Gunnar Smári gagnrýndur fyrir að fara illa með fé í nafnlausum pistli í Fréttablaðinu

Gunnar Smári Egilsson, sem nýverið leiddi hóp sem keypti Frétta­tím­ann, er gagn­rýndur í nafn­lausa pistl­inum „Stjórn­ar­mað­ur­inn“ í Mark­aðnum, fylgi­blaði Frétta­blaðs­ins um við­skipti og efna­hags­mál, í dag. Sá sem skrifar pistil­inn segir það von­andi fyrir Gunnar Smára og aðra hlut­hafa að betur verði farið með fé nú en í tíð hans á for­stjóra­stóli í því félagi sem nú heitir 365 miðlar.

Gunnar Smári var lyk­il­maður í stofnun Frétta­blaðs­ins, frí­blaðs­ins sem hefur verið mest lesna dag­blað lands­ins und­an­farin rúman ára­tug. Hann var rit­stjóri blaðs­ins um tíma og síðar for­stjóri fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­is­ins 365 miðla, sem á og rekur Frétta­blaðið og fleiri fjöl­miðla á nýrri kenni­tölu í dag. Stærsti eig­andi 365 miðla í gegnum tíð­ina hefur verið Jón Ásgeir Jóhann­es­son. Fyr­ir­tækið er að mestu í eigu eig­in­konu hans, Ingi­bjargar Pálma­dóttur í dag. Gunnar Smári hætti sem for­stjóri árið 2006.

Tilkynnt var á fimmtu­dag að Gunnar Smári leiði hóp sem hefur keypt allt hlutafé í Miðopnu, eig­anda Frétta­tím­ans. Gunnar Smári verður útgef­andi blaðs­ins fram að ára­mótum en tekur þá við sem rit­stjóri þess ásamt Þóru Tóm­as­dóttur. Á meðal ann­arra eig­enda eftir kaupin eru fjár­fest­arnir Árni Hauksson, Hall­björn Karlsson og Sigurður Gísli Pálmason. Valdimar Birg­is­son verður áfram í eig­enda­hópnum og mun hver eig­andi eiga við­líka stóran hlut.

Í nafn­lausa pistl­inum „Stjórn­ar­mann­inum“, sem birt­ist í Mark­aðnum í dag, segir að Gunnar Smári sé vissu­lega frum­kvöð­ull á sviði íslenskrar fjöl­miðl­unar og sá sem hvað stærstan hlut átti í að gera Frétta­blaðið að útbreiddasta og mest lesna dag­blaði lands­ins. Höfundur pistils­ins segir þó að von­andi sé fyrir Gunnar Smára og aðra hlut­hafa að betur verði farið með fé en í tíð hans á for­stjóra­stóli í því félagi sem nú heitir 365 miðlar. „Meðal gælu­verk­efna Gunnars Smára á þeim tíma var hin íslenska CNN stöð, NFS, sem flutti fréttir af engu allan sól­ar­hring­inn, Tal­stöðin, útvarps­stöðin sem aldrei spil­aði tón­list með til­heyr­andi dag­skrár­kostn­aði, og síð­ast en ekki síst dönsk útgáfa Frétta­blaðs­ins – Nyhedsa­visen. Öll fara þessi verk­efni á spjöld sög­unnar í íslenskri fjöl­miðlun, og þá frekar fyrir fádæma metnað á litlum mark­aði en arð­semi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár