Augljósar deilur ríkisstjórnarflokka um krónuna

Innan rík­is­stjórn­ar­innar eru aug­ljós­lega deildar mein­ingar um gjald­miðla­mál.

Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra.
Benedikt Jóhann­es­son fjár­mála­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Bjarni Bene­dikts­son, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir að mál­flutn­ingur Bene­dikts Jóhann­es­sonar, fjár­mála­ráð­herra og for­maður Við­reisnar, um að hafna beri íslensku krón­unni, lýsi hans eigin skoðun og flokks hans, en ekki rík­is­stjórn­ar­innar. Ekki standi til að skipta um gjald­miðil.

Þetta kom fram í við­tali við Bjarna á RÚV í gær­kvöldi. Hann segir að ekki standi til að skipta um gjald­miðil, en verk­efn­is­stjórn er nú að störfum, skipuð Ásgeiri Jónssyni, Illuga Gunn­ars­syni og Ásdísi Krist­jáns­dóttur, sem er að meta hvaða mögu­leikar eru fyrir hendi þegar kemur að end­ur­skoðun pen­inga­stefn­unnar.

Í grein Bene­dikts segir hann að íslenska krónan sé upp­spretta óstöð­ug­leika í hag­kerf­inu. „Sterk króna ógnar nú afkomu fyr­ir­tækja sem græddu vel á veikri krónu fyrir fáeinum miss­erum. Störf í nýsköpun og þekk­ing­ar­iðn­aði, sem áttu að tryggja fjöl­breytni atvinnu­lífs­ins, streyma úr landi á ný. Krónan er hem­ill á heil­brigð við­skipti. Við almenn­ingi blasir ólík mynd. Eftir hrunið var krónan lít­ils virði og kaup­máttur dvín­aði. Nú er öldin önnur. Krónan hefur náð sömu hæðum og fyrir hrun og það er lítið mál að skjót­ast á fjar­læg heims­horn. Kaup­máttur hefur auk­ist mikið á Íslandi að und­an­förnu og verk­efni næstu miss­era er að varð­veita hann. Krónan leiðir til óstöð­ug­leika, býr til sveiflur sem leiða til óábyrgra fjár­fest­ing­ar­á­kvarð­ana og óstöðugs kaup­máttar. Vextir eru og verða mun hærri á Íslandi en í við­mið­un­ar­löndum vegna óstöð­ug­leika krón­unnar. Þetta er ósann­gjarnt og leiðir til óþarfa átaka í sam­fé­lag­inu,“ segir Benedikt í grein sinni, sem birt­ist í Frétta­blað­inu á Vísi í gær.

Benedikt segir að sumir „krónu­vinir“ hafi talað um að það tæki Ísland ára­tugi að upp­fylla skil­yrði fyrir upp­töku evru, en raunin sé önnur núna. „Viðreisn var stofnuð til þess að stuðla að sátt og stöð­ug­leika. Slíkur stöð­ug­leiki næst aldrei nema með stöð­ugum gjald­miðli sem stendur undir nafni og býður upp á svip­aða vexti og í nágranna­löndum. Viðreisn bendir á mynt­ráð til þess að festa gengi krón­unnar. Mörg Evr­ópu­ríki hafa nýtt slíka lausn í ára­tugi, flest sem áfanga í því að taka upp evru. Eftir hrun töldu sumir krónu­vinir að það tæki Íslend­inga ára­tugi að upp­fylla skil­yrðin fyrir upp­töku evru. Eina skil­yrðið sem við föllum á núna er of háir vextir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár