Landsvirkjun og Grundartangi ekki búin að semja um framlengingu

Samn­ingur um orku rennur út árið 2019 en við­ræðum um fram­leng­ingu á að ljúka á þessu ári, sam­kvæmt for­stjóra Century Aluminum.

Álverið á Grundartanga fær um 30 prósent orkunnar í gegnum samninginn við Landsvirkjun.
Álverið á Grund­ar­tanga fær um 30 pró­sent orkunnar í gegnum samn­ing­inn við Lands­virkjun. Mynd: ALCOA/HANDOUT / EPA

Ekki er búið að semja um fram­leng­ingu á raf­orku­sölu­samn­ingi milli Lands­virkj­unar og álvers­ins á Grund­ar­tanga, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Samn­ing­ur­inn rennur út árið 2019 en sam­kvæmt honum eiga Lands­virkjun og Century Aluminum, móð­ur­fé­lag Norð­ur­áls, að hafa lokið samn­ingum um fram­leng­ingu á árinu 2015. Nú þegar rúmur mán­uður er eftir af árinu hefur samn­ingum ekki verið lokið.

For­stjóri Century Aluminum, Michael Bless, greindi frá því í ágúst síð­ast­liðnum að við­ræður við Lands­virkjun stæðu yfir og þeim yrði haldið áfram, enda segi í skil­málum samn­ings­ins að aðil­arnir eigi að ná saman um fram­haldið á þessu ári. Bless sagði þennan samn­ing eitt af for­gangs­málum fyr­ir­tæk­is­ins nú í haust. Samn­ing­ur­inn sem um ræðir er um 30 pró­sent þeirrar orku sem álverið á Grund­ar­tanga notar, en samn­ingar um hin 70 pró­sentin renna út frá 2026 og til 2036.

Lands­virkjun vill ekki tjá sig um málið við Kjarnann.

Grein­ingar Ketils Sig­ur­jóns­sonar, sér­fræð­ings í orku­málum, hafa sýnt að Norðurál greiðir lægsta raf­orku­verð allra álvera á Íslandi til Lands­virkj­unar. Lands­virkjun hefur und­an­farin ár gert allt öðru­vísi samn­inga við stór­kaup­endur orku, meðal ann­ars hefur verið dregið veru­lega úr teng­ingum við heims­mark­aðs­verð á áli, sem þýðir að Norð­ur­áli bjóð­ast allt aðrir skil­málar nú en þegar samn­ing­ur­inn var upp­haf­lega gerður.

Miklar þrengingar Century í Bandaríkjunum

Álver Norð­ur­áls á Grund­ar­tanga verður að óbreyttu eina álver Century Aluminum í fullri fram­leiðslu á áli, frá og með ára­mótum. Fyr­ir­tækið sendi frá sér við­var­anir í októ­ber um að álveri í Mt. Holly í Suður-Karólínu verði lokað um ára­mót og að fram­leiðsla álvers fyr­ir­tæk­is­ins í Sebree í Kentucy verði minnkuð um þriðj­ung.

Í júní á þessu ári hafði verið til­kynnt að álveri í Ravenswood í Vestur-Virginíu yrði end­an­lega lokað, en fram­leiðslu þar var hætt árið 2009. Skömmu síðar var til­kynnt að vinnsla í álver­inu í Hawesville í Kentucy yrði lækkuð í um 40 pró­sent af afkasta­get­unni.

Samkvæmt Century er lokun álvers­ins í Mt. Holly fyrst og fremst vegna þess að núver­andi samn­ingur um orku til álvers­ins rennur út um ára­mótin. Búið er að gera nýjan samn­ing um orku til álvers­ins, en ekki hefur tek­ist að semja um flutn­ing á orkunni, að sögn Michael Bless, for­stjóra Century. Hann sagði fyr­ir­tækið hafa boð­ist til að borga fullt verð fyrir flutn­ing á orkunni, en það hafi ekki dugað til. Þetta sagði hann óásætt­an­legt og að barist verði fyrir fram­tíð álvers­ins næstu mán­uði. Þetta sagði hann annað for­gangs­mál fyr­ir­tæk­is­ins nú í haust, þegar hann ræddi um samn­inga­við­ræð­urnar við Lands­virkjun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár