Trump biður Nató að blanda sér í deiluna í Miðausturlöndum

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti kall­aði eftir aðkomu Nató að deil­unni í Mið­aust­ur­löndum og hvatti Breta, Frakka, Kínverja og Rússa til að taka afstöðu gagn­vart Íran. Engu að síður sagði hann Banda­ríkin vilja semja frið við hvern þann sem vildi frið.

Trump biður Nató að blanda sér í deiluna í Miðausturlöndum
Donald Trump Boðaði til ávarps klukkan fjögur í dag að íslenskum tíma í kjöl­far loft­árása Írana á her­stöðvar Banda­ríkj­anna.

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti vill að Norður-Atl­ants­hafs­banda­lagið, sem Íslend­ingar eru aðilar að, blandi sér inn í átökin í Mið­aust­ur­löndum sem snú­ast um Íran.

Þetta kom fram í nýyf­ir­stöðnu ávarpi Trumps þar sem hann boð­aði við­brögð Banda­ríkj­anna við hefnd­ar­árás Írana. Svo virð­ist sem Trump vilji bakka frá frek­ari átökum við Íran, að minnsta kosti tíma­bundið.

„Í dag ætla ég að biðja Nató um að blanda sér mun meira í ferlið í Mið­aust­ur­löndum,“ sagði Trump. Hann sagði að sá tími væri lið­inn að Íranir kæmust upp með aðgerðir sínar í Mið­aust­ur­löndum. „Tími er kom­inn til að Bretland, Þýska­land, Frakk­land, Rússland og Kína við­ur­kenni þennan veru­leika. Þau þurfa núna að slíta sig frá leif­unum af sam­komu­lag­inu við Íran. Og við þurfum öll að vinna saman að því að gera samn­ing við Íran sem gerir heim­inn að örugg­ari og frið­sam­ari stað.“ 

Jafn­framt tíund­aði Trump að Banda­ríkja­her væri sá öfl­ug­asti í heimi og ætti „hrað­virkar og ban­vænar“ eld­flaugar. 

Varaði Íran við því að eignast kjarnorkuvopn

„Svo lengi sem ég er for­seti mun Íran ekki öðl­ast kjarn­orku­vopn,“ sagði Trump í upp­hafi ávarps­ins. Hann sak­aði síð­asta for­seta Banda­ríkj­anna um að hafa fjár­magnað hryðju­verka­starf­semi Írana, með „heimsku­legum“ kjarn­orku­samn­ingi. „Í stað þess að þakka Banda­ríkj­unum sungu þau: „Banda­ríkin deyji“.

Full­yrð­ing Trumps um greiðslur frá Obama-rík­is­stjórn­inni til Írans hefur áður verið borin til baka, en Obama átti þátt í alþjóð­legum samn­ingi við Íran um aflétt­ingu við­skipta­þving­ana gegn því að Íranir hættu þróun kjarn­orku­vopna.

Meðal full­yrð­inga Trumps í ávarp­inu er að Íran hafi „skapað hel­víti“ í Jemen, Sýrlandi, Líbanon, Afganistan og Írak, fjár­magnað af samn­ingi Baracks Obama.

Ávarpaði írönsku þjóðina

Trump boð­aði að hann myndi ávarpa þjóð sína í dag klukkan fjögur að íslenskum tíma. Tilefnið var  fréttir gær­kvölds­ins um að Íranar hefðu svarað drápi Banda­ríkja­manna á hers­höfð­ingj­anum Qasem Suleimani fyrir fimm dögum með loft­árás á tvær her­stöðvar Banda­ríkj­anna í Írak. Fram hefur komið að eng­inn hafi lát­ist í árás­unum og telja Íranir þær vera „hóf­legt and­svar“ við drápi Banda­ríkj­anna á Suleimani, sem var einn valda­mesti maður Írans, en Trump flokkar hann sem „sví­virði­legan hryðju­verka­mann“.

„Íran getur verið mik­il­feng­legt land“

„Við stopp­uðum hann,“ sagði Trump um Suleima­ini, sem hann full­yrðir að hafi haft í hyggju að gera árás.

„Hann hefði átt að vera gerður óvirkur fyrir löngu síðan,“ bætti hann við.

Trump boð­aði hertar refsi­að­gerðir gegn Íran, en boð­aði jafn­framt sættir. „Íran getur verið mik­il­feng­legt land,“ sagði Trump um leið og hann hvatti Írana til að forð­ast ofbeldi og hryðju­verk. „Banda­ríkin eru til­búin að gera frið við hvern þann sem sæk­ist eftir honum,“ sagði Trump. „Við viljum að þið eigið fram­tíð,“ sagði hann við írönsku þjóð­ar­innar í lok ávarps­ins.

Ávarp TrumpsTrump hafði boðað ávarp klukkan fjögur í dag.

Þingið í Írak sam­þykkti í kjöl­far dráps­ins á Suleimani form­lega þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að vísa banda­ríska hernum frá Írak. For­sæt­is­ráð­herra Íraks hefur ekki stað­fest eða fram­kvæmt ákvörð­un­ina.

Fyrir kjör sitt sem for­seti Banda­ríkj­anna árið 2017 hafði Trump boðað að hann myndi draga banda­ríska her­menn frá Írak.

Þá hefur vakið athygli að Trump sak­aði Obama á sínum tíma um að reyna að stofna til stríðs við Íran, til þess að auka lík­urnar á því að ná end­ur­kjöri sem for­seti árið 2012, en Trump berst sjálfur fyrir end­ur­kjöri í nóv­em­ber næst­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár