Félagið Tunda­vala var í eigu James Hatuikulipi, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­manns rík­is­fyr­ir­tæk­is­ins Fiscor í Namibíu, sem er einn af höf­uð­paur­unum í mútu­máli Samherja í Namibíu sem sagt var frá í sam­vinnu Wikileaks, Kveiks, Stund­ar­innar og Al Jazeera í nóv­em­ber. Þetta kemur fram í namibíska dag­blað­inu The Namibian í dag. 

Í namibíska blað­inu er við­tal við sak­sókn­ara í Namibíu, Albert Kawana, þar sem hann ræðir um hversu flókin alþjóð­leg sam­vinna getur verið …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár