Hulda Vilhjálmsdóttir vann Tilberann 2019

Hulda verð­launuð fyrir að vera afkasta­mik­ill mynd­list­ar­maður síð­ustu tvo ára­tugi. Frá útskrift árið 2000 hefur Hulda haldið hátt í 50 einka­sýn­ingar, 40 sam­sýn­ingar, fjölda gjörn­inga og fleira.

Hulda Vilhjálmsdóttir vann Tilberann 2019

Til­ber­inn var afhentur í fjórða skiptið í afmælis- og nýárspar­tíi Nýlista­safns­ins 4. jan­úar síð­ast­lið­inn. Málarinn Hulda Vil­hjálms­dóttir hlaut verð­launin fyrir störf sín síð­ustu tvo ára­tugi í þágu mynd­listar, en hún hefur verið ein af afkasta­mestu mynd­list­ar­mönnum lands­ins.

Hulda verð­launuð fyrir dugnaðHulda hefur verið ein af afkasta­mestu lista­fólki lands­ins og er fyrsti mynd­list­ar­mað­ur­inn til að hljóta Til­ber­ann fyrir list­sköpun en ekki önnur störf í þágu mynd­list­ar­innar.

Til­ber­inn er veittur þeim sem hafa sýnt útsjón­ar­semi, dugnað, hug­rekki og stað­festu á sviði mynd­listar. Hulda er fyrsti lista­mað­ur­inn sem fær verð­launin fyrir list­sköpun en ekki önnur störf í þágu mynd­list­ar­innar. 

Dýpt og næmni

Hulda útskrif­að­ist með BA-gráðu í mynd­list frá Lista­há­skóla Íslands árið 2000, en hún var í fyrsta árgang­inum sem fékk þá gráðu. Dóm­nefndin sem veitti verð­launin segir að frá því hafi hún unnið af ákafa og ein­urð. „Hún hefur helgað sig mál­ara­list­inni …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár