Össur neitar að svara

Össur Skarp­héð­ins­son neitar að svara fyr­ir­spurnum Kjarnans varð­andi mögu­legt for­seta­fram­boð hans. Tölu­verður hiti er í kring um Össur þessa dag­ana, bæði í ljósi hins lága fylgis Sam­fylk­ingar og for­seta­kosn­ing­anna sem eru framundan.

Össur Skap­héð­ins­son, þing­maður Sam­fylk­ingar og fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra, neitar að svara hvort hann ætli að bjóða sig fram til for­seta í næstu for­seta­kosn­ingum.

Kjarninn hefur ítrekað reynt að ná tali af Össuri und­an­farnar vikur, en hann hefur ekki orðið við fyr­ir­spurn­unum þegar í ljós kemur hvað á ræða.

Töluverð umræða hefur skap­ast um mögu­legt for­seta­fram­boð Össurar und­an­farið, sér­stak­lega eftir að Jón Gnarr til­kynnti að hann ætli ekki að bjóða sig fram. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans er nú unnið að því að kanna lands­lagið fyrir mögu­legt fram­boð Össurar.

Össur var í við­tali í Morg­un­út­gáfu Rásar 2 í gær þar sem hann tal­aði fyrir sam­ein­ingu á vinstri vængnum sem myndi fyrst og síð­ast verða til þess að almenn­ingi verði færður rétt­ur­inn til að ákveða eigin örlög með þjóð­ar­at­kvæði og taka inn í stjórn­ar­skrána ákvæði sem tryggi sam­eign tryggir sam­eign lands­manna á þjóð­ar­auð­lind­inni. Þá ræddi hann um hið mikla fylgi Pírata og sagði: „Það eru bylt­ing­ar­tímar framundan.”

Aðrir sem nefndir hafa verið í sam­bandi við for­seta­kosn­ing­arnar, og eru ekki nú þegar búnir að boða fram­boð sitt, eru meðal ann­ars Andri Snær Magnason rit­höf­undur, Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, Halla Tóm­as­dóttir athafna­kona, Hrannar Pét­urs­son, fyrr­ver­andi ráð­gjafi í stjórn­ar­ráð­inu og upp­lýs­inga­full­trúi Vodafone, Linda Pét­urs­dóttir, athafna­kona og Ólafur Jóhann Ólafsson rit­höf­undur.

Fjöl­margir hafa líka verið nefndir - og neitað. Meðal ann­ars Einar K. Guð­finns­son, Jakob Frímann Magn­ús­son og Guðni Ágústs­son.

Nú þegar hafa sex til­kynnt um fram­boð: Þor­grímur Þrá­ins­son rit­höf­undur, Elísabet Jök­uls­dóttir rit­höf­undur, Ástþór Magn­ús­son, for­svars­maður Friðar 2000, Hildur Þórð­ar­dóttir þjóð­fræð­ingur, Ari Jós­eps­son skemmti­kraftur og Sturla Jónsson bíl­stjóri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár