„Þetta er bara fellibylur, þetta helvíti“

Rafmgangs­laust hefur verið í um sautján klukku­stundir á bæjum í Höfða­hverfi. Ásta F. Flosa­dóttir bóndi á Höfða I ótt­ast að þök kunni að fjúka af úti­húsum. Engin leið er að fara úr húsi.

„Þetta er bara fellibylur, þetta helvíti“
Óveður á Norð­ur­landi Illviðri er búið að vara í hátt í sól­ar­hring á Norð­ur­landi. Bylur var á Akureyri í gær þegar með­fylgj­andi mynd var tekin. Mynd: Þorsteinn Ingi Kristinsson

Raf­magns­laust hefur verið frá því um miðjan dag í gær á nokkrum bæjum í Höfða­hverfi í Grýtu­bakka­hreppi við Eyja­fjörð. Trufl­anir hófust um hádegi og um kaffi­leytið fór raf­magn alveg af og hefur ekki komið á síðan. Glóru­laus bylur er á svæð­inu og ekki hægt að fara út úr húsi. Sauð­fjár­bóndi seg­ist hafa áhyggjur af því að þök kunni að vera farin að losna á úti­húsum en ger­ist það þá sé ekk­ert við því að gera að svo stöddu, veð­ur­ham­urinn sé slíkur.

Óttast um þökÁsta segir að hún ótt­ist að þök taki af úti­húsum. Það sé þó ekk­ert við því að gera ef svo fari, veður sé ein­fald­lega vit­laust.

„Ég veit ekk­ert hvernig staðan er, það sér ekki út úr augum og það er eng­inn að hreyfa sig út úr húsi. Þetta er bara þreif­andi ösku­bylur eins og í eld­gamla daga. Það voru því­lík læti hér í gær­kvöldi að húsið nötr­aði allt og skalf, það nötr­uðu rúður og skalf gler og það var bara eins og það væri jarð­skjálfti í gangi. Þetta er bara felli­bylur, þetta hel­víti, það er ekki flókið,“ segir Ásta Fönn Flosa­dóttir, sauð­fjár­bóndi og skóla­stjóri á Höfða I.

Það var um hádegi sem að veðrið brast á fyrir norðan. Ásta segir að úrkoman þá hafi verið afar blaut og þung og svo hafi frost hert með til­heyr­andi ísingu. „Ég skil vel að raf­magnið skuli vera úti, lín­urnar eru ábyggi­lega slitnar alveg í spað. Það er bara heppi­legt að það er hita­veita á hús­inu, hún var lögð hér fyrir fjórum árum. Annars væri orðið djöf­ull kalt, ég býð ekki í það þar sem menn eru bara með raf­magns­kynd­ingu.“

Óttast skemmdir

Ásta segir að þetta ástand sé á nokkrum bæjum sem séu alveg raf­magns­lausir. Það er sér­stak­lega baga­legt á næsta bæ, Höfða II, en þar er kúabú og í raf­magns­leysi lenda menn í miklum erf­ið­leikum við mjaltir. Ásta segir að bændur á Höfða II séu með raf­stöð til að bregð­ast við í aðstæðum sem þessum en það hafi verið tómt basl því stöðin hafi ekki farið í gang í gær þegar á þurfti að halda. „Þeir brut­ust hingað niður eftir í björg­un­ar­sveit­inni á jeppa í gær­kvöldi og komu til hans raf­geymum, sem betur fer, en það er það eina sem hefur komið hingað til okkar.“

„Það er hins vegar glóru­laust að fara út í þetta veður og það gerir það eng­inn“

Ásta hefur tölu­verðar áhyggjur af því að þök á úti­húsum hjá henni séu í hættu, og jafn­vel að þau kunni að vera byjuð að losna eða farin að ein­hverju leyti. Veð­ur­ham­urinn sé ein­fald­lega slíkur. „Það er hins vegar glóru­laust að fara út í þetta veður og það gerir það eng­inn. Fari þökin þá fara þau bara. Ef þak­plötur eru byrj­aðar að fjúka þá á eng­inn að hreyfa sig, það er bara stór­hættu­legt. Nágranni minn hafði líka ein­hverjar áhyggjur af því að þak á hlöðu hjá honum væri byrjað að losna en hvorki hann né við vitum neitt um það. Veðrið og skyggnið er með þeim hætti að maður sér bara ekki neitt. Maður er bara milli vonar og ótta um það hvernig þetta verður þegar hægt verður að kom­ast út í fjár­hús og fara að kanna skemmdir. Það var búið að græja allt sem hægt var hér í gær, koma vélum inn, festa og fergja allt sem gæti farið af stað þannig að ég hef eig­in­lega bara áhyggjur af hús­unum, þök­unum.“

Ásta seg­ist ekki vita hvenær búast megi við að veður fari að ganga niður hjá henni. Hún sé net­laus orð­inn og hafi bara sím­ann og útvarpið til að styðj­ast við í þeim efnum. „Netið er því sem næst úti, ég get alla vega ekki hlaðið inn net­síðum af neinu viti svo ég veit ekki einu sinni almenni­lega hvernig spáin er. Við höfum þó útvarpið á meðan að raf­hlöð­urnar duga.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár