Fólki bent á að fara á klósettið á listasöfnum

Sjálf­virk almenn­ings­sal­erni í mið­borg Reykja­víkur loka um ára­mót. Ekki er búið að bjóða út rekstur á sal­ernum í þeirra stað. Borgin bendir á lista­söfn og ráð­húsið þar til ný sal­erni hafa verið sett upp.

Fólki bent á að fara á klósettið á listasöfnum
Víkja úr mið­borg­inni Grænu almenn­ings­sal­ernin í mið­borg­inni verða tekin niður á næstu dögum. Mynd: Reykjavik.is

Öllum sjálf­virkum almenn­ings­sal­ernum í mið­borg Reykja­víkur, sjö tals­ins, verður lokað um kom­andi ára­mót. Reykja­vík­ur­borg ákvað að end­ur­nýja ekki samn­inga við rekstr­ar­að­ila sal­ern­anna. Ekki er búið að bjóða út upp­setn­ingu og rekstur nýrra sal­erna og ekki er heldur búið að semja útboðs­gögn þó sú vinna sé í ferli. Á meðan verður fólki bent á sal­erni á lista­söfnum, á Hlemmi mat­höll og í ráð­húsi Reykja­víkur.

EHer­manns­son, sem áður hét AFA JDCecaux, á og rak sal­ernin en borgin ákvað að end­ur­nýja ekki samn­inga við fyr­ir­tækið um þjón­ust­una. Salernin verða fjar­lægð á næstu dögum. Samkvæmt til­kynn­ingu frá EHer­manns­son hafa um 100.000 manns notað sal­ernin árlega og munu sal­ernin við Hlemm og Hall­gríms­kirkju hafa verið sér­stak­lega mikið notuð. Salernin hafa verið rekin síð­ast­liðin tutt­ugu ár. Reykja­vík­ur­borg mun hafa greitt um 40 millj­ónir króna á ári fyrir rekstur þeirra.

Hætt við útboð í haust vegna athugasemda

Jón Halldór Jónasson, upp­lýs­inga­full­trúi hjá Reykja­vík­ur­borg, segir að unnið sé að því að bjóða rekstur almenn­ings­sal­erna í borg­inni út. „Í haust var hafin vinna við útboðs­ferli vegna samn­inga um upp­setn­ingu og rekstur almenn­ings­sal­erna í stað þeirra sem nú eru að hverfa. Það komu hins vegar fram ábend­ingar sem lutu að því að rétt væri að skoða betur for­sendur fyrir upp­setn­ingu nýrra sal­erna, varð­andi útlit, stærð og stað­setn­ingu þeirra. Af þeim sökum var málið sett í bið og verið er að vinna að útboði út frá nýjum for­sendum. Það útboð mun fara fram fljót­lega.“

Útboðs­gögn eru ekki end­an­lega til­búin, að sögn Jóns, og seg­ist hann því ekki hafa upp­lýs­ingar um það hvort stefnt sé að því að fjölga, fækka eða halda óbreyttum fjölda almenn­ings­sal­erna í mið­borg­inni. Jafn­framt er óljóst hvort þau sal­erni sem verða að end­ingu sett upp verði á sömu stöðum og þau sem verið hafa. Það er þó ljóst að milli­bils­á­stand mun mynd­ast þar sem ekki verður hægt að kom­ast á almenn­ings­sal­erni allan sól­ar­hring­inn í mið­borg­inni. Útboðs­ferlið tekur sex vikur, þegar útboðs­gögn liggja fyrir. „Það fer svo eftir for­sendum útboðs­ins hvort að koma þurfi upp nýrri aðstöðu áður en að hægt er að bjóða sal­ern­is­þjón­ustu að nýja,“ segir Jón Halldór. Því má gera ráð fyrir að ný almenn­ings­sal­erni í mið­borg­inni verði ekki til­búin til notk­unar fyrr en í vor, í fyrsta lagi.

„Það er nú ekki eins og him­inn og haf sé að far­ast“

Jón Halldór vill þó meina að engin ástæða sé til að örvænta þrátt fyrir þetta. „Það er nú ekki eins og him­inn og haf sé að far­ast. Á þessu svæði sem um er að ræða er umtals­vert mikið af öðrum mögu­leikum til að kom­ast á kló­sett. Það er kló­sett í ráð­hús­inu, það er mögu­leiki á að stinga sér inn á lista­söfnin, það eru Kjar­vals­staðir og svo er hægt að skjót­ast inn á Hlemm á kló­sett, þar sem eru bið­stöð fyrir strætó. Og þó það sé kannski ekki okkar að vísa fólki inn á veit­inga­staði þá eru auð­vitað kló­sett þar.“ Spurður hvort það sé eðli­legt að vísa fólki inn á söfn eða hús­næði með aðra starf­semi sem borgin hafi hönd í bagga með, til að kom­ast á kló­sett, svarar Jón Halldór því ját­andi og segir að því hafi bara verið vel tekið. Í öllum til­vikum er þó um að ræða bygg­ingar sem aðeins eru opnar yfir dag­inn og leysa því ekki úr vand­ræðum þeirra sem þurfa að kom­ast á almenn­ings­sal­erni utan dag­vinnu­tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár