Ráðherrabreytingar koma vel til greina en Bjarni og Sigmundur Davíð skipta ekki um stól

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra tekur undir með Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra um að það komi vel til greina að stokka upp í rík­is­stjórn Íslands. Hann tekur þó sér­stak­lega fram að engar breyt­ingar verði gerðar á emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Sig­mundur Davíð og Bjarni eru því ekki að fara að skipta um sæti. Þetta kemur fram á vef RÚV.

Þar er haft eftir Sigmundi Davíð að mögu­legar breyt­ingar hafi verið ræddar þegar stjórnin var mynduð og að hann og Bjarni hafi nokkrum sinnum rætt síðan þá að það gæti verið æski­legt á ein­hverjum tíma­punkti að fara í ein­hvers­konar upp­stokkun. "Það má þó ekki bíða of lengi með það ef það á að verða því að það tekur ráð­herra alltaf ein­hvern tíma að kom­ast inn í nýjan mála­flokk. Það hefur hins vegar engin ákvörðun verið tekin um slíkt og engar ákveðnar engar til­teknar breyt­ingar verið ræddar hvað þetta varðar.“

Sig­mundur Davíð tekur það hins vegar fram að allir ráð­herra hafi staðið sig vel í sínum mála­flokkum. Óánægja sé því ekki ástæðan fyrir því að ráð­ist verði í breyt­ingar heldur að menn vilji fá nýtt sjón­ar­horn í ráðu­neytin.

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefur sagt að það komi vel til greina að stokka upp í rík­is­stjórn­inni á næsta hálfa árinu og gera breyt­ingar á sam­starfi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna. Þetta kom fram í við­tali við Bjarna á Morg­un­vakt­inni á Rás 1 í síð­ustu viku.

Þar sagði Bjarni: "Mér finnst það vel koma til greina að hreyfa til, bæði milli flokk­anna og innan rík­is­stjórn­ar­innar. Ég get vel séð fyrir mér að við gerum ein­hverjar slíkar breyt­ingar. Við höfum ekki tekið neina ákvörðun um slíkt en á næsta hálfa árinu væri rétt að taka þá ákvörðun um það ef til þess ætti að koma svo menn væru ekki að taka að sér ný verk­efni þegar of stutt er til kosn­inga."

Bjarni sagð­ist alltaf hafa verið opin fyrir slíkum breyt­ingum. "Við ræddum það við stjórn­ar­mynd­un­ina við Sig­mundur að svona í hálf­leik myndum við kannski skoða þau mál.“

Tvær breyt­ingar hafa verið gerðar á ráð­herra­skipan það sem af er yfir­stand­andi kjör­tíma­bili, sem er nú rúm­lega hálfnað. Hanna Birna Krist­jáns­dóttir sagði af sér emb­ætti inn­an­rík­is­ráð­herra undir lok árs 2014 og Ólöf Nordal, sem hafði stígið út af hinu póli­tíska sviði fyrir þing­kosn­ing­arnar 2013, tók við af henni. Þá var Sigrún Magn­ús­dóttir gerð að umhverfis- og auð­lind­ar­ráð­herra þann 30. des­em­ber 2014 þegar ráð­herrum var fjölgað um einn. Áður hafði Sigurður Ingi Jóhanns­son farið með ráðu­neyti ásamt þeim sem hann stýrir í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár