Sigurður Ingi: „Framsóknarmenn hræðast ekki kosningar“

Sigurður Ingi Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra segir mik­il­vægt að það skýrist fyrr en seinna hvenær kosn­ingar verða. Hann segir að það stytt­ist í að hægt verði að greina frá kjör­degi, en gaf ekki skýr­ari svör en það, þegar hann svar­aði fyr­ir­spurn frá Stein­grími J. Sig­fús­syni, þing­manni VG, á Alþingi í dag.

Margir þing­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins hafa und­an­farið stigið fram og sagt ýmist mis­ráðið eða óþarfa að ganga til kosn­inga í haust. Sigurður Ingi hefur ekki verið í þeirra hópi, og hefur sagt að það standi til að efna lof­orðið um að kjósa í haust. „Fram­sókn­ar­menn treysta sér alveg til kosn­inga eins og hver annar stjórn­mála­flokkur,“ sagði Sigurður Ingi á þingi í dag, og bætti því við að flokk­ur­inn hefði hafið sinn und­ir­bún­ing fyrir kosn­ing­arnar eins og aðrir flokkar. Hann sagði svo einnig: „Fram­sókn­ar­menn hræð­ist ekki kosn­ingar. Eftir það sem við höfum afrekað á þessu kjör­tíma­bili þorum við auð­vitað að leggja þau verk okkar í dóm kjós­enda.“

Sigurður Ingi tók undir það með Stein­grími að það væri nauð­syn­legt að kjör­dagur lægi fyrir með góðum fyr­ir­vara. Stein­grímur sagði meðal ann­ars nauð­syn­legt að gera breyt­ingar á lögum til þess að tryggja að Íslend­inga erlendis missi ekki kosn­inga­rétt sinn í stórum stíl. Hann minnt­ist einnig á að utan­kjör­fund­ar­at­kvæða­greiðsla eigi að hefj­ast átta vikum fyrir kosn­ingar, og ef kjósa eigi í októ­ber þurfi utan­kjör­fund­ar­at­kvæða­greiðsla að hefj­ast um miðjan ágúst. Þá verði líka að gefa flokkum, bæði gömlum og nýjum, tíma til að und­ir­búa kosn­ing­arnar.

Stein­grímur var ekki mjög sáttur við svör Sigurðar Inga og sagði fram­sókn­ar­menn haga sér eins og „rjúpna­hópur sem vill fresta jól­unum til þess að fá að lifa í nokkrar vikur í við­bót.“ Það ætti að gefa út kjör­dag núna og ekki degi seinna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár