Hlutafé Morgunblaðsins aukið um 200 milljónir

Kaup­fé­lag Skag­firð­inga er nú orðið þriðji stærsti eig­andi Morg­un­blaðs­ins. Ísfélag Vest­manna­eyja ræður sam­an­lagt stærstum hluta. Eyþór Arnalds er enn stærsti ein­staki eig­and­inn.

Kaup­fé­lag Skag­firð­inga á nú 14,15 pró­sent í Þórsmörk, einka­hluta­fé­lag­inu sem á útgáfu­fé­lag Morg­un­blaðs­ins Árvakur, eftir að félagið Íslenskar sjáv­ar­af­urðir bætti við hlut sinn. Íslenskar sjáv­ar­af­urðir eru í eigu Kaup­fé­lags Skag­firð­inga.

[links]

Núver­andi eig­endur Árvakurs, juku hlutafé sitt í sumar um 200 millj­ónir króna. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

Kaup­fé­lag Skag­firð­inga lagði til mest af þeim pen­ingum sem lagðir voru til við­bótar í félagið og við það minnk­aði hlutur Ramses II, félags í eigu Eyþórs Arnalds, um nærri tvö pró­sentu­stig, og er nú 22,87 pró­sent.

Eyþór Arnalds er enn stærsti ein­staki eig­andi Árvakurs en félög tengd Ísfélagi Vest­manna­eyja eru hins vegar enn með sam­an­lagt stærstan eign­ar­hlut. Ísfé­lagið á sjálft 13,43 pró­sent hlut og félagið Hlynur A, í eigu Guð­bjargar Matth­í­as­dóttur, aðal­eig­anda Ísfé­lags­ins, á 16,45 pró­sent hlut. Auk þess á félagið Legalis 12,37 pró­sent hlut. Eig­endur þess eru m.a. Sig­ur­björn Magn­ús­son, stjórn­ar­for­maður Árvak­urs og stjórn­ar­maður í Ísfé­lag­inu, og Gunn­laugur Sævar Gunn­laugs­son, stjórn­ar­for­maður Ísfé­lags­ins. Sam­an­lagður hlutur þess­arar blokkar í Árvakri er 42,25 pró­sent.

Íslenskar sjáv­ar­af­urðir eru þriðji stærsti eig­andi Þórs­merkur ehf. eftir hluta­fjár­aukn­ing­una.

[adspot]

Eign­ar­halds­upp­lýs­ingar útgáfu­fé­lags Morg­un­blaðs­ins Árvakurs voru upp­færðar á vef Fjöl­miðla­nefndar 6. júlí síð­ast­lið­inn. Eign­ar­hald Morg­un­blaðs­ins sam­kvæmt skrán­ingu fjöl­miðla­nefndar má lesa hér að neðan:

Eigendur Árvakurs:

  • Þórsmörk ehf., 99%
  • Legalis sf., for­svars­maður Sig­ur­björn Magn­ús­son, 1%

Eigendur Þórsmerkur ehf.:

  • Ramses II ehf., eig­andi Eyþór Laxdal Arnalds, 22,87%
  • Hlynur A ehf., forsv.maður Guðbjörg Matth­í­as­dóttir, 16,45%
  • Íslenskar sjáv­ar­af­urðir ehf., forsv.m. Sigurjón Rafnsson, 14,15%
  • Ísfélag Vest­manna­eyja hf., forsv.maður Stefán Frið­riks­son 13,43%
  • Legalis sf., forsv.maður Sig­ur­björn Magn­ús­son, 12,37%
  • Rammi hf., forsv.maður Ólafur Mart­eins­son, 6,14%
  • Þingey ehf., forsv.maður Aðal­steinn Ing­ólfs­son 4,10%
  • Fjár­fest­inga­fé­lagið GIGAS ehf., forsv.m. Halldór Krist­jáns­son, 3,52%
  • Brekku­hvarf ehf., 2,05%
  • Lýsi hf., forsv.m. Katrín Pét­urs­dóttir, 1,69%
  • Fari ehf., forsv.maður Jón Pálmason, 1,76%
  • Skolla­borg ehf., forsv.m. Einar Valur Krist­jáns­son, 1,48%
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár