Lýsir biðinni eftir að stúlkan fyndist: „Þetta voru hræðilega erfiðar 40 mínútur“

Helena Jóns­dóttir, sál­fræð­ingur á Flateyri, segir að biðin eftir því að stúlkan sem lenti í snjó­flóð­inu á Flateyri fynd­ist hafi verið afar erfið. And­rúms­loftið í þorp­inu ein­kenn­ist af náunga­kær­leik og sam­stöðu.

Lýsir biðinni eftir að stúlkan fyndist: „Þetta voru hræðilega erfiðar 40 mínútur“
Segir Flat­eyr­inga ekki brotna Helena Jóns­dóttir, sál­fræð­ingur á Flateyri, segir að þrátt fyrir að snjó­flóðin hafi verið áfall þá séu heima­menn ekki brotnir heldur séu þeir fyrst og fremst upp­teknir af því að huga að náung­anum.

„Þetta er hræði­legt áfall og manni þykir mjög und­ar­elgt að það falli tvo flóð þarna á nán­ast sama tíma. Fyrra flóðið olli auð­vitað miklu áfalli, tjónið var mikið og fólk var kannski svo­lítið ruglað á eftir. Alvöru áfallið kom hins vegar eftir seinna flóðið, þegar að við fréttum að það væri ung stúlka grafin undir. Þetta voru hræði­lega erf­iðar 40 mín­útur, þar til við átt­uðum okkur á því að þetta fór jafn ótrú­lega vel og raun bar vitni,“ segir Helena Jóns­dóttir, íbúi á Flateyri og sál­fræð­ingur hjá áfallateymi Rauða kross­ins á Vest­fjörðum.

„Þetta lýsir bara hvers konar ótrú­legt fólk býr hér“

Helena segir að flóðin í gær ýfi upp hræði­lega erfið sár frá því fyrir ald­ar­fjórð­ungi hjá þeim sem þá voru búsettir á Flateyri. „En það er svo merki­legt, þeir sem upp­lifðu áfallið fyrir 25 árum síðan, þau hafa miklu meiri áhyggjur af okkur nýlið­unum í þorp­inu. Þau eru meira að tékka á okkur og okkar líðan. Þetta lýsir bara hvers konar ótrú­legt fólk býr hér,“ sagði Helena en um leið neydd­ist hún til að kveðja blaða­mann þar eð björg­un­ar­sveitin þurfti á kröftum hennar að halda.

Fá mikla aðstoð

Blaða­maður heyrði aftur í Helenu um fjög­ur­leytið en þá hafði hún unnið að sál­gæslu nágranna sinna frá því að hún kvaddi í fyrra sím­tali. Spurð hvort það væri ekki flókið í ljósi þess að hún sjálf hefði orðið fyrir áfalli sem íbúi í þorp­inu sagði Helena að það væri það jú upp að vissu marki en hún hefði einnig fengið gríð­ar­lega góða aðstoð hjá öðrum sem mynda áfallateymi Rauða kross­ins á Vest­fjörðum en það fólk kom með varð­skip­inu Þór um miðjan dag. „Það getur líka hjálpað að vera að ganga í gegnum það sama og mann­eskjan sem ég er að reyna að hjálpa, það auð­veldar mér að aðstoða.“

„Svo ein­hvern veg­inn leysum við þetta saman“

Spurð hvernig henni þyki and­legt ástand Flat­eyr­inga vera eftir áfallið segir Helena það fyrst og fremst ein­kenn­ast af náunga­kær­leik og sam­stöðu. „Andlegt ástand þorps­búa er auð­vitað ekki gott en það er heldur ekki þannig að hér séu allir brotnir. Hér ríkir bara náunga­kær­leikur og sam­staða og það er fyrsta verk­efni allra, að tékka á næsta manni og að láta hann tékka á þér til baka. Svo ein­hvern veg­inn leysum við þetta saman. Áfallið er svo­lítið liðið, það er ekki eins og við sitjum uppi með hræði­legar, óaft­ur­kall­an­legar afleið­ingar. Þetta er eigna­tjón, ekki mann­tjón, og það auð­vitað gerir þetta ein­hvern veg­inn þannig að fólk getur þjappað sér saman. Það er eng­inn yfir­bug­aður af sorg.“

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Snjóflóð á Flateyri

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
5
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár