Icesave III hefði kostað 67 milljarða króna

Hefðu Lee Buchheit-samn­ing­arnir svoköll­uðu í Icesave-deil­unni verið sam­þykktir þá hefðu heild­ar­greiðslur rík­is­sjóðs vegna þeirra numið alls um 67 millj­örðum króna. Þetta er nið­ur­staða úttektar Hersis Sig­ur­geirs­sonar, dós­ents í fjár­málum við við­skipta­fræða­deild Háskóla Íslands. Hún er fengin að gefnu óbreyttu gengi punds og evru næsta árið og að gef­inni áætlun slita­stjórnar Lands­bank­ans um greiðslu for­gangskrafna. Samn­ing­arnir væru að fullu upp­greiddir hinn 15. júní 2016. Greiðslur fram til dags­ins í dag hefðu numið alls um 59 millj­örðum, sam­kvæmt svari Hersis á Vís­inda­vef Háskóla Íslands við spurn­ingu um kostnað samn­ing­anna.

Eins og kunn­ugt er var samn­ing­ur­inn, gjarnan kall­aður Icesave III, við Breta og Hol­lend­inga sam­þykktur af Alþingi en for­seti Íslands neit­aði und­ir­skrift og þeir fóru því í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu þar sem þeim var hafnað. Málið fór fyrir EFTA dóm­stól­inn þar sem Ísland var sýknað af kröfum Breta og Hol­lend­inga.


Í svar­inu á Vís­inda­vefnum segir Hersir að allar upp­lýs­ingar um samn­ing­ana séu fengnar úr frum­varp­inu sem lagt var fyrir alþingi árið 2011. „Einn stærsti áhrifa­þáttur á hugs­an­legar greiðslur rík­is­sjóðs vegna samn­ing­anna eru greiðslur for­gangskrafna úr slita­búi Lands­bank­ans, bæði fjár­hæð þeirra og tíma­setn­ing. Því hærri sem greiðsl­urnar eru í heild­ina, þeim mun minni hefði skuld Trygg­ing­ar­sjóðs inn­stæðu­eig­enda og fjár­festa (TIF) í lok tíma­bils­ins verið og greiðsla rík­is­sjóðs því lægri. Því fyrr sem greiðsl­urnar ber­ast því hraðar hefði höf­uð­stóll skuldar TIF lækkað og því vaxta­greiðslur rík­is­sjóðs orðið lægri,“ segir í svar­inu. Hersir segir þá áætlun sem lögð var fram hafa verið nokkuð var­færna. Í dag hafa 86% af for­gangs­kröfum í slitabú Lands­bank­ans verið greiddar út og hófust í lok árs 2011. Slita­stjórnin hefur sótt um und­an­þágu til að greiða um 9% af kröf­unum til við­bótar hið fyrsta.


Í lok grein­ar­innar setur Hersir þann fyr­ir­vara að áætl­unin sé sett fram miðað við þá þróun sem hefur orðið síðan samn­ing­unum var hafnað. „Hugs­an­legt er hins vegar að sam­þykkt samn­ing­anna hefði haft áhrif á þró­un­ina og þá hefði nið­ur­staðan að sjálf­sögðu getað verið önnur. Samþykkt samn­ing­anna hefði sem dæmi getað haft áhrif á þróun gengis krón­unnar, hvort sem er til styrk­ingar eða veik­ingar. Hefði krónan styrkst hefðu greiðslur rík­is­sjóðs verið lægri en hærri hefði hún veikst. Þá hefði sam­þykkt samn­ing­anna einnig getað haft áhrif á tíma­setn­ingar á útgreiðslum úr slita­búi Lands­bank­ans.“


Svar Hersis við spurn­ing­unni: „Hvað hefði Lee Buchheit-samn­ing­ur­inn kostað íslenska ríkið hingað til ef hann hefði verið sam­þykktur“ í heild.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár