Sigmundur: „Ísland er eitt land og það er stærra en Melarnir í Vesturbænum“

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son fer hörðum orðum um fjóra fræði­menn við Háskóla Íslands í færslu sem hann birtir á Facebook-síðu sinni. Einn þeirra er Gylfi Magn­ús­son, fyrr­ver­andi ráð­herra, og kallar Sig­mundur Davíð hina fræði­menn­ina sam­herja hans „sem vilja þó lík­lega allir láta kalla sig óháða sér­fræð­inga“. Fræði­menn­irnir eiga það sam­eig­in­legt að hafa gagn­rýnt Sigmund fyrir ummæli hans um Háskóla Íslands.

Sig­mundur Davíð sagði fyrir helgi að ákvörðun skól­ans um að flytja íþrótta­fræði­nám á Laug­ar­vatni til Reykja­víkur hlyti að kalla á að fjár­veit­ingum verði í auknum mæli beint til skóla á lands­byggð­inni á þeirra eigin for­sendum. Ákvörðun HÍ myndi mögu­lega gera út af við hug­myndir um sam­ein­ingar eða aukið sam­starf skól­ans við mennta­stofn­anir á lands­byggð­inni. Þetta hefur verið gagn­rýnt og þessu svarað, meðal ann­ars skrif­aði rektor HÍ, Jón Atli Bene­dikts­son, grein um málið þar sem hann fór yfir for­sendur ákvörð­un­ar­innar.

Gylfi Magn­ús­son, dós­ent í við­skipta­fræði og fyrr­ver­andi við­skipta­ráð­herra, er meðal þeirra sem hafa gagn­rýnt Sigmund Davíð. „Þetta er svo yfir­gengi­legt að það er vart annað hægt en telja dag­ana til loka kjör­tíma­bils­ins,“ sagði hann á Facebook síðu sinni. Aðrir fræði­menn hafa lagt orð í belg á síðu hans og ann­ars staðar, og Vísir fjall­aði um gagn­rýni þeirra í frétt þar sem sagt er að aka­dem­ían sé æf yfir orðum Sig­mundar Davíðs. Aðrir sem nefndir eru í frétt­inni eru doktor Magni Þór Pálsson, Helgi Gunn­laugs­son pró­fessor, Eiríkur Rögn­valds­son pró­fessor og Magnús Karl Magn­ús­son pró­fessor.

„Facebookskrif fjór­menn­ing­anna hafa orðið til­efni a.m.k. tveggja frétta. Í annarri þeirra var full­yrt að ummælin hefðu fallið í grýttan jarð­veg og var þá vænt­an­lega verið að vísa í jarð­veg­inn á Melunum í Vesturbæ Reykja­víkur. Í hinni var full­yrt að þeir félagar (eða Aka­dem­ían eins og þeir kalla sig að mati fyr­ir­sagn­ar­höf­undar) væru æfir,“ skrifar Sig­mundur Davíð.

Hann seg­ist aðeins hafa verið að benda á hið aug­ljósa í ummælum sínum um HÍ. „Það nægði þó ráð­herr­anum fyrr­ver­andi og þremur facebook vinum hans til að verða „æfir“, svo vitnað sé í frétt­ina, og senda frá sér furðu­legar yfir­lýs­ingar á borð við að þetta fæli í sér hót­anir í garð HÍ og minnti á stjórn­ar­far í alræð­is­ríkjum!“

Hann segir við­brögðin hafa verið ofsa­fengin, við ein­faldri ábend­ingu um mik­il­vægi þess að efla menntun um allt land. „Við­horfið virð­ist vera það að lands­byggð­ar­fólk eigi bara að sjá um að veiða fisk og skila svo tekj­unum í tvö póst­númer í Reykja­vík.“

Stutt hafi verið við bakið á HÍ og öðrum mennta­stofn­unum í Reykja­vík. „En það veitir ekki af því að styðja líka við bakið á menntun utan höf­uð­borg­ar­innar og ég vona að það raski ekki ró fjór­menn­ing­anna í „Aka­dem­í­unni“ enn frekar ef ég bendi á að það sama á við um heil­brigð­is­mál, sam­göngu­mál, stjórn­sýslu og jafn­vel fleira.“

Hann segir að lokum að það sé frá­leitt að stilla því þannig upp að allt það fjár­magn sem sett er í mennta­stofn­anir eða aðra inn­viði á lands­byggð­inni sé tekið af þeim sem starfa í 101 Reykja­vík. „Upp­bygg­ing á lands­byggð­inni gagn­ast Reykja­vík og öfugt. Ísland er eitt land og það er stærra en Melarnir í Vest­ur­bænum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár