Sigurður Magnús til WOW - Birgir hættir sem aðstoðarforstjóri

Sigurður Magnús Sig­urðs­son hefur verið ráð­inn fram­kvæmda­stjóri flug­rekstr­ar­sviðs hjá Wow Air. Hann kemur til Wow frá flug­fé­lag­inu Atlanta, þar sem hann hefur und­an­farið verið flug­rekstr­ar­stjóri.

Sigurður tekur við starf­inu af Birgi Jónssyni, sem var ráð­inn til félags­ins í nóv­em­ber í fyrra sem aðstoð­ar­for­stjóri og fram­kvæmda­stjóri flug­rekstr­ar­sviðs. Þá hafði hann starfað hjá fyr­ir­tæk­inu í tvo mán­uði að ýmsum verk­efnum.

Í til­kynn­ingu frá Wow núna kemur fram að ráðn­ing hans hafi verið til eins árs og hann hafi komið að marg­vís­legum stefnu­mót­unar- og skipu­lags­málum í hröðum vexti. Honum eru þökkuð vel unnin störf í til­kynn­ingu frá Wow en þar er einnig haft eftir Skúla Mogensen, for­stjóra Wow, að Sigurður Magnús og hans mikla flug­rekstr­ar­reynsla muni nýt­ast fyr­ir­tæk­inu á „fyr­ir­sjá­an­legu vaxt­ar­skeiði.“

Fyrr í ágúst var til­kynnt um að Stefán Sig­urðs­son hefði verið ráð­inn nýr fjár­mála­stjóri hjá Wow. Hann kom til Wow frá Advania, þar sem hann var fjár­mála­stjóri í tæpt ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár