Skrýtin veröld

Það er margt skrýtið, óvenju­legt og jafn­vel skemmti­legt sem ger­ist í hinni stóru ver­öld án þess að það rati í fréttir hér á landi. Um ára­bil safn­aði Gunnar Hrafn Jónsson þessum furðu­fréttum saman viku­lega fyrir Síð­deg­is­út­varpið á Rás 2 en nú verður látið reyna á svipuð efn­is­tök í rit­uðu máli.

Skrýtin veröld
Sum­ar­frís­ferðir á stríðs­svæði Sýrland er ein rjúk­andi rúst þó að dregið hafi úr bar­dögum í land­inu. Tvær rúss­neskar ferða­skrif­stofur bjóða upp á sum­ar­frís­ferðir þangað.

Pakka­ferðir til Sýrlands, skrán­ing á vöru­merki, anda­kvak, fílatað með ávaxta­bragði, og rottur sem naga sig í gegnum ljós­leið­ara eru á meðal furðu­mála sem hafa komið upp í heim­inum að und­an­förnu.  

Sumarfrí í Sýrlandi

Tvær rúss­neskar ferða­skrif­stofur bjóða nú pakka­ferðir til Sýrlands en í aug­lýs­ingum þeirra er hvergi að finna varn­að­ar­orð um að ástandið kunni að vera ótryggt. Dregið hefur úr bar­dögum í land­inu en það er engu að síður stríðs­svæði og ein rjúk­andi rúst eftir meira en átta ára langt borg­ara­stríð.

Önnur ferða­skrif­stofan virð­ist hafa lokað fyrir skrán­ingar á vefnum eftir gagn­rýni frá rúss­neska utan­rík­is­ráðu­neyt­inu en hin er enn að selja miða þegar þetta er skrifað. Pakkinn kostar tæpa tvö þús­und doll­ara, eða rúm­lega 230 þús­und íslenskar krónur. Það vekur þó athygli að inni í þeirri upp­hæð eru hvorki flug­miðar né trygg­inga­gjöld og ætla má að þau geti verið býsna há fyrir ferða­menn í Sýrlandi.

Rússnesk …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár