Þurfum að virkja nýsköpun til að gera velferðarkerfin skilvirkari og ódýrari

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir segir að Íslend­ingar þurfi að finna leiðir til þess að við­halda vel­ferð­ar­kerfum okkar með nýsköpun svo að öll aukin verð­mæta­sköpun sam­fé­lags­ins fari ekki í að greiða fyrir þau.

Íslend­ingar þurfa að finna lausnir og hug­myndir að því hvernig sé hægt að gera vel­ferð­ar­kerfin okkar skil­virk­ari, not­enda­vænni og ódýr­ari svo það sé ger­legt fyrir Íslend­inga að við­halda þeim án þess að öll aukin verð­mæta­sköpun fari í að greiða fyrir þau. Þar er nýsköpun algjört lyk­il­at­riði.

Þetta segir Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, í við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarnans, í sjón­varps­þætt­inum 21 sem frum­sýndur var í gær. Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum í spil­ar­anum hér að ofan.

Þórdís Kolbrún ræddi þar meðal ann­ars um hvernig nýsköpun sé nauð­syn­leg innan opin­bera kerf­is­ins. „Við erum í dag fimm manns að vinna á hvern eldri borg­ara, svona um það bil. Innan ekki svo langs tíma þá erum við komin niður í kannski tvo. Á sama tíma erum við með heil­brigð­is­kerfi sem ríkið póli­tísk sátt um að eigi að vera opið fyrir alla. Við erum búin að segja að það sé óháð efna­hag og öðru, þú átt aðgang hér að heil­brigð­is­kerf­inu. Þetta heil­brigð­is­kerfi okkar verður bara dýr­ara og dýr­ara.“

Ástæður þess eru meðal ann­ars að lyf verða sífellt dýr­ari, sjúk­dómar grein­ast fyrr, og fólk lifir lengur. Þórdís Kolbrún vill fjár­festa í fólki til að reyna að leysa þessar áskor­anir með opin­bera kerf­inu. Ríkið þurfi á aðstoð að halda til að við­halda vel­ferð­ar­kerf­inu. „Þá þurfum við að fá fólk þarna úti til að koma með allar þessar lausnir og hug­myndir að því hvernig við getum gert þetta kerfi skil­virkara, betra fyrir fólk sem þarf að nota það og ódýr­ara þannig að það sé okkur ger­legt, að það fari ekki bara öll aukin verð­mæta­sköpun sem við erum að reyna að búa til, að það fari ekki bara allt inn í vel­ferð­ar­kerfið sem okkur er mjög umhugað um að halda. Í þessu er nýsköpun algjört lyk­il­at­riði og mér finnst að við eigum að far að leggja miklu meiri áherslu á það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár