Yfir 3.000 ábendingar um óleyfilega skammtímaleigu borist

Mikil aukn­ing hefur orðið á fjöldi ábend­inga um ólög­lega heimagist­ingu í kjöl­far átaks ferða­mála­ráð­herra. Tugir mála hafa endað með stjórn­valds­sektum og tæp 60 mál hafa ratað á borð lög­reglu.

Heimagist­ing­ar­vakt­inni hefur borist yfir 3000 ábend­ingar um óleyfi­lega heimagist­ingu síðan í sumar en vaktin var efld með sér­stakri fjár­veit­ingu ferða­mála­ráð­herra í júní í fyrra. Þá hafa 59 mál verið send lög­reglu til rann­sóknar og 61 máli verið lokið með stjórn­valds­sektum en fyr­ir­hug­aðar og álagðar stjórn­valds­sektir nema tæp­lega 100 millj­ónum króna. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

Fjárveiting upp á rúmar 60 milljónir

[links]Í júní í fyrra und­ir­rit­uðu Þór­dís Kol­brún Reyk­fjörð Gylfa­dóttur ráð­herra ferða­mála og Þórólfur Hall­dórs­son sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sam­komu­lag þess efnis að eft­ir­lit með heimagist­ingu yrði virkara og sýni­legra með styrk­ingu á heimagist­ing­ar­vakt Sýslu­manns­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Lagt var upp með að átaks­verk­efnið yrði til eins árs en mark­miðið er að hafa hvetj­andi áhrif á ein­stak­linga til að skrá skamm­tíma­út­leigu sína.

Samn­ing­ur­inn kvað á um 64 millj­óna króna fjár­veit­ingu til emb­ætt­is­ins en það fer með eft­ir­lit með heimagist­ingu á öllu land­inu. Gert var ráð fyrir að bætt skatt­skil og sekt­ar­greiðslur mundi vega þann kostnað upp en sam­kvæmt umfjöllun Frétta­blaðs­ins nemur upp­hæð fyr­ir­hug­aðra og álagðra stjórn­valds­sekta nú tæp­lega 100 millj­ónum króna.

Um 400 prósent aukning milli ára

Á árinu 2017 var áætlað að 80 pró­sent íbúða í skamm­tíma­leigu væru starf­ræktar án til­skil­inna leyfa eða skrán­ingar. Í sam­tali við Frétta­blaðið segir Sýslu­maður að hann áætli að óskráðum og leyf­is­lausum gisti­stöðum hafi fækkað um meira en 30 pró­sent frá því að átakið hófst síð­asta sumar.

Þá hafði í jan­úar síð­ast­liðnum tíðni skrán­inga heimagist­inga auk­ist um 400 pró­sent milli ára. „Það er ánægju­legt að átakið um aukna heimagist­ing­ar­vakt hafi skilað þetta miklum árangri,“ sagði Þórdís Kolbrún í sam­tali við Frétta­blaðið

Sýslu­maður áætlar þó að um helm­ingur allrar skamm­tíma­leigu fari enn fram hér á landi án til­skil­inna leyfa eða skrán­ingar.

80 prósent eigna hjá Airbnb í Reykjavík

Í nið­ur­stöðum rann­sóknar á áhrifum Airbnb á hús­næð­is­mark­að­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, sem birtar voru í byrjun maí, kemur fram að í apríl 2019 voru 2.567 eignir í Reykja­vík skráðar á Airbnb og þar af voru 58 pró­sent starf­ræktar án lög­bund­ins leyf­is.

Enn fremur kemur fram í nið­ur­stöð­unum að átta­tíu pró­sent skráðra eigna hjá Airbnb á höf­uð­borg­ar­svæð­inu séu stað­settar í Reykja­vík og 37 pró­sent í 101 Reykja­vík. Sautján pró­sent eru í 105 Reykja­vík og sjö pró­sent í 107 Reykja­vík­. Þær götur sem hafa flestar Airbnb eignir á skrá eru Lauga­veg­ur, Hverf­is­gata, Grett­is­gata, Berg­þóru­gata, Óðins­gata og Bjarn­ar­stígur en allt að 70 pró­sent eigna í þessum götum eru skráðar hjá Airbnb.

Í nið­ur­stöð­unum kemur jafn­framt fram að fjöldi skráðra eigna hjá Airbnb hafi marg­fald­ast á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á síð­ast­liðnum árum, til að mynda var tvö­földun á tíma­bil­inu jan­úar 2016 til jan­úar 2018 þegar skráðum eignum fjölg­aði úr 2032 í 4154.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár